Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Page 4
4
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985.
KOKKVRINN
Matreiðslunámskeið hefjast 9.
september.
Tökum að okkur matarveislur fyrir alls
konar mannfagnaði, t.d. brúðkaup, ráð-
stefnur, fundi, fermingar.
Upplýsingar og pantanir í síma 45430 kl.
13—18 alla virka daga.
KOKKVRINN
SmlAsbúO 4 -2io (iurAalKr
Síml 45430
■ NÝTT FRÁ BRAUN
Madeín Qermany
Nýkomnar berja- og safapressur
á BRAUN MULTIQUICK hræri-
vélarnar.
Við höfum prófað pressuna á
krækiberjum með ágætum
árangri.
Verð aðeins kr. 980,00.
VERSLUNIN
BORGARTÚNI 20.
Nauðungaruppboð
annaö og slöasta á Efstasundi 38, tal. eign Sölva Magnússonar, fer
fram eftir kröfu Landsbanka Islands, Guömundar Péturssonar hdl. og
Tryggingastofnunar rlkisins á eigninni sjálfri mánudaginn 16. september
1985 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á hluta í Möðrufelli 7, þingl. eign Svanlaugar Bjarna-
dóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Veödeildar
Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 16. september 1985 kl.
15.30.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
annað og siöasta á hluta í Kleppsvegi 150, þingl. eign Grétars Haralds-
sonar, fer fram eftir kröfu bæjarfógetans I Hafnarfiröi og Gjaldheimt-
unnar i Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 16. september 1985 kl.
11.00.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og síöasta á hluta I Rauðalæk /3, þingl. eign Hildar Eiriksdóttur,
Odds Eiríkssonar, Halldórs Eiríkssonar og Asgeirs Eiríkssonar, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík, Asgeirs Thoroddsen hdl., Bald-
urs Guölaugssonar hrl. og Ölafs Axelssonar hrl. á eigninni sjálfri mánu-
daginn 16. september 1985 kl. 11 -30. Borgarfógetaembættiö f Reykjav1k.
Niðurstöður rannsóknar á f ugladauðanum á Seyðisf irði:
Lentu í grút, vesl-
uðust upp og drápust
„Það leikur enginn vafi á því að
fugladauðinn á Seyðisfirði stafar af
því að flestallir fuglarnir hafa lent í
grút, veslast upp og drepist,” sagði
Ævar Petersen, fuglafræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun, er DV ræddi
við hann.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um blaðsins hefur verið mikið um aö
æðarfugl dræpist á Seyöisfirði
undanfarnar vikur. Hefur fuglinn
skriðið upp í fjörur og drepist þar. I
síöustu viku voru nokkur hræ send
Náttúrufræðistofnun til rannsóknar.
Þá fóru tveir líffræðíngar til Seyðis-
fjarðar til að rannsaka málið. Þeir
gengu fjöruna frá Hánefsstööum, inn
í bæ og út að Dvergasteini. Fundu
þeir á leið sinni á annað hundraö
dauðar æðarkollur. Einnig urðu þeir
að aflifa allmargar sem voru dauð-
vona.
Ævar sagði að á þessum tima væri
æðarfuglinn í fjaörafelli og væri því
ófleygur. „Hann getur því ekki flogið
út úr grútarflekkjunum ef hann
lendir í þeim,” sagöi Ævar. „Fuglinn
nær í alla sina fæðu meö köfun. Hon-
um eru þvi allar bjargir bannaöar ef
hann lendir í grút. Þá fer hann reglu-
lega upp í f jörur og situr þar. En til
þess aö komast þangað þarf hann að
synda í gegnum grútarflekki sem
hefur þær afleiöingar að hann
drepst.”
Ævar sagði að líffræðingarnir
tveir, sem fóru til Seyðisfjarðar,
hefðu reynt að telja þann æðarfugl
sem á vegi þeirra hefði orðið í fjör-
unni þar. Hefðu þeir talið um 400 lif-
andi fugla, þannig að ætla mætti aö
um 20% hefðu drepist. Væri hætta á
að fleiri dræpust ef ekki yrði að gert í
maigunarmálum.
