Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1985, Síða 16
16
DV. FÖSTUDAGUR16. AGUST1985.
Spurningin
Hvernig fannst þér kvenna-
áratugurinn?
Kristján Örn Jónsson verkstjóri:
Kvenfólk hefur í sumum atriðum
gengið of langt og sóst frekar eftir for-
réttindum en jafnrétti. Þaö ríkir ekki
launajafnrétti og þaö verður að leið-
rétta.
Páll H. Páisson nemi: Konur hafa
komið meira út á atvinnumarkaðinn
og sótt meira í sig veörið þar.
Ómar Gunnarsson: Ég hef ósköp lítiö
orðið var við kvennaáratuginn.
Arnheiður Hjartardóttir húsmóðir:
Eg hef lítið spáð í hann. Mér finnst
hafa orðið framfarir á ýmsum sviðum
kvenréttinda.
Jón Torfason trésmiður: Konur hafa
unnið sigur á vinnumarkaðnum í
kjarabaráttunni.
Ásta Sigurðardóttir matreiðslunemi:
Kvennaáratugurinn hefur borið ágæt-
an árangur, konur hafa unnið á.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Flugleiðabréfin:
Ríkissjóður rúinn
Áhorfandi skrifar:
Enn einu sinni veröur almenningur
vitni að skrípaleik þeim sem ávallt
er leikinn þegar hið opinbera og
Flugleiðir hf. eigast við.
1 fyrsta þætti sýningarinnar á
þessu leikári eru hlutabréf ríkisins
boðin til sölu á níföldu nafnverði,
eins og það var kallað.
Utverðir Flugleiða taka kipp mik-
inn og úthrópa mat Fjárfestingarfé-
lagsins sem markleysu og segja
bréfin vera þess virði sem þau séu
skráð og ekki krónu meira!
Þegar svo íslenskur aðili, umsvifa-
mikill í flugvélaviðskiptum, vill gera
tilboð í hlutabréf ríkisins í Flugleið-
um, að því er virðist í þeim tilgangi
einum að geta ráðið einhverju um
framtíðarrekstur Flugleiöa, sem er
nánast dauöadæmdur í höndum nú-
verandi stjórnenda, fer allt á annan
endann í stjórn Flugleiða og Eim-
skips.
Reiknimeistarar í hinum ýmsu
deildum fyrirtækjanna komast nú að
því að sakir skyndilegrar „uppljóm-
unar”, sennilega ,,að ofan”, að bréf-
in á nifalda verðinu eru nánast gjafa-
bréf eöa eins og þau voru eitt sinn
Frú aðalfundi Flugleiða 1984.
auglýst af Flugleiöum sjálfum,
„tannfé”! — og tilvalið að bjóða í
þau, — einmitt núna!
Hið opinbera, sem auðvitaö ætlaði
aldrei að selja bréfin öðrum en
helstu forsprökkum sameiningar
gömlu flugfélaganna, Loftleiða og
Flugfélags Islands, lét nú drífa í því
að upplýsa hve hátt Islendingurinn
erlendis, sem hafði haft ósæmileg
orð um stjórnendur Flugleiða, hafði
boðið — og til hve langs tíma!
Meira þurftu Flugleiðamenn og
Eimskip ekki til. Nú var hægt að
„bjóða” í bréfin og nokkuð tryggi-
lega gengið frá því að almenningur,
sem fylgdist með málinu gegnum
værukæra og áhugalitla fréttamenn,
oftar en ekki háöa frímiðalipurð
Flugleiða, hafði fengið kæruleysis-
sprautuna áður en honum voru færð-
ar fréttirnar af „göfuglyndi” Flug-
leiðastjórnar gagnvart starfsfólkinu,
sem í raun á að axla byrðarnar af
hlutabréfakaupunum með mánaöar-
greiðslum.
En hvers virði eru svo hlutabréf í
Flugleiðum þegar grannt er skoöað?
Einskis virði fyrir um 97% hluthafa,
einskis viröi fyrir starfsfólk sem er
notað sem „góðgerðar- og göfuglynd-
isgrýla” til að ná einskis nýtum bréf-
um frá eina aðilanum sem þau nýtt-
ust, — ríkisvaldinu sjálfu — sem svo
aftur tapaöi þeim við það að vera
eins konar „gestur þáttarins” í þess-
um fyrsta þætti sýningarinnar á sölu
hlutabréfa ríkisins í Flugleiðum.
En annar þáttur hefst fyrr en var-
ir. Það verða engar auglýsingar á
undan honum og fólk beðið að bíða
rólegt.
Dr. Jón Ottar,
verðstýring
og nunnur
Halldór Kristjánsson skrifar:
Grein dr. Jóns Ottars í DV 6. ágúst
minnir mig á hve tregt honum er að
ræða um veröstýringu áfengismála og
tilhögun hennar.
Hann játar enn trú sína á bjórinn.
Það vissum við fyrir að hann trúir því
að allur vandi og leiðindi í sambandi
við áfengi hverfi sem dögg fyrir sólu ef
menn hafi nógan bjór og drekki nógan
bjór. Við höfum líka heyrt og séð að
óskamarkinu vill hann ná meö verð-
stýringu. Því hef ég spurt hvernig
henni skuli haga. Og þar stendur
hnífurinn í kúnni og svarið í doktom-
um.
