Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Síða 27
DV. MÁNUDAGUR23. SEPTEMBER1985. 27 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir 1 Mike Schaub til Hauka leikur með þeim í Evrópuleikjunum gegnTaby Basket Í„Það má heita öruggt að Mike Schaub komi til liðs við okkur í I Evróputeikjunum gegn Taby Basket. _ Haun á að vera gíturlega góður ieik- I maður og fær öli bestu meðmæli frá . Jim Dooley, fyrrum þjáUara ÍR, en | hann hefur reynst okkur einstaklega ■ vel í þessu máli,” sagði Einar Bolla- I son, þjálfari Hauka, í samtaU við DV I ígærkvöldí. * Þrótt fyrir þessi tíðindi var hljóöið I ekki gott í þjálfaranum. „Ég veit að J þessi Bandaríkjamaður var fyrir I skömmu kosinn besti ieikmaðurinn í L________________________—. bandarískum háskólum af þeim sem 1 eru 1,80 metrar á hæð eða lægri. Þaö * segir sína sögu. En ég hef áhyggjur I af meiðslum hjó mörgum lykilmönn- - um liðsins. Pálmar er frá og um | helgina meiddust þeir Ivar Webster, ■ Olafur Rafnsson og Viðar Vignisson. I Allir tognaðir og þetta Utur ekki vel I út,”sagðiEinarBollason. I Þess má aö lokum geta að FIBA ■ hefur samþykkt seinkun á leikdög- I um, fyrri leikurinn verður 5. október : og sá síðari viku síðar í Svíþjóð. 'SK- | ________________________________J • Skot ríður af i átt að marki Stjörnunnar. Hermundur Sigmundsson og Hannes Leifsson koma engum vörnum við þrátt fyrir góða tiiburði. STJÖRNUSIGUR í LA-LA-LEIK Það væri synd að segja að leikur Fram og Stjörnunnar í fyrstu deUdinni í handknattleik hafi verið mjög burðugur. Meðalmennskan var alls- ráðandi. Framan af leiknum höfðu Framararnir undirtökin en leikur Stjörnunnar var árangursríkari og betri undir lokin og Garðabæjarliðið vann verðskuldað, 21—18. Stjörnumenn voru fyrri til að skora og var Hannes Leifsson þar aö verki. Egill Jóhannesson jafnaöi skömmu síðar og allan hálfleikinn leiddu Framarar með einu til tveimur mörk- um. Forysta þeirra í hálfleik, 10—8, hefði í raun átt að vera stærri en ítrekað runnu hraðaupphlaup Fram- ara út í sandinn, eða þá að Brynjar Kvaran varði. Framararnir byrjuðu seinni hálf- leikinn af krafti og á nokkrum mínút- um var forysta þeirra orðin 5 mörk, 14—9. En þá var eins og úr þeim væri allt loft. Vörnin hjá Stjömunni styrkt- ist og sóknarlotur Framara báru eng- an árangur. Jens Einarsson hafði hins vegar nóg að gera viö að hirða knöttinn úr netinu hjá sér og fyrr en varöi var staðan jöfn, 14—14. A endasprettinum seig Stjarnan fram úr og tók bæði stigin með sigri sínum, 21—18. t lifti Stjömunnar var Brynjar Kvaran sterkur. Hann varfti á þýðtngarmiklum augnablikum. Hanncs var ógnandi og Sigur- jón Guðmundsson stóft sig vel í vinstra hom- inu. Hann sýndi lipurleika sem marga aðra leikmenn Stjömunnar skortir tilt innanlega. Hjá Fram skarafti enginn einn fram úr. Liftið skorti ögun, eins og Stjörnuliftift reyndar Uka. Leikkerfi og fléttur vom óséður viftburður i þessum leik. Mörkin: Stjaraan: Hannes 6 (2), Gylfi 5, Hermundur 5, Sigurjón 4, Skúli 1. Fram: Dagur 5, Hermann 4, Egill 4 (1), Andrés 2, Agnar 1, Jón Ami 1, Brynjar Stefánss. 