Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Qupperneq 48
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu i
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá ij
sima 68-78-58. Fyrir ;
hvert fréttaskot, j
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og j
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar i
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 1985.
Lítilfyrirgreiðsla
hjá lánastof nunum:
Seiði seld
til Noregs
„Þetta var svo freistandi að það varð
ekki fram hjá því gengið,” sagði
Olafur Skúlason hjá Laxalóni en fyrir-
tækið selur nú laxa- og silungaseiði til
Norður-Noregs. I nótt var skipaö út 50
þúsund laxaseiðum og 50 þúsund regn-
bogasilungaseiöum og seinna í vikunni
skipar fyrirtækið út 150 þúsund
silungaseiöum til viðbótar.
Verðmæti seiðanna sem skipaö var
út í nótt er eitthvað á annan tug
milijóna en að sögn Olafs hefði út-
flutningsverömæti þeirra veriö um 100
þúsund milljónir ef þau hefðu verið
fullvaxta.
„Jú, þetta er sætsárt,” sagði Olafur,
„þetta kemur sér vel í því fyrir-
greiðsluleysi sem nú er. Það hefði
verið gaman að geta alið þessi seiði hér
en lánastofnanir eru alveg lokaðar.
Það er sárt þegar ríkisstjómin er að
tala um að gera næsta ár að ári út-
flutningsins, að geta ekki tekið þátt í
Því.” -JKH.
Margeir
teflir gegn
Vaganjan
Margeir Pétursson fær erfitt hlut-
skipti í fyrstu umferð millisvæða-
mótsins í Biel. Hann teflir með
syörtu gegn armenska stórmeistar-
anum Vaganjan, stigahæsta manni
mótsins og miklum baráttumanni. I
morgun var dregið um töfluröð og er
húnsvona:
1. Martin, 2. Li, 3. Torre, 4. Sökol-
ov, 5. Van der Wiel, 6. Andersson, 7.
Vaganjan, 8. Jansa, 9. Rodriquez, 10.
Gutman, 11. Partos, 12. Margeir, 13.
Short, 14. Seirawan, 15. Sax, 16.
Quinteros, 17. Ljuboievié, 18. Polúga-
évskí. I fyrstu umferð í dag tefla
saman nr. 1 og 18, 2 og 17 o.s.frv.
Einni skák hefur verið frestað, skák
Quinteros og Torre, þar eö sá fyrr-
nefndi hefur ekki látið sjá sig ennþá.
-IJ.
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 68-50-60.
ÞRÖSTUR
SÍÐUMÚLA 10
Verða herstöðvaand-
stmðingarnir ekki teknir >
i viðhaldið hjá Kananum?
Fjórir herstöðvaandstæðingar fóru að vild um Kef lavíkurf lugvöll f gær:
Hefðum getað málað
AWACS-flugvélamar
Varðgæsla hermanna á
Keflavíkurflugvelli virðist vera í lág-
marki. Fjórir íslenskir herstöðva-
andstæðingar fóru um valiarsvæðið
síðdegis i gær nánast að eigin vild án
þess að nokkur gerði athugasemd.
Herstöövaandstæðingamir fóru að
vopnageymslum, AWACS-radarflug-
vélum, skoðuðu nýju flugstöðina og
héldu fund inni í kjarnorkuheldu
flugskýli.
„Viö fórum alveg upp að þessum
AWACS-flugvélum. Við héldum að
þar væru vopnaðir verðir en þar virt-
ist enginn vera,” sagði Ami Hjartar-
son, formaður miönefndar Samtaka
hers töðva andstæðin ga.
„Ef viö hefðum verið með máln-
ingu heföum við getaö málað flug-
vélamar,” sagði Arni.
„Þaö var þama smágjóla svo að
við buðum okkur inn í þessi
sprengjuheldu flugskýli. Við
mættum að vísu brynvörðum bíi en
hermennimir virtust vera aö flýta
sér i kvöldmat, ” sagði Ami.
