Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Qupperneq 16
ISLAND SEM NEGRAPARADÍS
Þjóðólfur skrifar:
í HP um daginn var virkilega
fróðleg grein þar sem vakin var
athygli á þeirri stórmerkilegu stað-
reynd að okkar stórbrotna land er
orðið að paradís á jörð fyrir unga
og ólofaða negra. Munu innlendar
þokkagyðjur falla marflatar fyrir
þeim, fjaðurmögnuðum og smjað-
randi.
Okkur hinum, sem förum yfirleitt
alltaf einir heim eða með eiginkon-
una við hlið, sámar að horfa upp
á þetta, enda þótt þetta komi okkur
ekkert við, eða hvað?
Við lestur þessarar greinar vakna
spurningar um samskiptin við
okkar ágæta varnarlið. Fróðir
menn hafa sagt mér að hermenn
„ofan af Velli“ megi ekki vera utan
dvalarstaðar síns eftir klukkan
hálftólf. Þessu á ég ákaflega erfitt
með að trúa, efast ég í það minnsta
stórlega um framkvæmdina. Marg-
oft hef ég Iséð hermenn á skemmti-
stöðum (t.d. Hollywood .og Broad-
way) allt til klukkan þrjú að nóttu.
Það væri fróðlegt ef einhver mér
betur vitandi upplýsti mig um
hvemig þessum útivistarreglum er
háttað og þá ekki síður hvemig
framkvæmdin er á eftirliti þeirra
reglna. I framangreindu viðtali
lýsti einn negranna því yfir að
hann hefði „farið heim“ með 15
íslenskum blómarósum á 2 mánuð-
um. Þetta er aldeilis ótrúleg yfir-
lýsing fýrir mig sem á langri ævi
hef ekki einu sinni kynnst svo
mörgum konum en vekur jafnframt
áleitnar spurningar um hvort það
hafi allt gerst fyrir klukkan hálf-
tólf. Ég hefði gaman af því ef ein-
hver ábyrgur aðili í utanríkisþjón-
ustunni gæti upplýst mig um þessi
mál.
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985.
Skyldu íslendingar ekki geta dregið fram lífið án greiðslukort-
anna?
Undanfarín 2 1/2 ár hafa svokölluð
greiðslukort verið notuð sem gjald-
miðill í matvöruverslunum. Bankar
og sparisjóðir sáu sér leik á borði
með því að koma þessum kortum í
umferð m.a. til að þurfa ekki að lána
peninga í víxlaformi.
Þessi kortanotkun hefur leitt af sér
að margir rúlla matarkaupunum á
undan sér með kortunum og sjá jafn-
vel enga leið til að koma sér út úr
þessu.
Við skulum taka dæmi. Ef korthafi
missir kort vegna vanskila er hann
kominn á svartan lista hjá bönkum
og sparisjóðum svo hann á ekki kost
á víxlum, ávísanareikningi eða ann-
arri fyrirgreiðslu um óákveðinn
tíma.
Greiðslukortafyrirkomulagið hef-
ur óhjákvæmilega í för með sér
hækkun á vöruverði. Þannig eru
þeir sem ekki nota greiðslukort farn-
ir að greiða kostnað fyrir aðra.
Þá lenda matvörukaupmenn í
greiðsluérfiðleikum og fá þá í mörg-
um tilfellum dráttarvexti vegna
vanskila. Einnig missa þeir úr velt-
unni þannig að þeir verða að slá sinn
viðskiptabanka með svo og svo mikl-
um vöxtum til að standa skil á
ákveðnum gjöldum, söluskatti o.fl.
o.fl.
Það orkar tvímælis hvort þessi
greiðslukort eru ekki brot á við-
skipta- og samkeppnislögunum þar
sem kaupmaðurinn greiðir fyrir
veitta þjónustu. Fyrir nokkrum árum
auglýsti kaupmaður nokkur að ef
viðskiptavinirnir keyptu fyrir þús-
und kr. gæfi hann hlutaðeigandi tíu
egg í kaupbæti. Hann var stöðvaður
vegna ákvæða í viðskipta- og sam-
keppnislögunum.
Það var stefna núverandi ríkis-
stjórnar að koma verðbólgunni nið-
ur, hvort sem henni hefur tekist það
eða ekki.
Notkun greiðslukorta er verð-
bólguhvetjandi og ætti skv. því að
vera bönnuð. Það er einsdæmi að
hægt sé að kaupa matvörur með
greiðslukortum. Það er hvergi hægt
annars staðar en á íslandi. Hvers
vegna ættu íslendingar frekar að
nota greiðslukort til matvörukaupa
en aðrarþjóðir?
Það væri fróðlegt að fá svar frá
ábyrgum aðilum um hvort greiðslu-
kortanotkun almennings er lögleg
samkvæmt íslenskum lögum.