Ævar kvaðst vera að ganga frá
skýrslu um málið. Hún yröi síðan
send þeim aðilum sem hefðu afskipti
af þvi. -JSS
Talsvert hefur boriö á grútarmengun í Seyöisfirði aö undanförnu, eins og sjá má á þessari mynd frá smá-
bátahöfninni. Æöarfuglinn er nú i fjaðrafelli og þvi ófleygur. Ef hann lendir í grútarflekkjunum getur hann
ekki flogið upp úr þeim en veslast upp og drepst. DV-mynd JG/Seyðisfiröi.
Fundir um mengunar-
málin fyrirhugaöir
— bæjarstjóri ræðir við f orráðamenn bræðslustöðvanna
„Mengunin frá bræðslustöðvun-
um hér er visst vandamál og meiri
en æskilegt er. Við ætlum aö ræða
þessi mál og sjá hvort ekki tekst að
koma þeim í betra horf,” sagði Þor-
valdur Jóhannsson, bæjarstjóri á
Seyðisfirði, í viðtali við DV.
Taisvert hefur borið á grútar-
mengun í firðinum að undanfömu.
Til dæmis er þykk brák í smábáta-
höfninni þar. Eins og fram kemur
annars staðar er talið að mikill
fugladauöi i firðinum eigi rætur að
rekja til mengunarinnar.
Aöeins önnur bræöslustöðin á
Seyðisfirði hefur verið í gangi að
undanfömu. Það er loðnubræösla
Síldarverksmiðju ríkisins. Bræöslu-
stöö Isbjarnarsins er að fara i gang
um þessar mundir.
Bæjarstjóri kvaðst nýlega hafa átt
fund með forráðamönnum SR þar
sem mengunarmálin hefðu verið
rædd. „Eg held aö menn hafi fullan
skilning á að svona gangi þetta ekki
mikið lengur,” sagöi Þorvaldur.
„Það eru uppi áform um að auka
mengunarvarnir héma, en það hefur
gengiðmjögseint.
Við verðum vitaskuld að tryggja
að það sé sæmilega lífvænlegt hér í
firðinum. Ég mun væntanlega eiga
fleiri fundi með forráðamönnum
bræðslustöðvanna þar sem þessi mál
verða rædd,” sagði Þorvaldur.
-JSS
Hatton-Rockall:
Fjögurra ríkja viöræöuríaösigi?
„Ég var ánægðari með viðræðurn-
ar en ég átti von á,” sagöi Eyjólfur
Konráð Jónsson, formaður utanríkis-
málanefndar Alþingis. Hann sat fund
með Dönum og Færeyingum í Kaup-
mannahöfn á þriðjudag ásamt Hans
G. Andersen sendiherra, dr. Tal-
wani, sérlegum ráðgjafa ríkisstjóm-
arinnar í Hatton-Rackall málinu, og
Einari Ágústssyni sendiherra.
I gærmorgun var fundur í utanrik-
ismálanefnd Alþingis og þar skýrði
formaður frá gangi viðræðnanna við
Dani og Færeyinga um sameiginlega
hagsmunagæslu ríkjanna um Rock-
allsvæðið. I þeim viðræðum var m.a.
rætt um að bjóða Irum og Bretum til
fjögurra ríkja viðræðna um máliö.
Sem kunnugt er hafa Irar og Bretar
gert tilkall til svæðisins ásamt Fær-
eyingum, Dönum og Islendingum.
„Við verðum í stöðugu sambandi
við Danina,” sagði Eyjólfur Konráð í
gær, „og hugsanlegt að annar við-
ræðufundur verði í nóvember eöa
desember.”
Danir komu með tillögu um vís-
indaáætlun sem dr. Talwani, ráð-
gjafa Islendinga, var falið að gera
kostnaðar- og framkvæmdaáætlun
um, það er hafsbotnsrannsóknir á
Hatton-Rockallsvæðinu sem vísinda-
menn beggja aðila ynnu að sameig-
inlega.
-ÞG