Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Síða 2
2
D V. MIÐ VIKUDAGUR 27. NÖVEMBER1985.
Fáninn blaktir fyrir framan sýslumannsbústaðinn.
Hólmavík:
Esso-fáni blaktí
hjá sýslumanni
Frá Kristjáni Jóhannssyni,
fréttaritara DV á Hólmavík:
Einhverjir gárungar gerðu sér
glaðan dag aðfaranótt sunnudagsins.
Fóru þeir um plássið með alls kyns
uppátækjum og hafa vafalaust
skemmt sér hið besta.
Það var á sunnudagsmorgun sem
íbúar á Hólmavík tóku eftir því að
sérkennilegur fáni blakti við hún við
bústað sýslumannsins á staðnum.
Þegar að var gáð reyndist það vera
Esso-fáni sem bærðist í golunni á
stönginni. Trónaði fáninn þarna all-
an daginn þar sem húsráðendur voru
ekki heima.
En hinir uppátektarsömu höfðu
ekki látið þar við sitja. Fánann höfðu
þeir tekið frá Esso-skálanum á staðn-
um en í hans stað höfðu þeir dregið
mottu úr rækjutrolli að hún á fána-
stönginni við skálann. Þar blakti sú
ókennilega dula þegar að var komið.
MIKLAR
SKEMMDIR
Á KJALLARAÍBUÐ
— þegar hita veiturör sprakk
Slökkviliðið í Reykjavík var kallað
að Nýlendugötu 6 í gær. Þar lagði
mikla gufu út úr kjallaraíbúð. Hitinn
var geysilegur. Það var ekki hægt
að reka höfuð inn um glugga.
Slökkviliðið varð að brjótast inn í
íbúðina til að kanna hvað olli hinni
miklu gufu. Tveir reykkafarar voru;
sendir inn. Þá kom í ljós að hita-
veiturör hafði gefið sig og sprungið.
Kjallaraíbúðin fylltist af gufu og
50 cm hátt vatnsborð var á heita
vatninu sem var inni í íbúðinni. Hún
var mannlaus. Mjög miklar skemmd-
ir urðu í íbúðinni, enda var hún eins
oggufupottur. - SOS
Tillaga á Alþingi:
Okriðstöðvað
þegar í stað
Þingmenn Alþýðubandalagsins
hafa lagt fram frumvarp á Alþingi
sem gerir ráð fyrir að okurlánastarf-
semi verði þegar stöðvuð.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að fram-
vegis verði öll skuldabréf skráð á
nafn og handhafaskuldabréf þar með
afnumin. Jafnframt að handhafa-
skuldabréf verði skráð á nafn þegar
greitt verði af þeim eftir gildistöku
laganna. Þá er gert ráð fyrir því að
skattstofur fái tafarlaust upplýsingar
um ný veðskuldabréf, kaupendur og
seljendur þeirra. Sagt er að þetta
ákvæði sé forsenda þess að vaxta-
tekjur verði skattlagðar.
Samkvæmt frumvarpinu verða all-
ir, sem starfrækja verðbréfamiðlun,
að fá leyfi til þess hjá viðkomandi
ráðherra. Slík leyfi verða gefin út til
tveggja ára. Þá er bankaeftirlitinu
heimilt að hafa reglulegt eftirlit með
þessari starfsemi. Einnig verður
bankaeftirlitið að samþykkja form
skuldabréfa. Lögð er sú skylda á
Seðlabankann að hann ákveði há-
marksvexti. Ef bankaeftirlitinu ber-
ast upplýsingar um töku hærri vaxta
en þetta hámark getur það án tafar
hafið rannsókn. Bankaeftirlitið get-
ur lagt til við ráðherra að hann svipti
viðkomandi leyfi til rekstrar. Ráð-
herra getur þá, ef honum sýnist svo,
afturkallað starfsleyfið án viðvör-
unar.
í greinargerð með frumvarpinu1
segja flutningsmenn að núverandi
ástand sé óviðunandi og óhjákvæmi-
legt að gripið verði til tafarlausra
aðgerða gegn okrinu. - APH !
Málefni trillukarla rædd á Alþingi:
FARIFYRIR
HÆSTARÉTT
— segir Ólaf ur Þ. Þórdarson
„ Málið verður að fara fyrir Hæsta-
rétt til að kanna hvort almannaheill
er þannig að hún komi í veg fyrir
að 70 trillukarlar geti stundað sjó-
sókn,“ sagði Ólafur Þórðarson,
Framsóknarflokki, þegar málefni
trillukarla voru rædd á Alþingi i
gær. Hann taldi að sú ákvörðun að
stöðva veiðar smábáta bryti í bága
við stjómarskrána þar sem kveðið
er á um að ekki megi leggja bönd á
athafnafrelsi manna.
