Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1985, Side 36
FRETT ASKOTIÐ (68) - (78) - (58) Sími ritstjórnar: 68 66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985. Marlboro ur sögunm — neita að prenta viðvaranir „Marlboro-sígarettur eru úr sög- unni hér á landi. Frcunleiðendumir neita að merkja viðvaranir á pakkana og án þeirra verða sígarettumar ekki fluttar inn,” sagði Gústaf Níelsson, skrifstofustjóri hjá ÁTVR, í samtali viöDV. Aðrir tóbaksframleiðendur vinna ötullega að því að prenta nýjar um- búðir á pakka sína eins og íslensk lög gera ráð fyrir. Hefur orðið nokkur töf á afgreiðslu sendinga vegna þessa og stefnir í skort á ákveönum tegundum á næstunni. En tóbakið kemur — allt nema Marlboro. -EIR. Snældur hækka vegna höfunda Sérstakt gjald hefur verið lagt á kassettutæki, myndbandstæki og snældur í kjölfar breytinga á höfunda- lögum er gerðar voru í fyrra. Tón- skáld, flytjendur og hljómplötuútgef- endur njóta góðs af þessu og sér sér- stök innheimtumiðstöð þessara aöila um að ná fénu inn. Kassettutæki hafa þegar hækkaö um 4 prósent í innkaupum og það sama má segja um myndbandstæki. Þá hafa verið lagðar 12,60 krónur ofan á inn- kaupsverð hverrar tónlistarsnældu og væntanlegt er 40—60 króna aukagjald á myndbönd. „Eg geri ráð fyrir að tónskáld, flytj- endur og aðrir noti þetta fé í menning- ariegum tilgangi,” sagði Sverrir Garð- arsson, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna, í samtali við DV. „En þetta eru engar óhemju fjárhæð- ir” -EIR. Keyrði á kú Maður á mótorhjóli keyrði á kú rétt sunnan við bæinn Hrafnagil í Eyja- firði í gærkvöldi. Slasaöist maðurinn á fæti og í andliti. Var hann fluttur á sjúkrahús á Akureyri þar sem gert var að sárum hans. Kúnni varð að lóga. Að sögn lögreglunnar var myrkur og slæmt skyggni þegar slysið varð og líklegt að maðurinn hafi ekki séð kúna fyrr en of seint. -EH. EINANGRUNAR GLER 666160 LOKI Gin og tónik takk, og grasköggla á merinal Bjoða 5 krona Samninganefnd Vinnuveitenda- sambands Islands í bónus- viðræðunum lagði fram tilboð laust fyrir klukkan eitt í nótt. Samninga- fundi varsíðan frestað og nýr fundur boðaöur klukkan 14 í dag. 1 tilboðinu felst hækkun á bónus- grunní um rúmar 5 krónur, að tíma- kaupið, sem bónusinn er grund- vallaður á, hækki úr 81 krónu upp í rúmar 86 krónur. Verkamannasam- segirGuðmundur J. bandið hefur krafist 30 króna hækkunar á tímakaupinu til þeirra sem hafa tveggja ára starfsreynslu, 20 króna hækkunar eftir sex mánaöa starfsreynslu og 10 króna hækkunar til þeirra sem hafa minni reynslu, Samninganefnd Verkamanna- sambandsins kom saman klukkan 10 í morgun til að ræða um tilboð Vinnu- veitendasambandsins. I viðræðunum í gær náöist sam- komulag um nýtt bónuskerfi, svo- kallaða fasta nýtingu. „Þar með er langflóknasta tæknilega vandamáliö frá og hægt að snúa sér að miklu einfaldari málum,” sagðí Guðmundur J. Guðmundsson, formaöur Verka- mannasambandsins, i morgun. Guðmundur sagði að þó að mikl- um áfanga væri náð væri ekki kom- inn grundvöllur til samninga. -KMU. Togari Bæjarútgerðar Reykjavikur, Hjörleifur, kom með um 130 tonna afla að landi i gaer. Afl- inn, sem samanstófl aðallega af karfa an einnig þorski, ýsu og ufsa, var settur i fjórtón frysti- gáma, hifður um borð í flutningaskipið Helgey sem sigldi með hann til Bretlands. Mannekla og