Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Side 1
Ráöuneytíd segir að-
eins vanta200millj.
— en fjáríög ekki íhöfn þ ví enn er ósamið um niðurskurð í ráðuneytum
Samkvæmt áætlun fjármálaráðu-
neytisins um fjárlög næsta árs vant-
ar nú aðeins 200 mUljónir til að unnt
sé að koma á móts viö 32 milljarða
áætluð útgjöld næsta árs. Þessi áætl-
un gerir ráð fyrir niðurskurði og nýj-
um tekjum ríkisins, sem enn er
ósamkomulag um innan ríkisstjóm-
arinnar. I dag mun þingflokkur
Framsóknarflokksins fjalla um fjár-
lög næsta árs. Seinna í dag kemur
ríkisstjómin saman og reynir að
samstilla viðhorf sín. Þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins tók ekki afstöðu
til fjárlaganna i gær á þingflokks-
fundi, samkvæmt tillögu formanns-
ins og vill bíða eftir því að ráðherr-
arnir komi sér saman um endanleg
drögaðfjárlögum.
Margt er óljóst í sambandi viö f jár-
iagagerðina enda verjast stjómarlið-
ar frétta af gangi mála. Samkvæmt
heimildum DV er ljóst að ekki verður
gripið til þess að leggja söluskatt á
matvörur. Hins vegar veröa nú af-
numdar ýmsar undanþágur frá sölu-
skatti á öðrum vörum og þjónustu.
Þá er einnig gert ráð fyrir því að
vörugjald hækki. Afnám undanþága
frá söluskatti aflar um 600 milljóna
kr. tekna á næsta ári.
En fjárlögin eru ekki í höfn því eft-
ir á að semja um niðurskurö í ráðu-
neytunum. Matthías Bjarnason sætt-
ir sig ekki viö að vegamál verði skert
á næsta ári og má búast við storma-
sömum ríkisstjómarfundi í dag.
APH
VALSMENN
MEISTARAR
knattspyrnu 1985
Knattspyrnufélagið Valur varð í
gærkvöldi Islandsmeistari í knatt-
spyrnu 1985. Valur sigraði KR í gær-
kvöldi með einu marki gegn engu og
var það Guðmundur Þorbjömsson sem
skoraði sigurmarkiö þegar ein minúta
vartilleikhlés.
Valsmenn unnu Islandsmeistaratitil-
inn í 18. skipti í gærkvöldi en fyrst varð
félagið íslandsmeistari árið 1930. Mik-
ill fögnuður ríkti á félagssvæði Vals-
manna að Hlíðarenda í gærkvöldi og
var greinilegt að nokkur ár höfðu liðið
án þess að Valsmenn yrðu meistarar.
Frásögn af leiknum og viðtöl eru á
blaðsíðum 18 og 31. -SK.
Ær ásamt tveimur iömbum
bjargaðist úr sjálfheldu i gœr-
morgun, skammt austan við
Gunnarshóima, i nágrenni Sel-
fjalls. Að sögn lögreglunnar i
Kópavogi var það af tilviljun
að sást til kindanna þar sem
þsar voru ofan i gjótu sem ekki
sást frá veginum. Gjótan er
mannhsaðardjúp og komust
þasr ekki upp af eigin ramm-
leik. Að sögn virtust kindurnar
hafa verið þarna niðri í
töluverðan tima. Ærin var all-
hungruð en lömbin ekki eins
enda hafa þau fongiö mjólk
úr mömmu sinni.
-EH. DV-mynd S
Grimur Sæmundsen, fyrirliði
Vals, hampar íslandsmeistara-
bikárnum eftir sigurinn gegn
KR í gærkvöldi.
DV-mynd Bjarnleifur.