Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985. 3 Refaræktá Djúpuvík? „Þaö var mikill áhugi á því hér að fara út i loðdýrarækt, einkum refarækt. Hér er frábær aðstaöa tU þess, bæði rðlegt og mikið vetrar- ríki en það þykir mikill kostur i þessu sambandi,” sagði Ásbjöm Þorgilsson, framkvæmdastjóri hlutafélagsins Magnús Hannibals- son á Djúpuvík, í samtali við DV. „Viö höfum nýverið stofnað hér útgerðarfyrirtæki, Sætrimm, í þeim tilgangi að koma hér upp vísi að fóðureldhúsi sem er mjög mikil- vægt í sambandi við loðdýrarækt,” sagðiÁsbjöm. Hann sagöi að útgerðarfélag þetta myndi gera út litlar trillur og alit upp i 30 tonna báta. „Við ætlum að nýta allt sem kemur upp úr sjón- um, enda er hér úrval alls kyns sjávargróðurs og -dýra. Síðan ætl- um við að búa til svokallaöa meltu. Hún er ekki ósvipuð lýsi og er und- irstaða í fóðri loðdýra. Viö höfum hér alla aðstöðu til að geyma þetta fóður því að hér eru steintankar, gamlir olíutankar, en þeir eru til- valdir til geymslu á þessu. Þannig komum viðokkur upp fersku fóður- eldhúsi fyrir loödýrin,” sagði Ás- bjöm Þorgilsson. _Kj» Norrænt jafnréttí íReykjavík A vegum norrænnar embættis- mannanefndar um jafnréttismál verður haldin ráðstefna á Hótel Loftleiðum i Reykjavík dagana 25. og 26. september nk. Ráðstefnuna munu sitja um fjörutíu fulltrúar, þar af tíu íslenskir. Guðríöur Þorsteinsdóttir, for- maður Jafnréttisráðs, hefur undir- búið ráðstefnuna fyrir íslands hö^d en hún á sæti í embættismanna- nefndinní. Umræðuefni ráðstefn- unnar veröur nýafstaðin kvenna- ráöstefna Sameinuðu þjóöanna í Nairobi. Samþykktir ráðstefnunn- ar verða skoðaðar „í norrænu ljósi” og hvernig unnið verður úr þeim. -ÞG ÓDÝRA HORIUIÐ ALLT Á 50 OG 25 KR. Heittí kolunum hjá Þrótturum Nokkrir vörubílstjórar voru sett- ir í afgreiðslubann hjá vörubíla- stöðinni Þrótti í fyrradag. Hitnaði mönnum mjög i hamsi vegna þessa þóttekkisyðiuppúr. Afgreiðslubanniö var sett á bíl- stjórana vegna þess að þeir höfðu ekki hirt um að greiða í lífeyrissjóð Landssambands vörubílstjóra og skulduðu sumir iðgjöld tveggja ára. „Bílstjórarnir innheimta þetta gjald af hverjum viðskiptavini og eiga svo að standa í skilum við okk- ur,” sagði Bragi Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Þróttar, í sam- tali viö DV. „Því var gripiö til þ'ess ráðs að setja bílstjórana i af- greiðslubann. Þeir hafa þó flestir verið að kippa málunum í liðinn og vonandi verður þetta komið á hreint fljótlega,” sagði Bragi. -EIR. Vörubilarnir stóðu í hrönnum á planinu maðan bílstjórarnir deildu innanhúss. DV-mynd KAE. SKÓLAPEYSUR, SKÓLABUXUR, SKÓLATÖSKUR, GÖTUSKÓR, ÚLPUR, SKYRTUR, SOKKAR, NÆRFATNAÐUR OG FLEIRA OG FLEIRA. VÖRULOFTIÐhf SIGTÚNI 3, SÍMAR 83075. Á fullorðna regngallar skyrtur, mikiö úrval gallabuxur, allar stæröir, frá 885,- kuldaúlpur frá kr. 1.945,- herraúlpur frá kr. 1.450,- herrabuxur úr ull, 4 litir, verö frá kr. 920 mikið