Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Side 17
D V. MIÐ VIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985.
17
SÝKTAR SKEPNUR,
SKEMMT KJÖT
Kjötkaupandi skrifar:
Þær eru válegar fréttimar, sem
birtar eru okkur neytendum, um
kýlapest, smitvírus, riðu og sjúk-
dóma sem herja á íslenskan búfénað.
Nú nýlega kom um það frétt í NT
að í Suðursveit í A-Skaftafellssýslu
væri allt fé meira eða minna smitað
af kýlapest eða smitvírus. Kinda-
skrokkar falla úr 1. niður í 4. flokk.
Þessi vírus hefur verið viðloðandi
sauðfé síðastliðin átta ár en aldrei
borið meira á honum en nú - að sögn
dýralæknis. Sýkingin lýsir sér þann-
ig að eitlar á afturlærum og bóg
bólgna og það grefur í þeim. Bólu-
setning hefur verið reynd en með
litlum árangri.
Og hvað? Erum við að borða kjöt
af þessum skepnum? Samkvæmt
fréttinni er kjötið „að segja má alger-
lega ósmitað eftir að búið er að skera
meinið af‘. En hver getur fullyrt það?
Auðvitað er þetta mál, rétt eins og
riðuveikin margfræga, slík stórfrétt
að hún ætti að vera á forsíðum allra
blaða, ásamt ráðleggingum dýra-
læknis um hvað sé til bragðs að taka.
En aðeins NT gerir þetta að frétt.
Þar var einnig upplýst að á Siglufirði
hefði frystiklefi í sláturhúsi fjáreig-
enda verið innsiglaður eftir að þar
hafði verið komið fyrir kjöti af fé sem
slátrað var í haust í trássi við bann
landbúnaðarráðuneytis! Vekja þess-
ar fréttir íslendingum engan skrekk?
Hafa þeir ekki áhuga á að vita hvort
þeir eru sífellt að kaupa kjöt af
sýktum fénaði?
Við vitum fullvel að kaup á lamba-
kjöti hafa minnkað til muna því það
er verðlagt hærra en efni fólks leyfa.-
En þar sem kjötið er, skv. NT, af
sýktum skepnum þá kaupir það að
Bréfritari spyr hvort á markaðnum sé kjöt af sýktum skepnum.
sjálfsögðu enginn maður. Og hvað
með allan innmatinn af riðuveika
fénu: hjörtu, lifur, nýru og sviða-
hausa. I Helgarpóstinum er sagt að
í stað nautakjöts sé okkur aðallega
selt kýrkjöt. Er íslenskur almenning-
ur ekki gjörsamlega úti á þekju þegar
rætt er um matvæli? Skyldi vera
eitthvert samband milli tregðu varn-
arliðsins að kaupa íslenskar land-
búnaðarafurðir 'og þeirra staðreynda
sem hér er rætt um?
Aðalatriðið fyrir okkur neytendur
er að vita hvort á markaðnum sé
kjöt af sýktu fé, kjöt sem kýli og
gröftur hefur verið skorið frá.
Blaðamaður hringdi í Pál Pálsson
yfirdýralækni og hafði eftir honum
að viðkomandi héraðsdýralæknir
fylgdist náið með þessum sýktu
skepnum. Páll kvað enga ástæðu til
að hafa áhyggjur því öllu kjöti á
landinu væri skipt eftir ákveðnum
reglum í 3 flokka. Kjöt í fyrsta flokki
má éta hrátt, 2. flokk þarf að sjóða
eða steikja en 3. flokki er hent og
það á við um kjöt af sýktum skepn-
um.
Lesendur Lesendur Lesendur
Gerist
áskrifendur!
Áskriftarsíminn
á Akureyri er 25013
ATHUGIÐ!
Tekið er á móti smáauglýsingum
í sima 25013 og á afgreiðslunni,
Skipagötu 13.
Afgreiðsla okkar
Skipagötu 13
er opin virka daga kl. 13—19
og laugardaga kl. 11 — 13.
Blaðamaður
Frjálst.óháO dagblaö
á Akureyri,
Jón G. Hauksson, hefur aðsetur á sama stað.
Vinnusími hans er 26613, heimasími 26385.
VIÐ FÆRUM YKKUR
Frjalst.óhaö dagblaö
DAGLEGA
Frjalst.ohaö dagblaö
Afgreiðsla — auglýsingar — ritstjórn,
Skipagötu 13 — Akureyri.
Sími 25013.
^JRARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBC®
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-85014: Aflstrengir og ber koparvír.
Opnunardagur: Þriðjudagur 14. janúar 1986 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og
verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
miðvikudegi 27. nóvember 1985 og kosta kr. 200,-
hvert eintak.
Reykjavík 25. nóvember 1985,
Rafmagnsveitur ríkisins.
Bíla- og hraðbátakaupendur
Hér er tækifæri til hagstæðra kaupa. Munum selja í dag
og næstu daga nokkra bíla og báta. Komiðæða hringið og
gerið góð kaup.
§g|j|Ppægj«»
Malibu station árg. '79, V8 vél, sjálfsk., aflstýri og afl-. bremsur, nýsprautaður utan og innan og allur nýyfir-| farinn, sérstaklega fallegur og góður bíll.
AMC árg. '79, 6 cyl., beinskiptur, 4ra dyra, vökvastýri og aflbremsur, bíll í góðu ástandi.
má
Buick Riviera árg. '77, 8 cyl., sjálfsk., vökvastýri og afl- bremsur, veltistýri, rafm. í sætum og rúðum, bíll í algjörum sérflokki.
1 : WmM - ~ 1 ■ »-• • . ■
Nýr SV 21 fets með 136 hp BMW dísilvél með stærri
gerðinni af stýrishúsi sem er innréttað mjög haganlega og
klætt með plussi. 2stk. talstöðvar, hljómflutningstæki af
bestu tegund, dýptarmælir koden loran, eldavél og
vaskur, miðstöð með termóstati og svona mætti lengi
telja. Þetta er mjög vandaður og fallegur fjölskyldubátur.
Camaro árgerð 1981 með 6 cyl. V-vél, sjálfskiptur,
aflstýri og aflbremsur, nýsprautaður, svartur og rauður
með strípum, mjög fallegur bíll í sérflokki.
Einnig höfum við til sölu góða Mótunar- og Flugfiskbáta.
BÍLASMIíXJAN W /
KYNDXU
Stórhölða 18 II. \
Upplýsingar í síma
685040 og 35051 á
daginn og 671256
á kvöldin.