Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Page 8
8
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
DENG BODAR MIÐ-
STJÓRNARFUND TIL
FREKARIHREINSANA
Miöstjóm kínverska kommúnista-
flokksins er sögð koma saman til fund-
ar í dag, en fjölmiölar í Kína þegja
vandlega þar um. Talið er, aö þetta sé
til undirbúnings annars meiriháttar
fundar til þess að víkja öldruðum leiö-
togum úr trúnaðarstörfum fyrir yngri
og menntaöri mönnum.
Hong Kong-blaöið „Wen Wei Po”
sem þykir yfirleitt mjög vel heima um
þaö, sem gerist aö tjaldabaki í Peking,
staöfestir aö Deng Xiaoping, valda-
mesti maður Kína, hafi kallað saman
miöstjórnarfundinn. Þaö er í þriðja
sinn sem miöstjómarfundur er boöað-
ur í sögu kínverska kommúnistaflokks-
ins.
Menn þarna eystra hafa fyrir satt
aö skipta eigi um 20% forystumanna í
miðstjóminni.
Meðal þeirra, sem líklega veröa
látnir víkja, er Ye Jianying marskálk-
ur (87 ára) en hann hefur veriö and-
snúinn fráhvarfi frá stefnu Maos.
Einnig Hua Guo-feng, sem Mao valdi
sjálfur fyrir eftirmann sinn, og eins
Wang Dongxing sem var lífvörður
Maos og fylgir Hua aö málum.
Deng er sagður vilja losna viö enn
fleiri öldunga til þess aö tryggja sína
menn í sessi og áframhald þeirrar
stefnu, sem hann hefur markaö, þótt
hann sjálfur dragi sig aö fullu í hlé en
hann er oröinn 81 árs.
Hinir upprennandi leiðtogar Kína skulu ekki endurtaka mistök sinna fyrr-
verandi á hálum is stjórnmálanna.
Hin glæsilega Ariane-flaug Frakka flaug i 10 minútur og var svo sprengd
eftir að vél þriöja þreps fór ekki í gang.
Thailendingar skila
sjómönnum Bangladesh
og varðskip f ylgjast hér eftir með veiöunum á Bengal-f lóa
Bangladesh ætlar aö halda úti
varðskipum í Bengalflóa vegna fisk-
veiðideilunnar viö thailenska fiski-
menn sem virðast eiga bágt með aö
halda geröa samninga um aflaskipti
viö sjómenn frá Bangladesh og fleygja
sjómönnunum frekar fyrir borö en
deila aflanum.
Jafnframt er töluvert um smygl á
þessum slóöum og varðskipunum
ætlað aö hamla gegn því um leið.
Eins og sagt var frá í gær í DV er
talið aö Thailendingar (sem eftir sam-
komulagi eru með þriöjung áhafn-
arinnar frá Bangladesh) hafi varpað
110 Bangladesh-sjómönnum í sjóinn og
laumast heim til Thailands meö allan
aflann í stað þess aö skilja helming
eftir í Bangladesh. 140 hafa veriö
fluttir nauöugir meö togbátunum til
Thailands og yfir 100 er saknaö.
Thailandsstjórn hefur sent Bangla-
desh-sjómennina 140 áleiöis heim.
Dreyrasjúkir með ÓT
Dreyrasjúklingar ættu ekki aö dreyrasjúklingum, sem hann hefur
eignast böm því aö hættan er of mikil haft til meöferöar, bera vírusinn í
á því að böm þeirra mundu fæðast sér eftir aö hafa þegiö sýkt blóö.
með hinn banvæna sjúkdóm, Peter Jones, sem er yfirmaöur
ónæmistæringu — samkvæmt því stofnunarinnar, segir þaö taka sig
sem einn sérfræöinga dreyrasýkisrann- sárt aö þurfa aö segja sjúklingum
sóknarstöövarinnaríNewcastlesegir. sínum þetta en hjá því veröi ekki
Hann hefur rekiö sig á að 76 af 99 komist.
Mitterrand horfði á
Arianef laug sprengda
Á meðan sjálfur Mitterrand Frakk-
landsforseti horföi á neyddust
tæknimenn Frakka á geimskota-
pallinum í Frönsku Gíneu til að
sprengja hina nýju Ariane eldflaug í
tætlur 10 mínútum eftir aö hún haföi
verið send á loft.
Fagnaðarlæti á jöröu niöri uröu aö
algerri þögn þegar yfirmaöur öryggis
flaugarinnar ýtti á sprengjutakkann.
Þar með eyöilagði hann eldflaugina
sem evrópskir geimvísindamenn hafa
bundiö svo miklar vonir viö, og tvo
gervihnetti sem ætlaöir voru til fjar-
skipta. Tjóniö á fjarskiptahnöttunum
nemur um sex milljöröum íslenskra
króna.
Þetta er í fyrsta skipti sem Ariane-
geimskot mistekst. Tæknimenn urðu
aö eyöilegg ja flaugina þegar vél þriöja
þreps flaugarinnar fór ekki í gang.
„Þetta er áfall en ekki neinn heims-
endir,” sagöi fulltrúi Arianespace
geimstofnunarinnar.
Hingaö til hafa hinar 42 metra löngu
Ariane eldflaugar komiö 14
gervihnöttum á braut í níu geim-
skotum.