1. Brottrekstur 2 min: Fram 2, Stjarnan 3. Maftur leiksíns Brynjar Kvaran. -JKH. Ellert varði 5 víti Valdimar Grimsson skoraði eilefu mörk gegn FH og á þessari mynd Bjarnleifs er hann að skora eitt þeirra. Valdi með ellefu — Valsmenn áttu ekki í mjög miklum erfiðleikum með að tryggja sér sigur á Islandsmeisturum FH er liðin mættust í Hafnarfirði á laugardag í fyrsta leik' liðauna í íslandsmótinu. Valur sigraði eftir að staðan hafði verið 13—8 Val í vil í leikhléi. Þessi eins marks sigur Valsmanna var smærri en efni stóðu til og sigur liðsins hefði átt að verða stærri. Valdi- mar Grímsson fór á kostum í Valslið- inu. Hann skoraði 11 mörk en Þorgils Ottar Mathiesen var markahæstur FH- inga með 8 mörk. Valsmenn verða greinilega með sterkt lið í vetur en ekki mega leik- menn þó við því að tapa niður miklu forskoti. Tveir leikmenn voru öðrum betri í leiknum gegn FH. Það voru þeir Valdimar Grímsson og markvörðurinn Ellert Vigfússon sem varði mjög vel í leiknum. Hann gerði sér lítið fyrir og varði ein fimm vítaköst í leiknum og munar um minna. Á framansögðu sést aö þáttur þeirra Valdimars og Ellerts hefur verið stór í sigrinum ljúfa gegn FHálaugardag. Og að sama skapi og það er gott að verja fimm víti í einum og sama leikn- um er það afleitt að láta verja hjá sér fimm víti í einum leik. Þetta verða FH- ingar aö laga og gera það örugglega. Þrátt fyrir þennan ósigur gegn Val er ekki ástæða fyrir FH-inga að örvænta. Þeir eiga vel að geta náð langt í vetur. Menn leiksins: Valdimar Grímsson og Ellert Vigfússon Val. SK. Fékk rautt spjald eftir 2 mínútur — Mlkil barátta og spenna í leikjunum í 2. deild íslandsmótsins í handknattleik um helgina. Þór vann Hauka í Eyjum og ÍR vann Breiðablik óvænt Óvæntur sigur ÍR-inga IR-ingar undir stjórn hins nýja þjálf- ara síns, Guðmundar Þórðarsonar, unnu mjög óvæntan sigur gegn Breiða- bliki í leik liöanna í 2. deild í gærkvöldi en leikið var í Digranesi. IR skoraði 23 mörk en UBK 21. Blikar voru fyrir leik þennan álitnir koma helst til greina sem sigurvegarar í 2. deild í vetur en greinilegt er aö allt getur gerst. Þá léku Ármenningar og Afturelding og sigruöu Ármenningar nýliðana í 2. deild með 27 mörkum gegn 25. -SK. Fró Friðbirni 0. Valtýssyni, frétta- manni DV í Vestmannaeyjum: Þór náði að sigra Hauka í miklum baráttuleik liðanna hér í Eyjum á laugardag. Þór skoraði 23 mörk en Haukarnir 20. Staðan í leikhléi var 11— 8. Þórarar voru oftast yfir í leiknum og virkuðu allan tímann sterkari aðilinn. Haukar náðu þó að jafna, 16—16, en aldrei að ná forystu. Þrátt fyrir aö bar- áttan hjá liðunum hafi verið í fyrir- rúmi að þessu sinni og handknatt- leikurinn, sem þau buðu upp á, hafi ekki verið mikið fyrir augaö, er greini- legt aö þessi félög eiga bæði eftir að vera með í toppbaráttunni í vetur. Þaö bar til tíðinda í leik þessum aö einum leikmanni Hauka, Guðmundi Haraldssyni, var vikið af leikvelli eftir aðeins tveggja mínútna leik fyrir fólskulegt brot á einum leikmanni Þórs. Var þetta brot nánast það eina sem sást til Guömundar í leiknum. Sigurbjörn Oskarsson skoraði 9 mörk fyrir Þór en Snorri Leifsson var markahæstur hjá Haukum, einnig með níu mörk en fjögur úr vítum. Sigur- björn skoraði úr einu víti. HRESSINGARLEIKFIMI KVENNA 0G KARLA Haustnámskeið hefjast fimmtudaginn 26. sept. nk. # Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskólans og Í- þróttahýs Seltjarnarness. • Fjölbreyttar æfingar æfingar — slökun. Innritun og upplýsingar i sima 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir^ íþróttakennari. músík — dansspuni — þrek

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.