bónusverkfall hjá BÚR eru ástæðan. DV-mynd S. Hestar komnir á far- þegalista Flugleiða Ovenjulegir farþegar fara með Flugleiðum til Kaupmannahafnar í kvöld. Eru það sjö íslenskir hestar sem verið er að selja til Danmerkur. Flug á borð við þetta verður fastur þáttur í vetraráætlun Flugleiða í vet- ur. Á þriðjudögum verða þeir Flug- leiðamenn með fragtflug til Kaup- mannahafnar, þar sem viðskiptavin- um er boðið upp á þessa þjónustu. Hefur fyrirtækið keypt þar til gerða gáma undir þessa farþega. Flugið í kvöld er þó aukaflug, þar sem vetr- aráætlun tekur ekki gildi fyrr en í október. Flugleiðir hafa gert samning viö danska fyrirtækið Samson Transport sem sérhæfir sig í dýraflutningum. Taka menn frá því við hestunum þegar lent er í Kaupmannahöfn og koma þeim áleiðis á ákvörðunar- stað, hvort sem hann er í Danmörku eða annars staðar. Flugfar fyrir einn hest til Kaupmannahafnar kostar 19 þúsund krónur. -KÞ Kartöflur geta verið með ýmsu móti, eins og þessi sem kom upp úr kartöflugarði á Eyrar- bakka. Ungt par iór þangaö á dögunum til að taka upp kartöflur úr garði ömmu annars þeirra. Fylglr það sögunni, að þegar þessi kartafla kom upp hafi hlaupið stemmning í parið og ku brúðkaup vera á næsta leiti. DV-mynd KAE. Kartöflur að norðan gefnar á Lækjartorgi „Traktor kemur inn á Lækjartorg klukkan 16 í dag með kerru fulla af nýj- um kartöflum úr Eyjafirði. Fólk fær plastpoka og má taka sér sjálft,” sagði Guðmundur Friöriksson, fram- kvæmdastjóri Landsverslunarinnar, nýstofnaðs fyrirtækis, sem ætlar að dreifa norðlenskum vörum á markað sunnanlands undir heitinu „Að norð- an”. Karftöflurnar veröa gefnar í dag en á morgun byrja Norðlendingar að dreifa þeim í verslanir á Reykjavíkur- svæðinu. „Við stefnum að því að flytja fleiri vörur að norðan. Hér er til dæmis framleidd einhver besta skinka á land- inu,”sagðiGuðmundur. -KMU. Óðal að hætta? Hádegisbarnum á Oðali hefur verið lokað. Samkvæmt heimildum DV er húsleigusamningur veitingahússins að renna út en ekki er vitað hvort barinn verður opnaður að nýju.Einnig er til í dæminu að veitingahúsinu verði alveg lokað. Jón Hjaltason, eigandi Oöals, vildi lítið tjá sig um þetta mál í samtali við DV. Hann sagði að ákveðið hefði verið að loka hádegisbarnum. Meira vildi hann ekki um máiið segja á þessu stigi. -EH. „Ekki hræddir en spenntir” — sagði Sigurður Bjarklind, sem ásamt fjórum félögum sínum setti fallhlífarstökksmet Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: Fimm fallhlífarstökksmenn úr Fall- hlífarklúbbi Akureyrar settu hæðar- met í gærmorgun þegar þeir stukku úr 21 þúsund feta hæð yfir Eyjafirði. „Aðalóvinur okkar á leiðinni var súrefnisskortur og kuldi, enda var 30 stiga frost þarna uppi,” sagði Sigurður Bjarklind, einn mannanna, í samtali við DV í morgun. „Við létum okkur detta í tvær mínútur áður en við opnuðum fallhlífarnar og fórum þá á 220 kilómetra hraða.” Fyrra hæðarmet er tæplega 16 þúsund fet en heimsmetið er 106 þúsund fet. Sá sem stökk þar var Bandaríkjamaður. En voruð þið ekk- ert hræddir á leiðinni niður? „Ekki beint hræddir, en ég get ekki neitað því að við vorum örlitið spenntir,” sagði Sigurður. Félagar hans fjórir voru Sigurður Baldursson, Omar Þór Eðvarðsson, Gunnar Aspar og Steindór Steindórs- son. -KÞ. 0 0 \0 k i 0 é

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.