Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1985, Qupperneq 7
DV. FÖSTUDAGUR16. ÁGUST1985.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Tex-Mexréttir
f rá gestakokknum
Núna fyrir helgina kemur örlitil til-
breyting frá Tilraunaeldhúsi DV —
gestakokkurinn okkar er Oddný
Magnúsdóttir Cerisano. Hún hefur
búiö erlendis í 25 ár, kom upphaflega
frá Bolungarvík en býr núna i Houston
í Texas. Þetta kallar hún Tex-Mexfæðu
sem er í grunninn mexíkanskir réttir
en síöar hafa Kanarnir lagaö þá aö
sínu eigin bragöskyni.
Fyrst eru það pipraðar rækjur sem
aöalréttur og tekið er fram að matar-
gestir þurfi að gefa sér góöan tíma til
þess að sitja við matarboröið.
Pipraðar rækjur
750 g smjör
1/4—1/2 bolli gróft malaður svartur
pipar
1/4 bolli sítrónusafi
5hvítlauksgeirar
4 lárviðarlauf
11/4 tsk. rosemary
1 msk. paprikuduft
Guacamole og sangria fyrir aðalmáltiflina.
Smjörsteiktir sveppir eru kannski ekkert fagrir á mynd en mjög góðir á
bragflið.
1 tsk. basil
1 tsk. oregano
1 tsk. salt
1/2—1 tsk. rauðar piparflögur
1 tsk. rifinn nutmeg
6 pund rækjur
Bræðið smjörið í stórum potti og
bætið öllu kryddinu saman við. Látiö
krauma á lægsta hita í 20 mínútur,
hrærið öðru hverju. Bætið rækjunum í
og hitið í 20 minútur í viðbót. Notið alls
ekki smjörlíki — smjörið gefur allt
annaö bragö. Afganginn af safanum
má geyma í ísskápnum og nota aftur
næst.
Sveppirnir
200 g smjör
Salt, pipar, paprikuduft, þriðja
kryddið og steinselja að vild
Bræðið smjörið og bætið kryddinu
saman við ásamt sveppunum. Eldið
við meðalhita þar til meirihluti soðsins
hefur gufað upp.
Appelsínulauksalat
4—5 stórar appelsínur, afhýddar og
skornar í þunnar sneiöar.
2—3 litlir rauðlaukar skornir í þunnar
sneiðar.
Raðið appelsinusneiöunum og laukn-
um í skál.
Sósan
3 msk. tarragon-edik
4 msk. olía
1 msk. sykur
Salt, pipar, paprikuduft og steinselja
að vild. Blandið saman og hellið yfir,
látið standa í kæli um það bil 2—3 tíma.
Fyrir máltíðina var á hliðarborði
guacamole sem er eins konar ídýfa og
drykkurinn sangria sem flestir sólar-
landafarar þekkja.
Guacamole
4 avocado, stappaðir með gaffli
1/3 bolli olíusósa
l/2tsk.salt
1/2 þriðja kryddið
1/4 tsk. hvítlaukskrydd
2 tsk. sítrónusafi
1/8 bolli picantisósa
Blandið öllu vel saman í skál og raðið
bugles í kringum skálina. Gætið þess
aö láta kjarnana í ídýfuna síðar til þess
að varna litarbreytingum. Ef kjarninn
er ekki látinn fylgja er salatið strax
orðiö dökkt og ólystugt.
Oddný Magnúsdóttir Cerisano kokkaði Tex-Mexrátti fyrir helgarveisluna.
DV-myndir Vilhjálmur
Stórar úthafsrœkjur eru bestar í róttinn.
Sangria
4 bollar rautt vín
1/2 bolli sykur
30 ml cointreu
2 bollar sódavatn
1 appelsina
Skerið appelsínuna í sneiðar og
einnig börk af einni sítrónu. Allt sett
saman í skál og ísmolar í lokin. 1
sangria þarf ekki að nota áfengt vín,
en ef notað er óáfengt rauðvín og
h'kjörsessens er nauðsynlegt að hafa
meira af ávöxtunum.
Að þessu sinni verður ekki reynt að
reikna út verðið á veislu gesta-
kokksins, fullyrða má að þetta er alls
ekki það ódýrasta sem hægt er að elda
um helgina og örugglega vel fitandi.
En eftir mikinn sparnað heimilis-
bókhaldsmanna í vor og sumar er
kannski allt í lagi að syndga svolítið og
reikna svo út kostnaðinn eftir á. Góða
skemmtun!
-baj.
Það er sest afl borflum og gert ráfl fyrir drykklangri setu þvi piparrækjur á afl gefa sór góflan tima til afl borfla. Appelsinu- og lauksalatið bragðaflist vel.