Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Síða 15
DV. LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986.
15
Harrison og Ringo Starr, til tónlist-
arsögunnar harla lítið. Strax á fyrstu
árum Bítlanna sýndi Ringo Starr að
hann gat verið liðtækur leikari.
Þrátt fyrir fjöldann allan af kvik-
myndum hefur hann ekki enn getað
sannfært gagnrýnendur um að hann.
sé betri á hvíta tjaldinu en bak við
trommurnar. Ringo býr nú til skiptis
í íbúðum sínum í Beverly Hills,
Monte Carlo eða London og er ný-
orðinn afi. Þá syngur hann inn á
hljómplötur með jöfnu millibili -
svpna af gömlum vana.
HARRISON
Á meðan situr George Harrison í
höll sinni í miðborg Lundúna og
• ræktar rófur í garðinum. George er
nú 42 ára gamall og þó að hann hafi
aldrei setið í framsætinu í Bítlavagn-
inum er hann rann sem greiðast,
hefur hann aldrei skort fé. Hann er
sá eini af Bítlunum sem heldur
tryggð við austræna dulspeki, speki
sem félagar hans litu á sem stundar-
gaman þegar blómin voru látin tala
og pípurnar reyktu sig allt að því
sjálfar.
Annað áhugamál George Harrison
er kappakstur. Hann á safn kapp-
akstursbíla og marga félaga í stétt
ökumanna. Þá hefur hann fjármagn-
að ýmsar kvikmyndir sem vakið hafa
heimsathygli og ber þar hæst The
Life of Brian og Time Bandits með
Monthy Pyhton-hópnum.
Árið 1971 gaf George Harrison út
stórplötuna All Things Must Pass,
heilar þrjár skífur í einum pakka.
Var þar margt góðra laga, til dæmis
My Sweet Lord sem dómstólar ák-
váðu síðar að væri alls ekki eftir
George Harrison. Tónsmíðar George
Harrison eftir það hafa helst minnt
á kennslubókardæmi um hvemig
milljónamæringar eyða tíma sínum
í hljóðverum þegar tíminn er nægur
og buddan í lagi.
- EIR.
•KULDABRÉFUM
iR STÓRGOÐA
\ FYLLSTA
IÚR ERLENDRI
OG SKAPA
Ð FYRIR ÞIG,
VRNABÖRN ?
Fjárfestir þú í hefðbundnum spari-
skírteinum getur lánstíminn lengst
orðið 14 ár. Binditíminn er þrenns
konar, að þínu vali, 3, 4 eða 6 ár.
Veljir þú þriggja ára binditíma
eru ársvextir 7,0%, fjögurra ára
bréf bera 8,5% vexti og sex ára bréf
9,0% vexti.
Að binditíma liðnum er þér
heimilt að innleysa skírteinin og þá
getur ríkissjóður einnig sagt þeim
upp. Segi hvörugur aðilinn skírtein-
unum upp bera þau áfram ofan-
greinda vexti til loka lánstímans.
Verðbætur, vexti og vaxtavexti
færðu greidda í einu lagi við inn-
lausn.
B. Spariskírteini með vaxtamiðum.
Á spariskírteinum með vaxtamið-
um er lánstíminn lengst 14 ár.
Tvisvar á ári færð þú greidda
vexti gegn framvísun vaxtamiða
sem skírteinunum fylgja. Vextirnir
eru 8,16% á ári.
Fjórum árum eftir útgáfu skír-
teinanna er þér heimilt að innleysa
þau, og þá getur ríkissjóður einnig
sagt þeim upp. Segi hvorugur aðil-
inn skírteinunum upp bera þau
áfram ofangreinda vexti til loka
lánstímans.
SDR Gengistryggð spariskírteini.
Þú getur einnig valið gengistryggð
spariskírteini með fimm ára láns-
tíma. Vexti færðu greidda í einu
lagi að lánstíma loknum og ársvext-
ir eru 8,5%. Verð skírteinanna við
innlausn, þ.e. höfuðstóllinn, vextir
og vaxtavextir, breytist í hlutfalli
við þá hreyfingu sem orðið hefur á
gengisskráningu SDR á lánstíma-
bilinu. SDR er vegið meðaltal af
dollar, pundi, japönskú yeni, þýska
markinu og franska frankanum.
Gengi SDR er skráð daglega í
gengisskrá Seðlabankans.
Allir geta keypt spariskírteini
ríkissjóðs.
Spariskírteini ríkissjóðs eru gefin
út í þremur verðgildum; 5.000,
10.000 og 100.000 krónum, nema
skírteini með vaxtamiðum sem að-
eins eru í 50.000 króna verðgildum.
Sala hefst 10. janúar á öllum hefð-
bundnum sölustöðum.
RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS
Paul McCartney: Tæpir tveir
milljarðir i árstekjur.
George Harrison: -Heldur tryggð
við austræna speki og ræktar
rófur í Lundúnum.
Ringo Starr: -Beverly Hills, Monte
Carlo eða London.