Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Page 13
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985. 13 HVERJIR BERA KOSTN- AÐINN? Fimmtudaginn 6. þ.m. birtist grein í DV frá Visa-notanda þar sem hann furðar sig á afstöðu kaupmanna til notkunar svokallaðra greiðslukorta. Ljóst er af lestri greinarinnar að Visa- notandinn hefur ekki kynnt sér báðar hliðar þessa máls og fellir því dóm í skjóli nafnleyndar. Þrátt fyrir nafn- leynd er mér ánægja að upplýsa hann. 1 upphafi vil ég vísa á bug dylgjum í garð islenskra kaupmanna varöandi myntbreytinguna og lýsi því sem fram kemur í grein hans sem staðlausum stöfum. Kostnaðurinn fer út í verðlagið En víkjum nú að því sem Visa- notandinn fullyrðir um greiðslukort. Hann telur að það sé mikill hagur fyrir neytendur að geta greitt varning með greiðslukortum og furðar sig á þvi að kaupmenn skulu ekki allir vera jafn- ánægöir með slík viðskipti. Ljóst er hins vegar að skoðanir kaupmanna eru misjafnar eins og oft er í stórum hópi, en ég fullyrði að þeir hafa flestir áhyggjur af þeim kostnaði sem er samfara notkun greiðslukorta. Það sem mótað hefur afstöðu kaupmanna, og þá sér í lagi matvöru- kaupmanna, í þessu máli er fyrst og fremst spurning um vöruverð. Kaup- menn telja að sá kostnaður sem verður vegna notkunar greiðslukorta leiöi óhjákvæmilega til hærra vöruverðs þegar til lengri tíma er litið. Kaupmaður sem lánar vörur sínar gegn greiðslukorti þarf að greiða kostnað sem er i fyrsta lagi þóknun til kortafyrirtækja og öðru lagi kostnað sem er samfara því að binda veltufé um langan tíma. Ef kaupmaður þarf aö taka lán til þess að mæta þessari fjárbindingu er kostnaðurinn orðinn tvöfaldur. Fjárbindingin orsakar það að kaupmaðurinn hefur ekki tækifæri til þess að staðgreiða vörur frá heild- verslun eða iðnfyrirtækjum og fá því lægra vöruverð. Álögur á þá sem ekki nota kort I mikilli verðsamkeppni undanfarna mánuöi er talið að meðalálagning í matvöruverslun hafi lækkað og hefur ^ „Matvörukaupmenn hafa varað við því að almenn notkun greiðslu- korta leiði til hækkaðs vöruverðs og telja að það þurfi að gera ráðstafanir til þess að þeir einir greiði kostnað, sem af kortaviðskiptum leiðir, sem notakortin.” „í raun 09 veru er nú verifl afl mismuna neytendum, sá sem greiðir vörurnar með peningum, hann fœr síflri kjör en sá sem fœr vörurnar lánaðar í allt að 5 vikur i 30% verflbólgu." því þessum kostnaði ekki verið velt út í verðlagið. Matvörukaupmenn hafa varað við því að almenn notkun greiðslukorta leiði til hækkaös vöruverðs og telja að það þurfi að gera ráðstafanir til þess að þeir einir sem nota kortin greiði kostnaö sem af kortaviðskiptum leiðir. I raun og veru er nú verið að mismuna neytendum; sá sem greiðir vörumar með peningum, hann fær síðri kjör en sá sem fær vörurnar lánaöar í allt að 5 vikur í 30% verðbólgu. Um fullyrðingar Visa-notandans um að kaupmenn ætli að taka upp nýja hætti í viðskiptum og bjóða þeim sem greiða með peningum afslátt hefur engin ákvörðun verið tekin í samtökum þeirra. Hvað varðar það álit Visa-neytand- ans um að 3% staðgreiðsluafsláttur freisti ekki neytenda almennt, þá held ég samt að verðmætamat almennings sé sem betur fer þannig að margur telji slíkt búbót. Af grein Visa-notandans má hins vegar ráða að þar sem hann telur að hægt sé að gefa 20% afslátt til þeirra viðskiptavina sem greiða vörur með Kjallarinn MAGNÚS E. FINNSSON FRAMKVÆMDASTJ. KAUPMANNASAMTAKANNA peningum í stað greiðslukorta sé kostnaður kaupmanna vegna greiðslu- kortanna 20%, sem er alveg fráleitt. I þessu sambandi má geta þess að meðalálagning matvöruverslana er á bilinu 15—18%, svo dæmi sé nefnt, svo allir geta séð að slíkt er ekki fram- kvæmanlegt. Innheimta söluskatts I grein sinni vekur Visa-neytandinn máls á þvi hagsmunamáli kaupmanna að fá innheimtulaun fyrir söluskatt. Eg er honum sammála og ég er viss um að almenningur telur slíkt sanngimismál þó að pólitískir ráðamenn komi í veg fyrir að slíkar hugmyndir nái fram að ganga. Kaupmenn innheimta stóran hluta af tekjum ríkissjóðs sem er söluskattur án þess að fá nokkra þóknun fyrir. Ýmsir opinberir embættismenn fá í þess stað sérstaka greiöslu fyrir það að taka við söluskattinum úr hendi kaup- manna. Ég efast um þaö að önnur eins þegnskylduvinna sé lögð á nokkra aðra stétt í landinu. Að lokum vil ég upplýsa Visa-neyt- andann um að jafnvel af þeirri þóknun sem kaupmenn greiða kortafyrir- tækjum, en hún er á bilinu frá 1—3%, þurfa kaupmenn að greiða söluskatt og er því þóknunin 25% hærri. Magnús E. Finnsson. AumkKja Hafnfirdingamir Hafnfirðingur með meðaltekjur eða lágar tekjur freistast kannski til að fara akandi til skemmtistaðarins og heim aftur til að vikulaunin fari ekki öll í súginn þetta eina kvöld. Það kost- ar nefnilega líka að komast inn á skemmtistaði og drekka þar áfengi. Auðvitað á Hafnfirðingurinn ekki að keyra fullur. En hann freistast til þess af efnahagsástæðum. Og allt er það bindindispostulunum í heimabænum að kenna. Aumingjans Hafnfirðingur- inn, sem síðan lendir í því óláni að drepa sig eða aðra vegna þess að hann ók fullur í sparnaðarskyni, getur ekki annað en óskað sér að það hefði verið skemmtistaður nær heimilinu. Þá hefði hann getað gengið eða tekið leigu- bíl fyrir lítinn pening. Áfengisbölið fært til Hafnfirsku bindindispostularnir 0 „Hafnfirsku bindindispostularnir setja kíkinn fyrir blinda augað þegar þeir halda að þeir geti stökkt áfengisbölinu á flótta.” setja kikinn fyrir blinda augað þegar þeir halda að þeir geti stökkt áfengis- bölinu á flótta. Þeim skjátlast. Þeir færa áfengisbölið aðeins til og frekar auka á það en hitt. Og þeir horfa al- gjörlega framhjá því að stór hluti fólks neytir áfengis af mestu hófsemi, sér og öðrum til gleði og upplyftingar. Góður matur og gott vín fer saman, og það er til nokkuð sem heitir áfengismenning. Furðulegast er kannski hvað Hafn- firðingar hafa tekið þessu ástandi með miklu langlundargeði. En þeir eru svo sem vanir háðungum. Ólafur Hauksson * „Hafnfirðingar, sem aatla sór afl kaupa ófangi, hvafi sam tautar og raular, verfia afl sœkja þafl til Reykjavikur."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.