Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Síða 14
14
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Svæðisstjórn Reykjanessvæðis málefna fatlaðra óskar
eftir skrifstofuhúsnæði til leigu undir starfsemi sína.
Óskað er eftir húsnæði 130—150 m2 að stærð. Æskileg
staðsetning er miðbær Kópavogs, Garðabæjar eða mið-
bær Hafnarfjarðar.
Nauðsynlegt er að húsnæðið henti vel fyrir notkun hjóla-
stóla og aðgengi sé gott eða þurfi lítilla breytinga við.
Tilboð sem tilgreini herbergjafjölda, leigutíma og leigu-
kjör sendist Svæðisstjórn Reykjanessvæðis, Lyngási 11,
210 Garðabæ, fyrir 23. sept.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Svæðis-
stjórnar á skrifstofutíma í síma 651056.
SVÆÐISSTJÖRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJANESSVÆÐI
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Teigaseli 1, þingi. eign Sveinbjörns Kristins-
sonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Veðdeildar
Landsbankans og Péturs Guðmundarsonar hdl. á eigninni sjálfri mánu-
daginn 16. september 1985 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta I
Kötlufelli 3, þingl. eign Péturs Hallgrímssonar, fer fram eftir kröfu Veö-
deildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 16. september 1985
kl. 15.45.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á hluta I Þórufelli 20, þingl. eign Haralds Bjarnasonar,
fer fram eftir kröfu Guðjóns A. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri mánu-
daginn 16. september 1985 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á hluta I Þórufelli 16, þingl. eign Sesselju Svavarsdótt-
ur, fer fram eftir kröfu Landsbanka Islands, Gunnars Guömundssonar
hdl., Helga V. Jónssonar hrl., Arnar Höskuldssonar hdl., Sigurmars K.
Albertssonar hdl., Sigríðar Thorlacius hdl., Sveins H. Valdimarssonar
hrl., Ólafs Axelssonar hrl. og Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni
sjálfri mánudaginn 16. september 1985 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta I hluta I Þórufelli 10, þingl. eign Guðrúnar Bjarnadótt-
ur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans og Útvegsbanka Is-
lands á eigninni sjálfri mánudaginn 16. september 1985 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta I
Þórufelli 10, þingl. eign Ragnhildar Eiösdóttur, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 16. september
1985 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i Rjúpufelli 42, þingl. eign Ágústs Agústsson-
ar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eignlnni sjálfri
mánudaginn 16. september 1985 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
annaö og síöasta á hluta í Rjúpufelli 35, þingl. eign Magnúsar Agnars-
sonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka ísfands, Búnaðarbanka Islands,
Ólafs Gústafssonar hdl., Árna Vilhjálmssonar hdl. og Gjaldheimtunnar í
Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 16. september 1985 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Menning Menning Menning
Erró í hópi fagurra stúlkna.. DV-mynd VHV.
„Ætiudu að skera
myndina og sprengja”
— Erró í viðtali um dáðar myndir og umdeildar
Erró er mættur með myndir sínar
til sýningar í Norræna húsinu. Sýn-
ingin hefst á morgun kl. 15.00. Erró
heldur innreiö sína í húsiö í þann
mund sem skáldahópurinn fríöi
heldur þaöan. Þaö er því skammt
stórra högga á milli í listalífinu.
Aö þessu sinni sýnir Erró þrjár
syrpur. Þær eru Stúlkumar frá
Marokkó, úr Þúsund og annarri
nóttinni og loks myndir af mandarín-
um byggðar á ljósmyndum frá Kína.
Myndir úr síöastnefndu syrpunni
hafa ekki verið sýndar áöur opin-
berlega.
Erró sagðist líta á „mandarína-
syrpuna sem framhald af Maosyrp-
unni, þótt hún heföi eiginlega átt aö
koma á undan. Ég fann mikiö af kín-
verskum myndum frá árunum um!
1880 á safni í Englandi. Þetta eru
myndir af mandarínum og f jölskyld-
um þeirra. Flestar voru myndimar
ósköp lélegar en ég gat notað um 20
þeirra til að vinna úr.”
Syrpan með myndunum sem Erró
kallar úr Þúsund og annarri nóttinni
er einnig framhald eldri syrpu sem
kennd er viö Þúsund og eina nótt.
Myndefnið hefur færst nær nútíman-
um en ævintýrablærinn er samur viö
sig. „Nú vantar mig einhvern til aö
skrifa um Þúsund og aöra nóttina,
hliðstætt verk og gömlu sögumar.
Þaöþarf mjög færan mann til aö gera
þetta. Eg ætti eiginlega að fara að
leita fyrir mér og prófa álitlega rit-
höfunda,” segir Erró og hlær við.
Syrpan um Stúlkurnar frá
Marokkó er byggö á póstkortum sem
listamaðurinn fékk á flóamarkaðn-
um í París. Póstkortin sendu fransk-
ir hermenn í Afríku heim á þeim ár-
um þegar Frakkar voru þar nokkurs
ráðandi. Kortin eru prýdd myndum
af stúlkum sem hafa orðið Erró til-
efni þessarar myndraðar.
