Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Blaðsíða 9
DV. F’ÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER1985. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Sovéskur stómjósnarí vann líka fyrír Breta — og Ijóstraði upp um 25 landa sína sem Bretar vísa úr landi. — Veitti Dönum upplýsingar um sovéskar njósnir í Danmörku Breska stjórnin vísaði í gær 25 Sovét- mönnum úr landi eftir að háttsettur sovéskur njósnaforingi leitaði hælis í Bretlandi. Flótti njósnaforingjans er talinn mesti njósnasigur Breta síðan Oleg Penkovsky flúði snemma á sjöunda áratugnum. Njósnaforinginn er Oleg Gordievsky. Hann hefur verið yfir- maður leyniþjónustunnar KGB í Lond- on undanfarna mánuði. Hann hefur verið á Bretlandi síðan 1982. Áður var hann í leyniþjónustu Sovétríkjanna á Norðurlöndunum. „Hann lét okkur í té upplýsingar sem voru bæði áhugaverðar og mjög þýðingarmiklar,” sagði Erik Ninn- Hansen, dómsmálaráðherra Dan- Oleg Gordievsky Ijóstraði upp um að minnsta kosti 25 landa sína og fyrrum starfsbræður eftir að hann gekk Bretum á hönd. Hér er KGB-útsendari að verki i Moskvu. Skriðdrekar aftur á götum í Thailandi Skriödrekar óku um götur Bangkok í Thailandi í gær og ollu með því orð-- rómi um að ný byltingartilraun hefði átt sér stað. Stjómin neitaði því. Fulltrúi hjá ríkisútvarpi Thailands sagði að um 12 skriðdrekar hefðu hald- ið sig nálægt stjómarbyggingum í mið- borginni. Um leið hringdu tugir manna í blöð og útvarpsstöðvar til að spyrja hvort ný byltingartilraun hefði verið gerð. En stjómin segir að aðeins hafi verið um venjulega öryggisaðgerö aö ræða. Byltingartilraun var gerð á mánu- dag. En hún endaöi með því að upp- reisnarmenn gáfust upp, með 500 manns og 20 skriðdreka. Leiðtogi þeirra, Manoon Roopkhachorn, flúði til Singapore. Sendimenn erlendra rikja í Singapore segja aö hann hyggist leita hælis í Bandaríkjunum. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Thailandi. þeir séu að endurmeta þá ákvörðun I sína. Grikkir, sem rekja upprana sinn til r svæða innan landamæra Albaníu eða eiga ættingja í Albaníu, era ekkert á því að rétt sé að vingast við Albaníu- stjóm. Sendinefnd Grikkja, sem koma frá Albaníu en era nú búsettir í Norður- Ameriku, kom til Grikklands nýlega og r i náði þá tali af Papandreou Grikklands- forseta. Eftir þann fund fór forsetinn að hugsa málið á ný. Götuheiti í höfuðið á Samönthu Smith Eitt blaöanna í Moskvu birti í gær lesendabréf þar sem lagt var til að stræti Jalta yrði skírt eftir Samönthu Smith, telpunni sem skrifaði Andro- pov bréf í fiiðaráskorun og var boðið . til heimsóknar í Sovétríkin í staöinn. — Hún fórst í flugslysi í síðasta mánuði á leið í sjónvarpsþátt vegna frægðar- innar, sem hún hlaut af tilskrifelsinu. — 1 Jalta er eitt stræti, sem heitir í höf- uðið á Vesturlandabúa, nefnilega Franklin-Roosevelt-stræti. Teflirábakinu Urgur er kominn upp meðal kepp- enda á skákmótinu í Tilburg vegna breska stórmeistarans Tony Miles sem fékk undanþágu til að tefla útafliggj- andi. Hann er illa kvalinn af bakveiki og liggur út af á nuddbekk. Liggur hann á hryggnum og hugsar leikina, en veltir sér á kvið til þess að leika mönn- unum. Hinir segja að þetta trufli keppi- nauta Miles enda er hann orðinn efstur eftir 10 umferðir meö 5 1/2 vinning og eina biðskák. — Hiibner hefur 5 1/2 vinning, Timman 5 og Korstnoj 5. Mótstjómin sættist á að Miles þyrfti að sitja í stól við taflborðið, ef mótherji krefðist þess, en nuddborðið yrði skammt undan svo að hann gæti hvílt sig á því. merkur. Ekki er enn vitað hvort hann starfaði á Islandi, eöa hafði Island á sinni könnu. En ljóst er að hann hefur um langan tíma verið tvöfaldur í roðinu og veitt Vesturlöndum upplýsingar. Aðeins þeir fyrstu Sovéska sendiráðið í London sagði að brottrekstur hinna 25 Sovétmanna væri óþarfur og ögrandi. Sérfræðingar um sovésk málefni segja að Oleg Gordievsky hafi verið í einstaklega góðri stöðu og hann ætti að geta gefið nákvæmar upplýsingar um starfsað- ferðir KGB-leyniþjónustunnar. Líklegt væri að þessir 25 sem hefur verið skipað að fara úr landi séu aðeins þeir fyrstu í röð njósnara sem reknir eru burt af Bretlandsströndum. Mikilvægur í Kaupmannahöfn Utanríkisráöuneyti Bretlands sagöi að Gordievsky heföi gengið í lið með KGB áriö 1962. Frá miðjum sjöunda áratugnum hefði hann starfað á Norðurlöndunum áður en hann var skipaöur ráðgjaf i í Bretlandi. Danski dómsmálaráðherrann Erik Ninn-Hansen sagði aö Gordievsky hefði verið „sérlega” mikilvægur heimildarmaður á meðan hann var í Kaupmannahöfn árin 1966 til 1970 og 1972 til 1978. Samband versnar „Að sjálfsögöu hafa leyniþjónustur Bretlands og Danmerkur haft samband sín á milli varðandi hann,” sagði Ninn-Hansen. Brottvísun Sovétmannanna 25 er sú stærsta síðan 1981, þegar þeir ráku 105 Sovétmenn úr landi. Mennimir 25 voru sex stjómarerindrekar, þeirra á meðal þrír sendiráðsritarar. Þeir sem ekki voru sendimenn voru frétta- menn, viðskiptafulltrúar, starfsmenn við sendiráðið, túlkar og aðrir. Búast má viö að sambandiö milli Bretlands og Sovétrikjanna, sem var farið að þiðna eftir að Thatcher for- sætisráðherra sagði að hún og Gorbatsjov formaður gætu ,,átt við- skipti saman,” fari nú aftur að kólna eftir þetta. Venja er að Sovétmenn svari í sömu mynt þegar Bretar vísa Sovétmönnum úr landi. Leyfa endurnýjun Breski utanríkisráðherrann, Sir Geoffrey Howe, sagði í gær að breska stjómin myndi líta refsiaðgerðir Sovétmanna alvarlegum augum en bætti við að Bretar vildu í öllu falli reyna að bæta sambúöina við Sovét- menn. Talsmaður utanríkisráðuneytsins sagði að Bretar myndu leyfa Sovét- mönnum að senda menn í stað þeirra sem voru sendir burt. Sú hefur ekki verið ven jan. Howe lýsti því líka yfir að breska stjómin myndi hér eftir leyfa 46 sovéskum sendimönnum að starfa í Bretlandi, en nú eru þeir 39. Heimildarmenn innan stjóm- arinnar herma að þessi njósnasigur Breta standi í engum tengslum við njósnahneykslið í Vestur-Þýskalandi. Keppni um gerð fljótlegra, næringar- ríkra og fallegra rétta. Skila- frestur til 15. sept- ember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.