Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Side 8
8
D V. MIÐ VIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Einn af farþegum egypsku vélarinnar, egypsk kona, nýtur að-
hlynningar flugvallarstarfsmanns í Valetta að hildarleiknum lokn-
um
Þessi mynd var tekin skömmu fyrir flugránið. Einn ræningjanna
hefur komið út í dyrnar.
Stóö Líbýa aö baki
flugráninu á Möltu?
Mubarak Egyptalandsforseti segist
hafa sagt Líbýumönnum að hann
hafi þá grunaða um að hafa staðið
bak við flugránið um síðustu helgi.
Hann sagði að mennimir, sem rændu
Egyptair Boeing 737 flugvélinni á
leið frá Aþenu til Kaíró, hefðu lotið
leiðsagnar manns sem væri á hóteli
í Líbýu.
Alls fórust 59 menn í árás egypskra
hermanna á flugvélina á meðan hún
var í Valettu á Möltu.
Mubarak ræddi við fréttamenn í
gær. Hann sagði að utanríkisráð-
herra landsins hefði hringt í starfs-
bróður sinn í Líbýu og sagt honum
frá gruni Egypta. Líbíski utanríkis-
ráðherrann hefði beðið þann
egypska að hringja aftur í sig eftir
15 mínútur en það hefði síðan ekki
tekist.
Mubarak vildi ekki segja hverjir
hryðjuverkamennirnir væru en sagði
að þeir væm Palestínumenn en ekki
útsendarar PLO. Hann neitaði því
með öllu að Egyptar íhuguðu árás á
Líbýu vegna flugránsins.
í Valettu sagði talsmaður stjómar-
innar, Paul Mifsud, að farþegar
hefðu bent á Túnisbúann Omar
Marzouki, eina eftirlifandi flugræn-
ingjann, sem leiðtoga hryðjuverka-
mannanna. Marzouki er nú á sjúkra-
húsi.
Yfirmaður hersveitanna, sem börð-
ust við flugræningjana, sagði í sjón-
varpsviðtali í gærkvöldi að menn
hans hefðu ekki skotið einu skoti á
farþega.
„Ég skora á hvern sem er að sýna
mér lík með byssukúlu í sér frá einum
minna manna,“ sagði hann. Yfirmað-
urinn sagði að flestir hefðu dáið eftir
að flugræningjarnir vörpuðu fos-
fórsprengju inn í farþegarýmið.
Gríska stjórnin gagnrýndi árásina
á vélina á Möltu og sagði að hún
hefði verið ótímabær. Grískir frétta-
menn í Valettu sögðu að flugræningj-
amir hefðu verið um það bil að leysa
úr haldi 17 Grikki þegar ráðist hefði
verið á flugvélina.
Bflþjófur fær ekki
að læra aö aka bfl
Vestur-þýski bílaþjófurinn Andre-
as Kraetschman situr enn í fangelsi
þrátt fyrir að ýmis fyrirtæki hafi
þoðist til að þjálfa hann og gefa
honum peninga til endurmenntunar.
Kraetschman var handtekinn fyrir
einu ári og dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir bílstuld og að keyra án
þess að hafa ökuréttindi. Hann bað
í ár um að fangelsisvist hans yrði
lengd svo að hann gæti lært iðngrein.
Málið vakti mikla athygli.
Eftir öll atvinnutilboðin bað Kra-
etschman um að fá að komast fyrr
út úr fangelsinu en því var neitað.
Tilboðin sem hann fékk vörðuðu öll
ökuþjálfun.
Slettu málningu
álögguna
Fjórir lögreglumenn særðust og
ellefu kjamavopnaandstæðingar
voru handteknir í mótmælaaðgerð-
um við herstöðina i Newbury á
Englandi þegar komið var þangað
með stýriflaugar í gær. Herstöðin er
kennd við Greenham og hefur áður
komið mikið við sögu í mótrpælaað-
gerðum kjamavopnaandstæðinga.
Að þessu sinni slettu mótmælendur
málningu á ökutæki og í augu lög-
reglumanna. Fjórir þeirra þurftu áj
læknishjálp að halda.
Kvæntist
38sinnum
102 ára gamall smábóndi í Xinj-
iang-héraði í Kína hefur alls kvænst
38 sinnum á ævinni. 33 aðrir öldung-
ar, allir komnir yfir tírætt, hafa
kvænst minnst tvisvar og allt upp í
fimmtán sinnum.