6773-4750
Skifyrði fyrir
móttökuskermum
Frá blaðafulltrúa Póst- og síma-
málastofnunar:
í DV 19.11. sl. óskar sjónvarpsnot-
andi frekari skýringa frá blaðafull-
trúa Pósts og síma vegna svara við
fyrirspurnum í blaðinu 5.11. sl.
í svari til sjónvarpsnötanda kemur
fram að Póstur og sími geti sett upp
móttökuskerm sé þess óskað. Sjón-
varpsnotandi spyr: „Hvað þýðir
þetta?“
...__ i"''' L —
HRINGIÐ
í SÍMA
68-66-11
kL 13 til 15
Þetta þýðir aðeins að Póstur og
sími getur sett upp móttökuskerm á
hús hafi umsækjandi um slíkt öll
tilskilin leyfi. Umsækjandi þarf, eins
og fyrr segir, að taka á sig öll gjöld
sem kunna að falla, búnaður hans
þarf að samræmast þeim reglum sem
gervitunglaeigendur setja og leyfið
er bundið við einkanotkun, t.d. fjöl-
skyldu eða vinnustað, en ekki íbúa
heillar götu svo dæmi sé nefnt.
En til þess að fá að setja upp
skerm þarf að fá leyfi frá Bygg-
ingarnefnd Reykjavíkurborgar sé
um borgina að ræða, því að slíkt
breytir útliti húsa, auk þess þarf
samþykki meðeigenda í húseign-
um að vera fyrir hendi sé um
fjölbýlishús að ræða.
Varðandi gervitungl DBS (Direct
Broadcasting Satellite) skal aðeins
ítrekað hér að ekki þarf leyfi Pósts
og síma til móttöku sendinga sem
ætlaðar eru almenningi, en áður þarf
að fá heimild bygginganefnda til að
setja upp móttökuskerm.
Um meðhöndlun og sendingar
innlends dagskrárefnis, sem vikið er
að í svarinu og sjónvarpsnotandi vill
fá nánari skýringar á, er vísað til
gildandi útvarpslaga.
Borðum lunda,
bönnum rjúpnaveiðar
Uffi skrifar:
Ég vil byrja á að þakka DV fyrir
gott blað, sérstaklega fyrir helgar-
þlaðið. Þá finnst mér greinar Jónasar
Kristjánssonar um mat og drykk
hinar ágætustu, þó ég hafi reyndar
lítið vit á mat. Minn uppáhaldsmatur
er lundi, reyktur, soðinn og steiktur.
En það er ekki sama hvernig hann
er reyktur. Á Tanganum í Vest-
mannaeyjum fæst góður reyktur
lundi og ég tek hann fram yfir rjúpu.
í rauninni finnst mér að ætti að
banna rjúpnaveiðar því hvað kostar
að leita að þeim rjúpnaskyttum sem
týnast? Að þeim kostnaði meðtöldum
yrði jólarjúpan áreiðanlega dýr.
Að lokum vil ég þakka fyrir prýði-
leg skrif Ellerts, einnig léttar og
skemmtilegar greinar þeirra Ólafs
B. Guðnasonar og Benedikts Axels-
sonar. Þær les ég alltaf.
Uffi
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
I
|
%
1
Spurningin
Finnst þér prófkjör eiga að vera
opineða lokuð?
Guðmundur Hafsteinsson nemi:
Opin, því ég vil að hægt sé að kjósa
einstaka menn í stað flokks. Opið
prófkjör kynni að vera misnotað en
það er hvort sem er svo margt mis-
notað í þjóðfélaginu.
Ragnar Þorsteinsson, starfsmað-
ur Ríkisútvarpsins: Það á endilega
að hafa þau opin og gefa öllum
tækifæri til að kjósa sína menn. Ég
hef ekki trú á misnotkun, það þyrfti
að borga mér mikið fyrir að kjósa í
fleiri en einum flokki.
Ólafur Lárusson kennari: Opin,
en þetta er samt erfið spuming þar
sem andstæðingar viðkomandi
flokks geta reynt að fella ákveðna
menn. Ég myndi samt aldrei gera
slíkt, þvi stjórnmálamenn eru að
mínu mati aðeins fyrir sjálfa sig en
ekkifyrirmig.
Guðrún Jónsdóttir húsmóðir:
Próíkjör ættu ekki að vera til, því
það er aldrei neinn góður maður á
lista. Stjórnmál em svo langt frá
raunveruleikanum og prófkjör
breyta engu, þau em bara aukaliður.
Magnea Gunnarsdótt.ir banka-
starfsmaður: Lokuð, annars er svo
mikil hætta á misnotkun. Nei, ég
myndi aldrei gera svoleiðis, ég er
ekki nógu pólitísk til þess.
Katrín Pétursdóttir bankastarfs-
maður: Ég hef lítið hugsað um þetta
en líklega er betra að hafa þau opin.
Ég myndi aldrei kjósa nema í mesta
lagi í einum flokki.
A1R4
ER NOTKUN GREIÐSLUKORTA
BROT
Á LÖGUM?
arcir, ■ AÍ199