LizTaylormeð
matareitrun
Leikkonan Elizabeth Taylor er sögð
veik af matareitrun og missti í gær-
kvöldi af opinberri verðlaunaveitingu í
París þar sem Frakkar ætluðu aö veita
henni æðstu viöurkenningu, sem þeir
veita listafólki. Fresta veröur því þar
tilídag.
En i gær var annar Bandaríkjamaö-
ur heiðraöur af Frökkum fyrir lista-
framlag og var það tónskáldiö Car-
mine Coppoia (faöir leikstjórans
Francis Ford Coppola).
49fórustíjám-
brautarslysinu
Komið hefur í ljós aö árekstur járn-
brautarlestanna tveggja í Noröur-
Portúgal hafði ekki eins hroðalegar
afleiöingar og óttast var í fyrstu. Menn
kviðu þvi að um 300 kynnu aö hafa
farist en við björgunarstarfiö i gær og
leit í brakinu kom i ljós, aö 49 manns
höfðu farist.
Slysiö bar að í miöri kosuingabarátt-
unni í Portúgal (vegna 6. október-þing-
kosninganna) og hafa flokkamir aflýst
í dag í bili öllu skemmtanahaldi i
virðingarskyni við hina látnu.
Orsök slyssins er talin liggja í mis-
tökum stöðvarstjóra sem leyfði tveim
lestum (sinni úr hvorri áttinni) að fara
inn á sömu teinalögnina.
Owen vill
samsteypustjómir
David Owen, formaður sósíaldemó-
krata í Bretlandi, segir að búið sé að
breyta tveggja flokka stjóramálakerfi
landsins til frambúðar. Héðan í frá
verði stóra gömlu fiokkarnir tveir,
Verkamannaflokkurinn og íhalds-
flokkurinn, að sætta sig við samsteypu-
stjórnir.
Á flokksfundi sósíaldemókrata i vik-
unni sagði Owen að það væri ekki rétt
að hann hefði fært flokkinn lengra til
hægri, en bætti við: „Væntumþykja og
fastheldni fara saman.”
Lítiðboðiðí
ólympíuleikana '88
Suður-Kóreumenn hafa orðið fyrir
vonbrigðum með tilboð bandarískra
sjónvarpsstöðva um einkaréttinn til
sjónvarpsútsendinga frá
ólympíuleikunum i Seoul 1988. Hæsta
tilboð til þessa er 320 milljónir dollara,
en sagt er að Kóreumenn hafi gert sér
vonir um ekki minna en 700 milljónir
fyrir sjónvarpsréttinn.
Suður-Kóreaí
bílabransanum
Sérfræðingar í bílamálum segja að
Suður-Kórea sé hið nýja Japan í bíla-
framleiöslu. Nú ætlar Hyundai bif-
reiðaframleiðslufyrirtækið aö fara aö
flytja vinsælasta bíl sinn, Pony, til
Bandaríkjanna.
Pony bíllinn er þegar söluhæsti inn-
flutti bíllinn á Kanadamarkaði. Bíllinn
er pínulítill. Hyundai gerir ráð fyrir aö
geta selt 100.000 eintök af honum í
Bandaríkjunum undir nafninu Excel.
Vinnuafi er ódýrara í Kóreu en jafn-
vel í Japan.
Ekki er vitað hvernig Bandaríkja-
menn munu taka bílnum, nema hvaö
honum veröur varla tekiö vel í
Washington.
Margir féllu í Nicaragua
Stjórnarher Nicaragua drap 211
bandarískstudda skæruliöa í ágúst-
mánuði, að sögn Nicaraguastjómar.
Yfirlýsinga stjómarinnar sagði ekkert
um mannfall í liöi stjórnarhersins, en
sagöi aö sjö óbreyttir borgarar heföu
fallið f yrir höndum skæruliöa.
Yfirmenn innan hersins sögöu að
skæruliöar heföu ráðist á 19 ríkisbú í
Contales héraöi sem hingaö til hefur
veriö laust við ofbeldi.
Dýr verkfæri
Rannsóknarhópur hefur komist aö
þeirri niðurstöðu að Pentagon, varnar-
málaráðuneyti Bandarikjanna, sói enn .
stórum fjárfúlgum í hin einföldustu
eða ónauðsynlegustu verkfæri. Það olli
miklum umræðum, þegar í ljós kom í
fyrra, að Pentagon hafði borgað 7.600
dollara (300.000 kr.) fyrlr kaffikönnu,
þó almenningsflugfélög borguðu rétt
rúma 2.000 dollara fyrir svipaðan grip.
Nú segir rannsóknarhópurinn að
Pentagonið hafi blætt 655 dollurum í
áklæði á stólarma, en áður hafi
flugherinn áætlað að kostnaður við
gerð áklæðisins á vellinum myndi vera
um 27 dollarar.
Klukka, af þeirri gerð sem menn
trekkja upp fyrir svefninn, kostaði
20.000 krónur, skrifborðsskúffa kostaði
22.000 krónur, reykingabannsmerki
14.000 krónur og vasaljós rúmar 8.000
krónur.
Stríð eða ekki?
Fjörutíu áram eftir síðari heims-
styrjöld á Grikkland enn tæknilega í
stríði við Albaníu. Fyrir tveimur
vikum sögðust Grikkir ætla að aflétta
stríðsástandinu, en nú bendir allt til að