Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Blaðsíða 16
16
DV. FÖSTUDAGUR13. SEPTEMBER1985.
Spurningin
Finnst þór bankarnir
almennt vera „með á
nótunum"?
Kristín Indriðadóttir:
Ja, ég held að ég sé bara ekki á sömu
nótum og bankarnir.
Guðjón Þorvaldsson:
Nú er ég ekki með á nótunum. Já, þú
meinar það. Já, mér finnst þjónustan
þokkaleg. Ég fæ allavega það sem ég
þarf.
Bjarni Magnússon:
Já, of mikiö með á nótunum. Alltof
mikið gert fyrir kúnnann. Ofhleðsla í
starfseminni.
Gunnar Ævarsson:
Já, mér finnst bankarnir fylgjast á-
gætlega með. Eg er ánægöur en þeir
mættu samt gera betur. T.d. breyta
afgreiðslutimanum. Opna fyrr og loka
seinna.
Olöf Þorvaldsdóttir (fyrrum banka-
mær):
Ég er ekki ánægð með bankakerfið.
Það er alltof svifaseint og tregt að
koma með nýjungar.
Dr. Björn Jóhannsson (vinnur ekki í
Iðnaðarbankanum):
Mér finnst Iðnaðarbankinn sá eini sem
„er með á nótunum”. Því til stuðnings
vil ég benda á táningakortiö og kaffið
en það er það besta í gjörvöllu banka-
kerfinu. Annars er þjónustan víða ágæt
en fyrirgreiðslan best hjá banka-
stjórum Iðnaðarbankans.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Lesandi vill afl barnafólkifl greifli fóstrum laun.
Látið bamafólkið
borga fóstrum laun
Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrifar:
Þjóðviljinn og Alþýðublaðið gera
mikiö úr þeirri tregðu sem er á því að
ráða fólk á gæsluvelli barna.
I þessu tilfelli sem öðrum er verið
að knýja á um hærri laun og er
nokkurs konar annars flokks
verkfall.
Það má ýmislegt segja um mis-
ræmi Iaunagreiðslna, en látið fólkið
greiða eigin þjónustu. Hún er hvort
sem er lítils metin af þeim sem njóta,
alltaf krafist meira.
Fyrst foreldrar barna láta vilja
sinn í ljós um bætt laun fyrir fólkið
sem vinnur á gæsluvöllum borg-
arinnar og hafa skorað á borgar-
stjórn oftar en einu sinni að hækka
laun fóstra, þá hlýtur það, sóma síns
vegna, að vera tilbúið að greiöa
fóstrum hærri laun. Það er annaö
sem aö þessu snýr og það er sá
hugsunarháttur, sem er að verða
algengari, að láta aðra greiða fyrir
sig, í þessu tilfelli borgina eða bæjar-
félög. Barnlaust fólk og bæjarfélögin
eiga aö borga og hafa allra böm á
framfæri sínu. Samt taka hlut-
aðeigendur ekkert tillit til þessa í
kaupkröfum sínum. Skattar til þess-
ara mála ættu að koma til frádráttar
á tekjum manna sem ekki eiga börn
eða búnir aö koma þeim á legg.
Það er oröin mikil tilhneiging að
vera á framfæri þess opinbera og
meira að segja atvinnurekendur
þykjast knúnir til þess.
Nei. Hækkið laun fóstranna og
látið barnafólkið borga. Það myndi
samsvara barnabótunum sem það
fær frá almenningi.
BRYNDIS
STÓD SIG
VEL
Gunnlaugur Valdimarsson hringdi:
Ég hlustaði á þáttinn Um daginn og
veginn á mánudagskvöldiö. Bryndís
Schram talaði og fannst mér erindi
hennar afar gott. Bæði merkilegt og
vel flutt. Mættu menn taka hana og
skoðanir hennar til fyrirmyndar.
m-----------------►
Hlustanda fannst Bryndis Schram
standa sig vel i þættinum Um dag-
inn og veginn.
HVERJIR
SVÍKJA?
Úlfar Sigurðsson á Eskifirði hringdi:
Einhver sem ekki þorir að tjá sig
undir fullu nafni en kallar sig B.Þ.B.
segir að bílstjórar á Eskifirði hafi eng-
in vinnukonulaun og lætur aö því liggja
að þeir svíki undan skatti.
Eitt vil ég segja þér, B.Þ.B. Þeir sem
senda skeyti sín úr launsátri eru tæp-
lega svara verðir. Ég hélt að það væri
aðeins einn maöur sem neytti hvorki
svefns né matar á meðan hann lærði
skattskrána utan að. Og bara til aö
svekkja sig á gjöldum annarra.
Núna sé ég að þeir eru tveir. Nema
hann og þú séuð sami maðurinn og læt
ég mér það í léttu rúmi liggja en kveð
þig með þessum orðum:
Þótt okkar gjöld þér ekki líki
þú ýmsa telur svikaríka.
Þeir sem halda að sumir svíki
svindla oft og stela líka.
Happdrættin:
Bflar sem
gangaút
0843—0144 skrifar:
Samtök um byggingu tónlistarhúss
hafa hleypt af stokkunum mikilli aug-
lýsingaherferð í kringum happdrætti
sitt en dregið veröur þann 12. október.
Mikil áhersla er lögð á fjölda vinn-
inga en þeir eru 20 Hondubílar, hver að
verðmæti 412.950 kr. eða samanlagt
8.259 þús. Otgefnir miöar eru 197.000.
Nú myndi grandalaus ætla að þetta
væri allnokkuð, 20 ánægðir miðaeig-
endur myndu eignast 20 gljáfægða
vagna þann 12. október. Þannig er það
bara ekki.
Um daginn var á lesendasíðu DV
rætt við mann hjá Toyotaumboðinu og
var eftir honum haft að þeir hjá um-
boöinu létu fjölmörgum happdrættum
bíla í té. Væri hending ef þriðjungur
þeirra lenti hjá ánægðum miðakaup-
endum. Happdrættið fengi venjulega
tvo þriðju vinninga. I mesta lagi gengi
helmingur vinninganna út en þaö væri
sérstakt.
Þessi væri raunin í happdrættum þar
sem dregið væri úr öllum miöum en
ekki bara seldum. I Landshappdrætti
Samtaka um byggingu tónlistarhúss er
dregið úr öllum miðum en þrátt fyrir
annars ítarlegar upplýsingar á miðun-
um kemur það hvergi fram. Af hverju
ekki?
Svarið er það að sé allt með eölileg-
um hætti þá ganga aðeins 6 bílar út og í
mesta lagi 10. Happdrættið fær hina.
Mig langaði bara að vekja athylgi á
þessu.
Hringið
kl. 13—15 eða
SKRIFIÐ
MYND MEÐ
STUÐMÖNNUM
í SJÓNVARPIÐ?
Stuðmannaaðdáendur skrifa:
Við erum hérna tvær sem dáum
Stuðmenn mjög og vorum í Atlavík ’85.
Okkur hefur verið sagt að það eigi að
sýna þátt með Stuðmönnum í sjón-
varpinu sem tekinn var upp í Atlavík.
Okkur langar gasalega að vita hvort
þetta er satt. Vonandi getur einhver
frætt okkur um þaö.
Ekki á vegum sjónvarpsins.
Hinrik Bjarnason hjá sjónvarpinu
tjáði okkur að þeir hefðu ekki myndað
Stuðmenn í Atlavík en hann hefði frétt
að einhverjir aörir heföu gert það. Þær
myndir hefðu ekki verið boðnar sjón-
varpinu svo hann vissi til.
Hljómsveitin Stuðmenn.