I stað þess að gera grein fyrir bjarg-
ráöinu í framkvæmd, verðstýringunni,
fer Jón Ottar að ræða fjarskyld mál
svo sem ástalíf og nunnur.
Nú þarf ekki doktor til aö vita þaö að
vandi og háski manns og þjóða liggur í
því að við kunnum ekki að lifa saman.
Vandinn og mistökin eru félagsleg.
Innilegasti þáttur alls félagslífs er
ástalífið sem samtengist kynhyötinni.
Þar er næmasti þáttur þess félagslega
strengs sem allar vonir mannkynsins
um farsæld og framtíð eru bundnar
viö. Sá sem leggur þann lífsstreng okk-
ar allra að jöfnu við glasaglaum,
staupagleði og ölvímu er í meira lagi
ruglaður.
Mér finnst dr. Jón sé að flýja þegar
hann leitar skjóls við fald nunnunnar.
En það er svo sem hægt að fylgja hon-
HRINGIÐ
í SÍMA
68-66-11
kl. 13 til 15
eða
SKRIFIÐ
Brófritari er hrœddur um að dr. Jðn
Óttar ofmeti sórfrœðina.
um þangaö. Eg er alveg viss um þaö að
mörg nunnan gæti lagt honum heilræöi
sem að góöu gagni koma, jafnvel í
hjónarúmi, því að þangað ná líka rök
og forsendur alls samlífs og ætti að
nægja að nefna nærgætni, umhyggju,
hófsemi og gagnkvæma virðingu.
Eg er hræddur um að dr. Jón Öttar
ofmeti sérfræðina. Skyldi hann halda
að enginn geti orðið manneldisfræðing-
ur aö gagni nema hann hafi veslast upp
af hörgulsjúkdómi eöa hafi étið yfir sig
til óbóta?
Ætli hann haldi að enginn dugi til að
vera geðlæknir nema hann hafi veriö
brjálaðursjálfur?
En snúum nú að verðstýringunni.
Mér skilst að til grundvallar eigi að
liggja að í ölinu eigi vínandinn að kosta
minna en í brennivíni. Nú kostar
brennivín 720 krónur flaskan, 3/4 lítra.
Einn litri kostar þá 960 krónur. Brenni-
vín meö 45% vínanda er níu sinnum
sterkara en bjór sem hefur 5% vín-
anda. Miöaö við núverandi brennivíns-
verð yröi vínandinn í bjórnum á sam-
bærilegu verði ef lítrinn væri á 107
krónur. Væri bjórinn seldur á flöskum
sem tækju 1/3 lítra mætti hann ekki
kosta meira en 35 krónur.
Þetta eru staðreyndir sem hver sem
er ætti að geta sannprófað. Ég geri ráð
fyrir að dr. Jón Ottar vilji hækka
brennivínið. En hversu mikið?
Fyrst doktorinn telur að verðstýring-
in sé svo örugg bið ég hann enn um
skýringar. Hvernig vill hann verð-
leggja?
Merkið umferðar-
tafir í tíma
Anna skrifar:
Alveg finnst mér óþolandi þegar lok-
anir vegna einhverra framkvæmda á
umferðargötum höfuðborgarinnar
koma ekki í ljós fyrr en nákvæmlega
þar sem framkvæmdin fer fram.
Þaö ætti að vera lítill vandi að setja
upp merki um lokun svolitið fyrr þann-
ig að bílstjórar hagi akstri sínum í
samræmi viö þaö.
Annars fer eins og um daginn á
Miklubrautinni. önnur akreinin var
lokuð við Miklatorg. Þá þurftu þeir
sem ekki komu auga á framkvæmdina
sem framundan var og voru á hægri
akreininni að troðast inn á vinstri ak-
reinina. Þarna skapaöist óþarfa
spenna og stapp í umferðinni.
Þetta er því miður ekkert einsdæmi.
Lokanir á umferðargötum eru ekki
merktar öðru vísi. Því miður.
Þegar akbrautum er lokað vegna einhvers konar framkvœmda er
algengast að það só ekki tilkynnt fyrr en nákvæmlega á þeim punkti sem
framkvæmdin fer fram. Ekki tækifæri fyrir ökumenn að koma sór yfir á
aðrar umferðaræðar fyrr en allir eru komnir i æsing og hamagang.
DV-mynd Bjarnleifur Bjarnleifsson
GLEDJIÐ DURAN
DURAN ADDÁENDUR
— eina ferðina enn
A. skrifar:
Þegar Blue Silver var sýnt í sjón-
varpinu á dögunum voru margir DD
aðdáendur fúlir því sumir hafa séð það
oft áður á myndbandi. Því ekki að sýna
10 vinsælustu lögin þeirra? Einnig er
mjög fúlt að geta ekki tekið upp vin-
sældalistann í útvarpinu fyrir blaðrinu
í þeim sem kynna.
Þess má geta aö það er stranglega
bannað með lögum að taka upp efni í
útvarpinu.