„Til aö komast að þessum
sprengjuheldu skýlum þurftum við
að aka yfir flugbrautarenda. Þar var
afskaplega litla umferð að sjá. Lög-
reglu á svæðinu var hvergi að sjá,”
sagðiArni.
„Þetta var könnunarleiðangur til
að athuga aðstæður í sambandi við
friðarbúðir sem viö ætlum að hafa
við valiargirðinguna dagana 6. til 9.
ágúst, en þá verða 40 ár liðin frá
kjamorkuárásunum á Hiroshima og
Nagasaki,” sagöi Arni Hjartarson.
-KMU.
Formaflur mlflnafndar herstöðvaandstæðinga vlð AWACS-flugvétamor
sfðdagis i gar. ÐV-mynd: VHV.
Rændu trillu
á Sauðárkróki
Tveir piltar á Sauðárkróki tóku litla
trillu traustataki í höfninni þar á föstu-
dagsmorgun og fóm á henni til Siglu-
fjarðar. Upp komst um verknaðinn
þegar menn á Siglufirði tóku eftir að
mikill sjór var í bát í höfninni og létu
þeir lögregluna vita.
Trilla þessi heitir Víkingur og er
fimm tonna. Piltarnir, seip eru um
tvítugt, munu hafa lagt áf stab um
áttaleytiö og verið komnir til Siglu-
fjarðar upp úr hádegi. „Eg held að
Bakkus hafi verið á ferðalagi með
þeim,” sagði lögreglumaður á Siglu-
firðiísamtalivið DV.
Eigandinn sótti trillu sína svo í
fyrradag og tilkynnti Sauðárkrókslög-
reglu víkingaferð piltanna til Siglu-
fjarðar.
JBH/Sauðárkróki.
Eldurí
Súlunni EA
„Það var forsjóninni fýrir að þakka
að ekki fór verr, miöað við að þaö kom
upp eldur í skipinu,” sagði Sverrir
Leósson, útgerðarmaður á Akureyri, í
morgun.
Ekiur kom upp í vélarrúmi skips
hans, Súlunni EA 500, á fimmtudags-
morgun. Skipið var þá á togveiðum út
af horni. Um borð var 12 manna áhöfn.
Orsök eldsins var sú að suöa fór i
röri. Athygli vekur að nýbúið var að
gera við það í Slippstööinni á Akureyri.
Mikill þrýstingur var á rörinu og
skvettist olia um allt vélarrúm.
„Það var guðsmildi að annar vél-
stjórinn var nýfarinn upp í matsal,
þetta var mikið eldhaf niöri i vélar-
rúmi,” sagðiSverrir.
Ljósavélin drap á sér, hætti að dæla
olíu, og skipverjar lokuðu hurðum.
Eldurinn kafnaði þvi.
Þannig var umhorfs á slysstað við Köidukvisl rétt fyrir hádegi í gœr. Innfellda myndin sýnir
flak bifreiðarinnar. DV-myndir S.
Dauðaslys varð
í Mosf ellssveit
Rétt fyrir klukkan ellefu i gær-
morgun varö dauðaslys í Mosfells-
sveit. Fólksbifreið á leið til Reykja-
víkur hentist út af veginum við.
brúna yfir Köldukvísl, ökumaöur lést
samstundis en farþegi er var með í
ferð var fluttur á sjúkrahús með
alvarlega áverka en er ekki talinn í
lífshættu.
Bifreiöin mun hafa komið á
töluverðum hraða eftir Vesturlands-
vegi og bílstjórinn misst stjórn á
henni rétt áður en hann kom að
brúnni er liggur yfir Köldukvísl.
Rakst hann á járnverk á vinstri
vegarhelmingi er liggur meöfram
veginum og tengist brúarstólpanum.
Þar kastaðist bíllinn yfir og fór í loft-
köstum um 20 metra utan vegar og
ha&iaði loks á gamalli reiðslóð er
liggur undir brúnni 5 metrum neðar.
-EIR.
-JGH.