ún/al af peysum frá kr. 400,- A börnin gallabuxur, kr. 490,- gallasmekkbuxurfrá kr. 360,- peysur, mikið úrval, frá 395, regngallar flauelsbuxurfrá 450,- vatteraöar ungbarnasmekkbuxur frá 199 ungbarnanærföt frá 120,- ungbarnagallar frá 285,- slðar drengjanærbuxur frá 245,- mikið úrval af barnaskyrtum frá 85,- barnasokkar25,- skólatöskurfrá 195,- Greiðslukortaþjónusta. OPNUNARTÍMI 10 —18mánudaga —miðvikud., 10 — 19 föstudaga, 10 — 16 laugardaga. „ENGIN STJÓRN A FISKELDISMÁLUM” segir Ólaf ur Skúlason f laxalóni „Það er engin stjóm á fiskeldismál- um á lslandi. Þessa dagana eru land- búnaðarráðuneytið og sjávarútvegs- ráðuneytið að karpa um hvort þeirra fiskeldið eigi að heyra undir og menn geta ímyndað sér hvernig stjóminni er háttaö á meðan. Til eru samtök haf- beitar- og fiskeldisstöðva en það er ekki nema um helmingur þeirra sem stunda fiskeldi aöilar aö samtökunum. Ráðgjöf er engin,” sagði Olafur Skúla- son, framkvæmdastjóri Laxalóns hf., í samtali við DV. Eins og fram kom í blaðinu í gær hafa fiskeldisfyrirtæki hrint af stað framkvæmdum sem kosta munu millj- arð á næstu tveimur árum en reiknað er með að söluverðmæti þess lax, sem þessi f járfesting á að skila af sér í tekj- um, nemi hátt í tvær milljónir króna. Laxalón er ein af elstu fiskeldis- stöðvum á landinu og er starfsemi fyrir- tækisins mjög fjölþætt. Að sögn Olafs er hún á fjórum stööum: í Hvalfirði, ölfusi, Kjós og Dalasýslu. Sé allt talið til er Laxalón með rækt á laxa- og silungaseiðum, kvíaeldi og regnboga- silungi og loks hafbeit á laxi í sam- vinnu við bændur í Saurbæ. Olafur var inntur eftir áliti sínu á framtíðarhorfum í fiskeldi á Islandi. „Það er ekki nokkur vafi á því að þetta er framtíðin. Auövitað er mikil hætta á slysum í þessum rekstri, til dæmis því að sjúkdómar komi upp. Við höfum dreift okkar starfsemi til að verjast alvarlegum skakkaföllum af því tæi. Eins og á málum er haldið er þessi hætta meiri en hún gæti verið en það er engu að síöur óyggjandi að fisk- eldiö er þjóöhagslega hagkvæmt. Eg hef sérstaka trú á að eldi á regnboga- silungi henti íslenskum aðstæðum bet- ur en eldi á öðrum eldisfiskum. Hann er orðinn söluvara strax þegar hann er orðinn 250 til 300 grömm á þyngd. Þaö þýðir að hægt er að ala hann í ker jum á vetuma, flytja hann síðan í sjókvíar yfir sumartímann og slátra honum að hausti. Ræktun hans gæti orðið mjög drjúg aukabúgrein fyrir bændur.” — Hvað um sölumálin? „Norðmenn væru ekki að stefna í að auka framleiðslu sina úr 20 þúsund tonnum í 90 þúsund, nema af því að það er gífurlegur markaður fyrir þennan fisk. Sá markaöur er stærri en nemur 90 þúsund tonnum.” — Hvenær telur þú að fiskeldið fari að skila umtalsverðum útflutnings- tekjum? „Eg á von á að þaö séu 5 ár í þaö ef menn leggja áherslu á laxeldi en skemmri tími ef menn nýta regnboga- silunginn að einhverju marki.” -JKH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.