Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Page 16
16
DV. LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986.
Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan
„Það deyr
enginn
í næsta
lagi"
Engar Dúkkulísur í jólapökkum
Aðdáendur Dúkkulísanna leit-
uðu dyrum og dyngjum að plötu
hljómsveitarinnar sem átti að
koma út fyrir jólin. Sú leit reyndist
árangurslaus enda kom platan
aldrei út.
Ástœðan er sú að platan var til-
búin þegar skammt var til jóla og
útgefendumir, Skífan, vom smeyk-
ir um að hún myndi týnast í jóla-
plötuflóðinu. Því var ákveðið að
fresta útgáfunni fram á vor.
Þetta er sem sagt skýringin og
verða aðdáendur stúlknanna að
sýna þolinmæði til vors.
-ÞJV
- ódauðlegur konsert
Kuklsins á Borginni
Björk.
Þrettándaskemmtunin á Borg-
inni síðasta mánudagskvöld verður
lengi í minnum höfð. Ekki aðeins
vegna þess að Kukl kvaddi þar
jólin með pomp og prakt heldur að
þetta vom seinustu tónleikar
hljómsveitarinnar hér á landi
næsta hálfa árið eða svo.
Þetta var auglýst nokkuð ræki-
lega fyrir tónleikana og aðdáendur
Kuklsins trúðu því eins og nýju
neti. Líka eins gott því þeim var
alvara.
Svona byggir Kukl pýramída. Stjórnandi framkvæmdanna fremst á myndinni.
DV-myndir G. Bender
Einar M.
Holidays in Europe verður gefin
út á meginlandinu 24. janúar. Það
er Crass sem gefur plötuna út eins
og The Eye og er einsdæmi að það
íyrirtæki gefi út fleiri en eina plötu
með hljómsveit. Er þetta góð viður-
kenning fyrir Kuklið.
1 byrjun febrúar mun hljómsveit-
in svo halda í hljómleikaferð og
verður víða komið við á meginl-
andinu. Að ferðinni lokinni er svo
í deiglunni að taka upp 12.tommu
plötu í Englandi.
Góða ferð, Kukl.
-ÞJV
Þegar mig bar á Borgina rétt fyrir
hálftólf var Kuklið byrjað að flytja
annál nýliðins árs. Aðaluppistaðan
var af The Eye og Dismembered/
söngur hljómaði kunnuglegast.
Þessi dagskrá var keyrð í gegn og
gaf Kuklið ekki tækifæri á klappi
fyrr en gamla árið var um garð
gengið. Þá tóku viðstaddir líka vel
við sér og þökkuðu pent fyrir.
Þétt var setið og staðið í fremri
sal Borgarinnar. Aftari helmingur-
inn hafði verið lokaður af, væntan-
lega fyrir hótelgesti. Þrátt fyrir
þrengsli var létt yfir gestum og biðu
karlar og konur nú óþreyjufull eftir
meiru.
Gunnlaugur.
Einarö.
Hljómsveitin The Voice ku hafa
riðið á vaðið þetta kvöld. Um
frammistöðu drengjanna get ég
hins vegar ekki dæmt. Ég var ekki
á staðnum, því miður.
Kuklið lét ekki sitt eftir liggja.
Einar Örn tilkynnti að næst yrðu
fiutt lög af nýju plötunni, skellti
þegar skífunni á fóninn og hljóm-
sveitarmeðlimir öpuðu eftir söng
og hljóðfæraleik.
Eftir að þessum „flutningi" lauk
var hlegið ofsalega. Hljómsveitin
og gestir skemmtu sér konunglega
yfir þessu skrípói í anda tónlistar-
myndbanda. Og þeim tókst bara
nokkuð vel upp. I Skonrokk með
þau!
Aftur til spilamennskunnar.
Næst lék Kuklið nýtt efni, enn
nýrra en af nýju plötunni. Það fékk
góðan hljómgrunn og að mínu
mati var þetta besti kafli tónlei-
kanna.
míkrófónninn hennar Bjarkar
hefði þegar sungið sitt síðasta.
hita og þunga spilamennskunnar
og Einar Örn, nafni hans Melax
og Björk tóku undir með söng,
trompet, flautublístri og hljóm-
borðsleik.
Það er greinilega kominn ferða-
hugur í mannskapinn.
Birgir.
r
Gómsætur biti var þó eftir. Megas
steig á svið með skjannahvítan
rafmagnsgítar og tók nokkur lög
við undirleik sveitarinnar. Megas
tók þesssi sömu lög á tónleikunum
í Gamla bíói í haust og ég er á því
að þessi flutningur hæfi þeim best.
Þymirós, Heilræðavísur, Doctor
Saxi, Kuklblús og fleiri vom keyrð
í gegn af eldmóði og Megas, Björk
og Einar skiptust á að syngja text-
ann.
Þegar hér var komið var klukkan
orðin eitt en fyrir þrábeiðni áheyr-
enda voru tekin tvö aukalög.
Megas spilaði Spáðu í mig og
Kuklið tók Söngul aftur þó að
Sigtryggur.
Þeir sem lögðu leið sína á Borg-
ina þetta þrettándakvöld fengu nóg
fyrir peningana sína. Hljómsveitin
á sér orðið fastan aðdáendahóp hér
á landi og verðskuldar þær vin-
sældir fyllilega. Hún er eina fram-
sækna rokksveit landans í dag.
Hljómsveitarmeðlimir gáfu
greinilega það sem þeir áttu í flutn-
inginn og spilagleðin bókstaflega
geislaði af þeim. Að venju báru
Sigtryggur, Birgir og Gunnlaugur
X