Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Page 32
32 DV. MIÐ VIKUD AGUR 27. NÓVEMBER1985. ~ Jt Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Frá Evu til Marilyn Kleópatra. Og Marilyn Monroe. Katrín fyrsta, keisaraynja Rússa. Joan Collins er í miklu uppáhaldi hjá Sviðsljósi eins og lesendur hafa áreiðanlega orðið varir við upp á síðkastið. íslendingar verða að láta sér nægja að sjá Joan Collins skarta fegurð sinni á síðum dagblaða og á videoi því íslenska sjónvarpið virðist ekki jafnhrifið af henni og Sviðsljós. Sjálf- sagt bara fordómar vegna þess að hún erkomin á sextugsaldurinn ... Joan Collins var heiðruð sérstak- lega af tímaritinu Life á dögunum. Blaðið lét taka myndir af leikkon- unni þar sem hún sat fyrir í gervum ýmissa vafasömustu kvenhetja sög- unnar. 'Heiðurinn er sérstakur að því leyti að aðeins ein leikkona/fyrirsæta hefur orðið þessa aðnjótandi og það er Marilyn Monroe. Marilyn tryggði stöðu sína eftirminnilega á stjömu- himninum er hún sat fyrir hjá Lífi (sem sagt þessu gamla sem gefið er út fyrir vestan!) árið 1959. Joan Collins sat fyrir í hlutverkum Evu (já, þeirrar fyrstu!) í sjálfum aldingarðinum, Kleópötru, Elísabet- ar fyrstu, Katrínar miklu, bófa- drottningarinnar Belle Starr, dans- meyjarinnar Josephine Baker, Wall- is Simpson, þeirrar er giftist Breta- kóngi, og að síðustu Marilyn Mon- roe. Joan Collins setti aðeins eitt skil- yrði fyrir því að sitja fyrir: „Ég bregst ekki við á réttan hátt ef það er kona sem tekur myndirnar. Ég vil mann.“ „Allt um Evu“ eða næstum því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.