„Núna hef ég lokiö öllum syrpun-
um sem ég hef unnið að undanfarið,”
segir Erró. „Það þýðir þó ekki að ég
sé hættur á þeirri braut. Eg hef
nógan efnivið til aö vinna úr til alda-
mótaenþaðerbetraaðveljavel.” 1
Það er heldur ekki að heyra annað'
en að nóg sé af verkefnum framund-
an. Hann á enn eftir að vinna í eitt ár
fyrir Renault bílaverksmiöjurnar
frönsku. Undanfarin ár hefur Erró
unniö að stóru verkefni fyrir þær og
hefur þegar skilað af sér 8 myndum
sem samið var um að hann geröi.
Þá er sýning í Frakklandi á dag-
skránni um mitt næsta sumar. Aö
auki tekur Erró einnig þátt í
Feneyja-biennalnum fyrir Islands
hönd á næsta ári. „Eg á enn eftir að
vinna verk fyrir þá sýningu en það
tekst,” segir Erró íbygginn.
Fyrr á þessu ári komst Erró í
heimspressuna vegna ásakana val-
inkunnra gyöinga um hatur á kyn-
stofni þeirra. Erró er mikið niðri
fýrir þegar rætt er um þetta mál sem
spratt út af mynd um blóðbaðið í
Beirút eftir innrás Israelsmanna.
„Ég frétti um óánægju gyðinganna
viku eftir að hún kom fram. Þá átti
að skera myndina í sundur og
sprengja hana og ég veit ekki hvað,”
segir Erró. „Þeir litu ekki á næstu
mynd við hliðina. Hún var um
arabana. En þetta gleymist mjög
fljótt, trúlega miklu fyrr en atburð-
irnir sem sagt er frá í myndinni. Mér
var í raun og veru algerlega sama
nema hvað ég var sá seinasti til að
frétta af þessu. Eg tók myndina
strax niður og setti aðra í staðinn.
Það var aldrei neinn efi í minum
huga hvað ég ætti að gera.”
Nú hafa margar mynda þinna aug-
ljóslega pólitiskt inntak.
„Já, ég hef lengi notaö atburði líð-
andi stundar í myndir mínar. En ég
vinn ekki á móti einhverju eða ein-
hverjum heldur segi ég frá því sem
gerist. I myndina umdeildu frá
Beirút notaði ég skopwnynd úr
spönsku blaði.
I Frakklandi, þar sem ég bý, er
útlendingum bannaö að koma nálægt
pólitík. Þetta var ákveðið með lögum
fyrir árið 1970 þegar ólgan var hvað
mest í Frakklandi. Fyrir mig sem
útlending er eiginlega betra að hafa
þetta svona því annars væri alltaf
verið að draga mann inn í allskonar
samtök. Eg hef alltaf fengiö að segja
það sem mér sýnist í Frakklandi.
Auövitaö hefði mátt nota máliö með
myndina frá Beirút til að vekja
meira uppnám ef ég hefði þrjóskast
við að taka myndina niður. Eg hafði
aftur á móti vit á aö gera það,” sagöi
Erró að lokum.
Sýning Erró hefst sem fyrr segir
kl. 15.00 á morgun og stendur til 29.
þessa mánaðar.
GK.
EINLEIKUR
GUNNARS KVARAN
Gunnar Kvaran sellóleikari.
Gunnar Kvaran verður einleikari á
fyrstu kirkjutónleikum Tónlistar-
félagsins. Á tónleikunum sem haldnir
verða í Bústaðakirkju þann 15. sept. kl.
20.30 leikur Gunnar þrjár einleiks-
svítur fyrir selló eftir J.S.Bach.
Gunnar Kvaran er fæddur í Reykja-
vík og hóf tónlistarnám hjá dr. Heinz
Edelstein. Síðan stundaði hann nám
hjá Einari Vigfússyni við Tónlistar-
skólann í Reykjavík. Frá 1964—1971
var Gunnar nemandi Erlings Blöndals
Bengtssonar við Tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn. Gunnar var
aðstoðarkennari hans frá 1968—1974.
Gunnar Kvaran hlaut tónlistar-
verðlaun Gades 1969. Framhaldsnám
stundaði hann hjá professor Reine
Flachot í Basel og París. Gunnar hefur
haldiö tónleika í Frakklandi, Þýska-
landi, Hollandi og á öllum Norðurlönd-
unum. Hann kennir nú við Tónlistar-
skólann í Reykjavík.
Tónleikar þessir eru hinir fyrstu af
þrennum kirkjutónleikum sem Tónlist-
arfélagið stendur fyrir í tilefni af ári
tónlistarinnar og 300 ára afmæli Bach
og Handel. Hægt er að kaupa áskrift að
þessum tónleikum, en einnig er hægt
að kaupa miða á hverja tónleika fyrir
sig.