Það var Ámi Johnsen, Sjálfstæðis-
flokki, sem hóf umræðuna. Hann
sagði að alvarlegt ástand hefði nú
skapast með banni veiða smábáta.
r
Hann skoraði á sjávarútvegsráð-
herra að endurskoða hug sinn og
veita leyfi fyrir veiðum fyrir jól.
Sjávarútvegsráðherra sagði að
smábátar hefðu fengið úthlutað 11
þúsund lesta kvóta. Nú væru þeir
hins vegar búnir að veiða 24 þúsund
tonn. Hann benti einnig á að fjöl-
margir hefðu nú þurft að stöðva sínar
veiðar vegna þess að þeir væm búnir
með kvótann sinn. Núverandi kerfi
leyfði ekki að tillit væri tekið til
einstakra manna. Hins vegar upp-
lýsti hann að samkvæmt nýju frum-
varpi væri gert ráð fyrir að veiðar
smábáta hæfust strax eftir áramót.
Næst tóku átta þingmenn til máls,
sem hvöttu sjávarútvegsráðherra til
að slaka á veiðibanni smábáta. Höf-
uðrökin voru að þessar veiðar stjóm-
uðu sér sjálfar með hjálp frá veðri
og vindum.
Það kom nokkuð annað hljóð í
kútinn þegar Garðar Sigurðsson,
Alþýðubandalagi, tók til máls. Hann
sagði að þetta væri dæmalaus
heimtufrekja í trillukörlum. Þeim
hafði verið úthlutaður 11 þúsund
tonna kvóti og væm þeir nú búnir
að hala inn 24 þúsund tonn. Þing-
menn, sem tækju upp málstað trillu-
karla, væru aðeins að nudda sér upp
við atkvæði þeirra. - APH
|
I
Varðskipsmenn á leið til bæjarfógetans á Akranesi til að skýra frá því að þeir hefðu tekið trilluna Rún
AK 27 að ólöglegum veiðum.
Nýstof nað félag smábátaeigenda á Vestfjörðum:
Stórhættuleg haftastefna
„Haftastefha Halldórs Ásgrímssonar
og Kristjáns Ragnarssonar er mjög
óréttlát og stórhættuleg til lengri
tíma litið.Svo segir m.a. í ályktun
nýstofnaðs félags smábátaeigenda í
ísafjarðarsýslum. Var félagið stofnað
sl. laugardag.
í ályktun félagsins segir ennfremur
að haftastefna ofangreindra aðila sé
óréttlát, m.a. vegna þess að hún
meini fólki að njóta búsetu sinnar
með tilliti til legu fiskimiða, á sama
tíma og annað fólk njóti til fulls
nálægðar við Miklagarð, Hagkaup
og ríkisbáknið. Hún sé líka óréttlát
vegna þess að hún taki meira tillit
til hagsmuna fjármagnsstofnana og
stórfyrirtækja en fólks. Það sæist
m. a. á því að eitt aðalviðfangsefni
Halldórs Ásgrímssonar á þessu ári
hafi verið að reyna að koma í veg
fyrir að 1/3 hluti íslenskra sjómanna
fengi að veiða meira en 30% af heild-
arbolfiskaflanum.
Síðan segir:„Hún er stórhættuleg
vegna þess að hún stefnir í sjálfheldu
vegna falskrar skráningar á verð-
gildi stærri fiskiskipa í efhahags-
reikningum útgerðanna. Ef innflutn-
ingur á fiskiskipum yrði leyfður í dag
myndu mörg stórútgerðarfyrirtæki
landsins fara sömu leið og Hafskip.-
Efnahagsreikningarnir myndu á
einni nottu breytast úr slarkfærri
stöðu í algjört gjaldþrot.“
I stjórn hins nýstofnaða félags voru
kjörnir: SveinbjÖrn Jónsson formað-
ur, Höskuldur Ragnarsson, Hálfdán
Kristjánsson, Jón Hálfdánarson og
Kristinn Haraldsson. . JSS
Fjórhliða stöðvunarskyldan:
Borgarráð hikandi
Fjórhliða stöðvunarskyldan, sem
umferðamefnd Reykjavíkur sam-
þykkti í síðastliðnum mánuði að
setja á gatnamót Hagamels og
Furulmels, hefur! ekki enn hlotið
samþykki borgarráðs. Borgarráð
vill skoða málið betur.
Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi
lagði fram tillöguna í umferðar-
nefnd. Tilgangurinn með stöðvun-
arskyldu úr öllum áttum á umrædd
gatnamót er að draga úr hraða
bílaumferðar við Melaskóla án
þess að þurfa að setja upphækkun.
Umferðamefnd leitaði meðal
annars álits lögreglustjóra. Svar
lögreglustjóra var að ekkert í lög-
um mælti gegn fjórhbða stöðvun-
arskyldu.
Katrín Fjeldsted sagði í samtali
við DV að þessi tegund gatnamóta
væri alþekkt í Bandaríkjunum og
Kanada. Svíar hafa einnig tekið
upp fjórhliða stöðvunarskyldu á
gatnamót hjá sér.
-KMU.