Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985.
11
Samband veit-
inga- oggisti-
húsa fertugt
Stjórn og framkvœmdastjóri SVG. Frá vinstri: Einar Olgeirsson, Áslaug Alfreðsdóttir, Emil Guðmunds-
son, Jón Pálsson, Ólafur Laufdal, Skúli Þorvaldsson, Erna Hauksdóttir, Bjarni I. Árnason og Pétur
Geirsson.
Samband Veitinga- og gistihúsa,
SVG, var stofnað 6. september 1945 og
fagnar því f jörutíu ára afmæli sínu um
þessar mundir. Stofnfélagar voru 36 og
fyrsti formaður þess Friösteinn Jóns-
son sem þá rak Gildaskálann í Austur-
stræti. Nú eru 118 hótel og veitingahús
aðilar að SVG og formaður þess Skúli
Þorvaldsson á Hótel Holti en fram-
kvæmdastjóri er Erna Hauksdóttir.
1 tilefni af afmælinu boðaði stjórn
SVG blaöamenn á sinn fund og kynnti
þeim sögu, hlutverk og stöðu sam-
bandsins nú.
Fjórþætt hlutverk
SVG er samtök vinnuveitenda og
annast samningamál fyrir félags-
menn. Það gætir hagsmuna félags-
manna gagnvart hinu opinbera. Einnig
hefur sambandið á sinni könnu
fræðslu- og kynningarstarf (og á hlut í
landkynningarskrifstofu í V-Þýska-
landi ásamt fleiri íslenskum aðilum í
ferðaiönaði) og síðast en ekki síst á þaö
aö efla samvinnu félaganna og vera
vettvangur skoðanaskipta.
Nær 90 af hundraði
löglegrar áfengissölu í ÁTVR
Að undanförnu hefur sambandinu,
þótt að sér vegið af hinu opinbera. Ber
þar hæst þá ákvörðun dómsmálaráð-
herra að banna bjórlíkið og tregðu
hans í úthlutun vínveitingaleyfa. Sem
dæmi nefndu forráðamenn SVG að ráð-
herra hefði dregið í eitt ár að úthluta
Hótel Hofi vínveitingaleyfi. Teldi hann
sig vera að hamla gegn áfengisneyslu
en staðreyndin væri sú að árin 1974—
1984 hefði veitingastöðum með vínveit-
ingaleyfi fjölgað um 235% á meðan
áfengisneysla heföi ekki aukist um
nema 8,5%. Yfirvöldum væri nær að
líta í eigin barm því Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins réði yfir sölu
88% þeirra vínfanga sem seld væru
löglega í landinu.
Meira frelsi nauðsyn
Tími telja þeir að sé kominn til að
Islendingar hætti að vera aðhláturs-
efni útlendinga í þessum málum, fáir
skilji að hér séu sterk vín leyfð og
blöndun þeirra við pilsner en bjór hins
vegar bannaöur. Vonast SVG til aö
þetta ástand breytist fljótlega og við
Islendingar verðum samferða öðrum
vestrænum þjóðum í áfengismálum.
SVG telur vaxandi iðnaði nauðsyn
að búa við sem mest frelsi en aukning í
ferðaþjónustu var um 7,5% fyrstu sjö
mánuði ársins. SVG hefur í hyggju að
skapa heilbrigðan atvinnurekstur sem
afiað geti þjóöinni dýrmætra gjald-
eyristekna.
Álögur og afmælisrit
SVG-menn tíunduðu þær álögur sem
félagar í SVG þyrftu aö standa undir.
Sala matvæla er söluskattsfrjáls ann-
ars staöar en á matsölustöðum og eig-
endur veitingahúsa þurfa að kosta
löggæslu sinna staöa sem þeir telja
svipað og að LlU stæði undir rekstri
Landhelgisgæslunnar.
Svo vikið sé aftur að afmælinu þá
hyggst sambandið halda hóf af því til-
efni fyrir félagsmenn sína og gefa út
afmælisrit.
I stjóm SVG eru auk Skúla Þor-
valdssonar þeir Einar Olgeirsson
varaformaður, Áslaug Alfreðsdóttir,
Bjarni I. Ámason, Emil Guðmunds-
son, Olafur Laufdal og Pétur Geirsson.