En helmingur íbúa Xinjiang er
múhameðstrúar. Þar eru 865
manneskjur, sem orðnar em hundrað
ára, allt sveitafólk. Alls er vitað um
nær 1700 Kínverja núlifandi á svo
háum aldri.
300þúsundböm
skrifuöu leiö-
togunum tveim
Nær 300 þúsund böm skrifuðu
árangurslaust þeim Reagan Banda-
ríkjaforseta og Gorbatsjov, leiðtoga1
Sovétríkjanna, þegar þeir funduðu í
Genf og báðu þá að skipa nefnd til
þess að fjalla um tilmæli þeirra um
frið.
Bréf og teikningar bámst frá 30
löndum og bíður bréfahrúgan núna
Reagan og Gorbatsjov í Genf
sinntu ekki bréfum barnanna.
Pahne
býður
sættir
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
ritara DV í Svíþjóð:
Olof Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, leitar nú sátta við Káre
Willoch, starfsbróður sinn í Noregi.
Að sögn sænskra og norskra fjöl-
miðla hefur lengi verið gmnnt á því
góða milli Palme og Willoch.
Eitt helsta ágreiningsefni þeirra
hefur verið hver skuli vera sameigin-
legur frambjóðandi Norðurlanda til
embættis forstöðumanns flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna
nú þegar Daninn Poul Hartling læt-
ur af því embætti. Sænska stjórnin
hafði ætlað Anders Tunborg, fyrrum
vamarmálaráðherra Svíþjóðar,
þetta embætti en áður en samkomu-
lag milli þjóðanna hafði náðst lýsti
norska stjómin einhliða yfir fram-
boði Tom Vrálfins, sendiherrra Nor-
egs hjá Sameinuðu þjóðunum.
Að sögn sænska sjónvarpsins í
gærkvöldi mun Palme hafa skrifað
Willoch bréf í fyrradag þar sem hann
býðst til að hætta við framboð Tun-
borg ef Norðmenn dragi einnig fram-
boð Vrálfins til baka og þjóðirnar
reyni í staðinn ásamt hinum Norð-
urlöndunum að koma sér saman um
einhvern þriðja frambjóðanda sem
hefði þá góða möguleika á að ná
kjöri. Ekkert hefur enn frést af við-
brögðum Willochs við þessu sátta-
boði Palmes.
Norðurlandaráð:
Ráðstefna
um mengun
Norðurlandaráð ætlar að bjóða til
alþjóðlegrar ráðstefnu þingmanna
Evrópulanda um loftmenguniná í
álfunni. Er fyrirhugað að hún standi
jí þrjá daga og hefjist 8. september
næsta haust.
Boðið verður til ráðstefnunnar
þingmönnum 16 landa, bæði austan
tjalds og vestan, og mest áhersla lögð
á að fá þingmenn frá löndum sem
liggja að Norðursjónum og Eystra-
saltinu.
Norðurlönd hafa lengi ýtt á það
að alþjóðlegt átak verði gert gegn
súru regni sem er að eyðileggja skóga
á meginlandinu. Hafa þau gagnrýnt
Breta fyrir að ganga ekki í lið með
öðrum Evrópuríkjum sem hafa sam-
þykkt að draga 30% úr brennisteini
er sleppt er út í andrúmsloftið.
í kjallara í Genf. - Holger Guessefeld,
vestur-þýskur maður sem gekkst
fyrir þessum bréfaskrifum barnanna,
segist naumast trúa því enn að það
skyldu ekki verða nein viðbrögð við
bréfaskriftum barnanna.
Gefaúrséraugun
til vísindanna
35 helstu blaðamenn, skáld og list-
málarar Bangladesh hafa lofað því
að gefa hornhimnuna úr augum sér
þegar þeir eru gengnir. Tilefnið var
að ár er liðið frá því byrjað var þar
í landi að hvetja fólk til þess að gefa
nýtanlega líkamshluta af sér þegar
það kveður þennan heim.
„Látið öðrum eftir hornhimnuna
úr augum ykkar svo að annað fólk
fái notið dagsbirtunnar þegar þið
þurfið sjálf ekki augna ykkar með
lengur,“ sagði í áskorun þessara 35
manna ogkvenna.
Það voru samtök lækna sem