Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1985, Qupperneq 33
DV. FÖSTUDAGUR16. AGUST1985.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Herra Band-Aid, öðru nafni Bob
Geldof, er í leiðu skapi þessa
dagana. „Ég er enginn kaupsýslu-
maður,” segir hann og nennir ekki
að standa i þjarki um verð á öllum
þeim matvælum sem kaupa á fyrir
söfnunarfé Band-Aid-hópsins. „Ég
er tónlistarmaður og vil starfa sem
slíkur,” segir Geldof og stynur.
Ekki má skilja þessa þreytu á þann
veg að popparinn njóti þess ekki að
hjálpa öðrum lengur. Alls ekki.
Hann viil bara geta snúið sér að
hljómsveit sinni, Boomtown Rats,
aftur en láta atvinnukaupahéðnum
eftir að kaupa fyrir söfnunarféð.
Hljómsveitin var enda að gefa út
nýja plotu og slíku fylgir mikill er-
U1 og okkur finnst Geldof eiga skilið
frí eða hvað finnst ykkur?
Islendingur
kosinn í
aóalstjóm EDS
Evrópusamtök lýöræðissinnaðra
stúdenta, EDS, héldu aðalfund sinn í
Reykjavík í vikunni.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta við Háskóla lslands, er aðili
að samtökunum og sá um undirbúning
aðalfundarins. Um 30 fulltrúar frá
flestum ríkjum Vestur-Evrópu, auk
fulltrúa frá stúdentasamtökum í Isra-
el, Bandaríkjunum, Ástralíu og Suður-
Afríku, sátu aðalfundinn. Ymis mál
lágu fyrir fundinum en mest bar á um-
ræðum um ástandið í Suður-Afríku og
ástand öryggismála í Evrópu. 1 funda-
hléum skoðuðu erlendu gestirnir sig
um í Reykjavík og nágrenni og heim-
sóttu meöal annars forseta Islands,
Vigdísi Finnbogadóttur á Bessa-
stöðum.
Á aðalfundinum var kosin sex
manna aöalstjórn.
Olafur Arnarson, einn þriggja full-
trúa Vöku, var einn þeirra er kosningu
hlutu í stjóm. Islendingar hafa einu
sinni áður átt fulltrúa í aðalstjórn
EDS, Atla Eyjólfsson, árið 1982-1983.
Andy Ridgeley kappaksturs-
klæddur.
Draumurinn
er að keyra
kappakstursbíl
— segir Andy íWham!
Wham! og Duran Duran aðdáendur
kvarta iöulega um að alltof lítið birtist
af myndum og fréttum af þeirra
mönnum á síðum dagblaða og í sjón-
varpinu. Nú verður Duran Duran Uðið
líklega reitt því hér eru smáfréttir af
Andy Ridgeley í Wham! Hann hefur
nefnilega lýst því yfir að tU að vera
virkilega töff gæi þá eigi strákar að
leggja fyrir sig kappakstur. Hann
reyndi þetta sjálfur en tókst ekki sem
best upp því tvisvar í sömu vikunni
munaði minnstu að hann klessukeyrði
túrbóbílinn sinn. Þeir sem sáu tU pilts-
ins höfðu ekki mikla trú á honum sem
kappaksturshetju og sögðu að eigin-
lega hefði hann ekki einu sinni hæfi-
leika til að keyra kassabíl. Svona fór
nú það hjá Andy en hann getur æft sig
og kannski tekst honum að ná frama í
kappakstrinum svo hann veröi virki-
lega töff gæi.
Geri
aldrei
neitt
sem ég
get látið
aðra gera
Viðtal við
Davíð Scheving
Thorsteinsson
Lífsreynsla:
Fyrrum
dópisti og
díler segir frá
Hoilywood-
keppnin hefst
Skotheldir
skyndiréttir
Vikan kynnir keppni
um gerð skyndirétta
Graðrótin vex
í Goðalandi
Ferðasaga úr Þórsmörk
Krispí, krönsí,
sjlkí og teistí
Okkar maður i Washington
ræðir urh afiglýsingaiðnaðinn
Nýkjörin aðalstjórn Evrópusamtaka lýðræðissinnaðra stúdenta. Frá vinstri. Mattias Bengtsson frá Svi-
þjóð, José Maestro Lopez frá Spáni, Claude Henry IMey frá Frakklandi, George Anagnostakos frá Grikk-
landi, er jafnframt var kosinn formaður EDS, David Hoile, framkvæmdastjóri EDS, David Hoey frá Bret-
landi, Eros Antoniaders frá Kýpur og Ólafur Arnarson, fulltrúi Vöku. DV-mynd VHV.
*: