Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Síða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985.
5
.. ■ ' ' . ....
„Áfram Hafskip — ekki Eimskip”
í umræðunni undanfarið um fjár-
hagsörðugleika Hafskip hefur lítið
verið rætt um óvissuna sem ríkir
meðal starfsmanna fyrirtækisins.
— segja starfsmenn Hafskips
Um 300 manns eiga á hættu að
missa atvinnu sína ef rekstur
skipafélagsins hættir. DV heim-
sótti vinnustað þessa fólks. í við-
tölum við nokkra starfsmenn kom
fram að heitasta óskin er að rekstr-
inum verði haldið áfram. Þeir ótt-
ast það eins og heitan eldinn að
Eimskip yfirtaki reksturinn, Eim-
skip hafi ekki áhuga á starfsmönn-
unum heldur aðeins áhuga á að
komastyfir viðskiptavini Hafskips.
-APH.
„Höfum ekki fengið að vita
nóg,“ segir Guðmundur í flutn-
ingadeild.
„Missum
líklega
atvinnu
okkar”
— segir Guðmundur
Atlason í flutningadeild
„Menn héma eru spenntir að sjá
hvað verður úr þessu öllu saman.
Eins og málin standa núna þykir
mér sennilegast að við munum
missa atvinnuna. Við viljum helst
að skipafélagið haldi áfram rekstr-
inum, hugsanlega í samstarfi við
SÍS, en okkur líst ekkert á að
Eimskip yfirtaki reksturinn því þá
munu allir missa atvinnuna,“ sagði
Guðmundur Atlason, starfsmaður
í flutningadeild, við DV.
Hann var spurður um það hvort
starfsmenn hefðu fengið nægilegar
upplýsingar.
„Við höfum ekki fengið að vita
nógu mikið. Ef við vissum hver
staðan er og hvað stendur til að
gera er ekkert því til fyrirstöðu að
taka þátt í hlutaf]ársöfnun,“ sagði
Guðmundur.
APH.
Valur Páll Þórðarson og Ragn-
heiður Ágústsdóttir, deildar-
stjórar hjá Hafskip.
„Hefur ekkert veríð spáð f
hvað verður um starfsmennina”
„Það er urgur ímönnum"
— segir Sigurður Rúnar Magnússon, trúnaðarmaður hjá Haf skip
„OKKUR LÍST EKKIÁ EIMSKIP”
— segja símastúlkurnar
„Hafskip og Islenska skipafélag-
ið, góðan daginn,“ segja símastúlk-
urnar þegar hringt er í skipafélagið
í Hafnarhúsinu.
„Við emm ennþá að vinna hjá
Hafskipi og höfum ekki fengið til-
kynningu um annað. Við vitum
reyndar að það er búið að ákveða
að senda starfsfólki Hafskips upp-
sagnarbréf," segja símastúlkurnar,
þær Sigurborg Sigurjónsdóttir og
Guðlaug Bergmann, við DV.
Þær hafa báðar starfað hjá Haf-
skip í 6 ár og eru sammála um að
þar sé gott að starfa. „ Það væri
mjög leitt ef félagið gæti ekki starf-
að áfram. Við vonum bara það
besta en okkur líst ekki á að Eim-
skip yfirtaki reksturinn,“ segja
þær. - APH
„Okkur líst ekki vel á ástandið.
Menn hér óttast það að missa at-
vinnuna. Það er nokkur urgur i
mönnum hérna um hvernig hefur
verið að þessu staðið. Hér eru alls
konar kjaftasögur í gangi,“ segja
verkamennirnir þeir Sverrir Dav-
íðsson og Helgi Bjarnason.
Helgi segir að þeir vilji fá að vita
meira um hvað er að gerast. Hann
er þegar byrjaður að leita sér að
nýrri vinnu. Þeir félagar eru sam-
mála um að uppsagnir séu á leið-
inni. - APH
Andinn er góður hérna þrátt fyrir þetta ástand segja símastúlkurnar
hj á Hafskip og íslenska skipafélaginu. - DV-myndir GVA
„MEGUM ENGAN
TÍMA MISSA”
— segir formaður starfsmannafélagsins
„Það er fullt af baráttuþreki eftir
meðal starfsfólksins að reyna að
gera allt til þess að rekstrinum
verði haldið áfram. Það er ljóst að
við megum engan tíma missa.
Reyndar höfum við enga einfalda
lausn á þessu máli. Menn hér eru
hliðhollir sínu gamla félagi. Það
hafa verið teknar nokkrar dýfur
með félaginu áður en nú er óneit-
anlega meiri óvissa rikjandi en
nokkru sinni fyrr,“ sagði Valur
Páll Þórðarson, formaður starfs-
mannafélagsins, við DV.
Hann sagði að það væru ýmsar
spurningar sem brynnu ó vörum
starfsfólksins þessa stundina. Til
’dæmis hvað yrði um það hlutafé
sem það hefði lagt í fyrirtækið í
vor. Líklega væri það á bilinu 4 til
7 milljónir króna.
„Menn hér eru óónægðir yfir því
að fúndurinn, sem við héldum,
snerist upp í pólitískar deilur og
gagnrýni á stjóm fyrirtækisins.
Við boðuðum ekki til fundarins til
þess að ræða málin á þeim grund-
velli. Við vildum fyrst og fremst
vekja athygli á stöðu starfsmanna
fyrirtækisins. Ég held samt að það
hafi komist til skila. Og við teljum
að nú þurfi snör handtök til bjarga
því að við verðum ekki atvinnu-
laus,“sagðiValurPáll. - APH.
„I umræðunni undanfarið hefur
bara verið talað um það hvort
bankinn tapi eða ekki. Það hefur
alveg gleymst að spá í hvert tapið
verður hjá þeim 300 mönnum sem
eiga á hættu að missa atvinnu sína.
Ástandið er ekki glæsilegt á at-
vinnumarkaðinum, sérstaklega
ekki ef maður þarf að leita að vinnu
á sama tíma og hinir 300,“ segir
Sigurður Rúnar Magnússon, trún-
aðarmaður hjá Hafskip, við DV.
„Við höfum ekki vitað meira um
þetta en staðið hefúr í fjölmiðlum.
Spurningin, sem snýr að okkur, er
hvort við höldum okkar lífsviður-
væri. Þess vegna viljum fá að vita
meira um framvindu mála. Við
Dagsbrúnarmenn óttumst það að
verða gleyptir af Eimskip. Þeir
hafa ekki áhuga á okkur heldur
viðskiptavinum Hafskips.
Eina ósk okkar er að íslenska
skipafélaginu takist að krafla sig
út úr þessu og að félagið verði
áfram rekið eins og Hafskip. Hér
er gott að starfa, launin eru betri
en annars staðar og fyrirtækið er
hæfilega stórt," sagði Sigurður
Rúnar. . APH
Páll Sigurðsson, Guðmundur Guðvarðarson, Sigurður Rúnar Magnússon, Örn Bjarnason og Sverrir
Davíðsson. „Við stöndum á bak við félag okkar og eigum ekki aðra ósk heitari en að rekstrinum
verði haldið áfram.“
Sverrir og Helgi óttast það að missa atvinnuna.