Skrifstofa Sambands veitinga- og
gistihúsa er að Garöastræti 42.
-AÖH
Götur í
Borgarnesi
klæddar
Frá Sigurjóni Gunnarssyni, fréttarit- Borgarnesi. Á vegum Borgarnes-
ara DV í Borgarnesi: hrepps er veriö að leggja svokallaða
Miklar vegaframkvæmdir eru nú í klæðingu á um 15.000 fermetra og
Fulltrúar Norðurlandaþjóðanna á fundinum í Kiruna. F.v. Astrid
Gjertsen, neytendamálaráðherra Noregs, Bo Holmberg, innanríkis-
ráðherra Sviþjóðar, Kaisa Raatikainen, innanríkisráðherra Finnlands,
Alexander Stefánsson, Britta Schall-Holberg, innanrikisráðherra Dan-
merkur, og Niels Pauli Danielsson, landstjórnarmaður frá Fœreyjum.
Fundur um sveftarstjómarmál
Dagana 4.-6. ágúst sl. komu
saman til fundar í Kiruna í Svíþjóö
sveitarstjórnamálaráðherrar Norð-
urlandanna. Fulltrúi Islands var
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra en auk hans tóku þátt í
fundinum fyrir Islands hönd Hall-
grímur Dalberg ráðuneytisstjóri og
Jóhann Einvarðsson, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra.
Fundir sem þessir hafa farið
reglulega fram frá því 1981 en þetta
er í fyrsta skipti. sem íslenskur
félagsmálaráöherra tekur þátt í
slíkum fundi. Á fundinum í Kiruna
var m.a. rætt um stöðu sveitar-
félaga, verkaskiptingu þeirra og
ríkisins og önnur samskipti þessara
aðila.
I fréttatilkynningu frá félagsmála-
ráðuneytinu segir að næsti fundur
sveitarstjórnamálaráðherra verði
haldinn á Islandi árið 1987.
-JKH.
Starfsmenn Hagvirkis setja klœðingu á götur Borgarness.
DV-mynd Sigurjón Gunnarsson.
samhliða því eru einstaklingar og
fyrirtæki að ganga frá heimkeyrslum
og bílastæðum á um 2 til 3 þúsund
fermetrum til viðbótar.
Að sögn Bjarna Jóhansen, bygginga-
fulltrúa Borgarneshrepps, var fyrst
byrjaðaðleggjaklæðingu áþéttbýlis-
stööum á Hellissandi og þá í samvinnu
við vegagerðina og að fenginni reynslu
væri þessi aðferð mjög að ryðja sér til
rúms á kostnað olíumalar.
Aðferð þessi, sem kölluð hefur verið
klæðing, er sú að fyrst er undirlagið
jafnað og fenginn réttur halli. Síðan er
upphitaðri bikblöndu sprautað yfir.
Ofan í er síðan jafnaö möl sem er með
kornastærð 0 til 0,19 mm og hún völtuð
ofan í blöndu þessa. Eftir þessa
meðferð er óhætt að aka og vildi B jarni
benda sérstaklega á mikilvægi þess að
ökumenn keyri jafnt út við kantana
sem á miðjum vegi því umferð bíla er
notuð jafnframt sem þjöppun og því
æskileg að farið sé á bílum yfir alla
klæðinguna svo ekki verði um mis-
gengi að ræða.
Möl sú er ekki gengur ofan í bik-
blöndu þessa er síðan fjarlægð og að
einni til tveim vikum liðnum er farin
önnur umferð og þá með möl meö
kornastærö 0 til 0,14 mm. Með því fæst
slétt og falleg áferð.
Fyrsteftiraðklæðing þessiersettá
er hún nokkuö viðkvæm og vildi B jami
Jóhansen byggingafulltrúi beina þeim
tilmælum tU ökumanna að aka ekki á
mikilli ferð í beygjum svo og að stunda
ekki spyrnuæfingar, a.m.k. ekki fyrst
umsinn.
Þegar þessum framkvæmdum er
lokið er varanlegt slitlag komið á nær
allar götur í Borgarnesi.
Það er verktakafyrirtækið Hagvirki
sem tekið hefur að sér að leggja klæð-
inguna.