Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Síða 36
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1 986.
Þyrlan sem Landhelgisgæslan
fær í marsmánuði.
Landhelgisgæslan:
SKIPTIR
r
A
ÞYRLUM
Landhelgisgæslan skiptir á þyrlum
við þýskt fyrirtæki í byrjun mars-
mánaðar. Gæslan lætur litlu þyrlu
sína, TF-GRÓ, en fær í staðinn not-
aða þyrlu af gerðinni AS 350 B
Ecureuil.
Gunnar Bergsteinsson forstjóri
samdi um þessi skipti fyrir hönd
Landhelgisgæslunnar fyrir rúmri
viku. Gæslan greiðir þýska fyrirtæk-
inu um 5,9 milljónir króna af sínu
eigin fé i milligjöf. Minniháttar lag-
færingar á þyrlunni og þiálfun
tæknimanna eru innifaldar i verð-
mismuninum.
Ecureuil-þyrlan er smíðuð af
frönsku Aerospatiale-verksmiðjun-
um, þeim sömu og smíðuðu
Dauphin-þyrlu Gæslunnar, TF-SIF.
Þessar þyrlur hafa sömu tegund
hreyfíls. Ætti því að nást meiri hag-
kvæmni í þyrlurekstrinum.
Ecureuil-þyrlan er ívið stærri og
burðarmeiri en gamla þyrlan,
TF-GRÓ. Hún getur flutt 4-5 farþega
eða 1-2 sjúkrabörur ásamt tveim
farþegum.
-KMU.
HEIMSKERFI TIL
HEIMANOTA 1
Geysilegur fugladauði vegna mengunar á Seyðisf irði:
„Fjörumar hér eins
og kirkjugaröur
Á Seyðisfirði eru menn nú mjög
uggandi vegna geysilegs fugla-
dauða þar í vetur vegna grútar-
mengunar og enn jókst fugladauð-
inn eftir otíuslysið á annan dag
jóla. „Fjörurnar hér eru eins og
kirkjugarður. Ég sé ekki fram á að
það verði ein einasta kráka eftir
þegar fer að vora, verði ekkert að
gert,“ sagði Seyðfirðingur einn í
samtali við DV.
Fuglarnir, sem fallið hafa í valinn
vegna mengunarinnar, eru einkum
æðarkollur en einnig flestar aðrar
tegundir sjófugla. Alíta svartsýn-
ustu menn að fuglalífið við fjörðinn
sé í stórhættu.
Hilmar Eyjólfsson, starfsmaður
Vélsmiðju Seyðisfjarðar, er mikill
fjörulalli. Sagði hann í samtali við
DV að í vetur hefðu loðnubræðsl-
umar tvær, sem eru sín hvorum
megin við fjörðinn, farið mjög
óvarlega við losun grúts út í fjörð-
inn, svo og bátarnir. Þætti ýmsum
bæjarbúum sem yfirvöld væru
harla aðgerðalítil í málinu. Stein-
inn hefði þó tekið úr eftir olíuslysið
en mikil olia væri 1 og við fjörurn-
ar.
Sagðist Hilmar hafa gengið um
fjörurnar um síðustu helgi og lægi
þar ótölulegur fjöldi fugla ýmist
dauður eða í dauðateygjunum með
mikla olíu í sér og á.
„Það er rétt að hér hefur drepist
töluvert af fugli,“ sagði Þorvaldur
Jóhannsson, bæjarstjóri Seyðis-
fjarðar. „Auðvitað höfum við
áhyggjur af þessu, enda er verið
að vinna í málinu. Við höfum verið
að berjast við grútarmengunina og
reyna að fmna ráð við henni. Og
ekki bætti olíuslysið úr skák.
Reyndar koma hingað eftir helgina
menn frá Siglingamálastofnun til
að athuga hvað megi gera. Hins
vegar er ljóst að það verður mjög
erfitt að hreinsa olíu úr fjörunum.
Þau efni, sem hægt er að nota við
það, geta reynst fuglalífinu enn
skeinuhættari svo vel getur verið
að náttúran sjálf verði að sjá um
hreinsunina þótt það geti tekið
tíma,“ sagði Þorvaldur Jóhanns-
son. - KÞ
NARVILHJÁLMSSON
MTAMAÐUR ÁRSim
Samtök íþróttafréttamanna útnefndu í gær Einar Vilhjálmsson spjótkastara íþróttamann ársins 1985.
Einar hlaut 70 stig og greiddu allir fjölmiðlar honum atkvæði í fyrsta sætið. Einar náði stórglæsilegum
árangri á síðasta ári og er vel að þessum titli kominn. Þetta er í annað sinn sem Einar hlýtur þennan
eftirsótta titil, einnig 1983. Það var faðir Einars, Vilhjálmur Einarsson, fyrsti íþróttamaður ársins á ís-
landi, sem afhenti syni sinum verðlaunagripinn glæsilega. Annar í kjörinu í gær varð Eðvarð Þór Eðvarðs-
son, sundmaður frá Njarðvík, og hlaut hann 62 stig. Sjá nánar um kjör íþróttamanns ársins á bls. 11.
^ DV-mynd Bjarnleifur. -SK.
Erf iðleikar hjá
Kjötvinnslu
Suðurlands:
HELMINGI
STARFS-
FÓLKS
SAGTUPP
Rúmlega helmingi starfsfólks Kjö-
tvinnslu Suðurlands á Hellu var sagt
upp störfum í gær. Er ástæðan fjár-
hagserfiðleikar og verkefnaskortur.
Er jafnvel hugsanlegt að fyrirtækið
verði lagt niður.
Kjötvinnsla Suðurlands var sett á
stofn fyrir tveimur og hálfu ári. Þar
hafa starfað níu manns og var fimm
þeirra sagt upp í gær. Kjötvinnslan
er hlutafélag og eru hluthafamir
margir, einkum einstaklingar. Kaup-
félagið Þór á tíu prósent í fyrirtæk-
inu, en stærstu hluthafamir em
eigendur Holtabúsins.
Að sögn Emils Gíslasonar, kaup-
félagsstjóra Þórs á Hellu og for-
stöðumanns Kjötvinnslunnar, er alls
óvíst hvað verður um Kjötvinnsl-
una. Hann vildi þó tala um skipu-
lagsbreytingar hjá fyrirtækinu frek-
ar en það væri að hætta. Sagði hann
að verið væri að leita að verkefnum
fyrir Kjötvinnsluna og ætti eftir að
sjá hvað úr því yrði.
KÞ
LOKI
Það er alveg mengað
strandlífið á Seyðis-
firði!
Skríðurað komastá framboösmál á Akureyri:
K0NURNAR BÍÐA ÁTEKTA
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
„Það er ákveðið að það skuli
vera óákveðiö um sinn hvort við
bjóðum fram eða ekki. Við ætlum
að bíða og sjá hvemig okkur líst á
hina listana, sérstaklega hvort þeir
verða skipaðir konum að einhverju
ráði í efstu sætin,“ sagði Valgerður
Bjamadóttir, bæjarfulltrúi
Kvennaframboðsins við DV.
Skriður er nú að komast á fram-
boðsmál flokkanna á Akureyri
fyrir sveitarstjómarkosningamar
sem verða í vor.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
á Akureyri kemur saman í dag til
að ræða framboðsmálin. „Stjóm
fulltrúaráðsins mun leggja til á
fúndinum að það verði prófkjör,“
sagði Einar Bjamason, formaður
fúlltrúaráðsins.
„Ég á von á því að það verði
prófkjör með einhverjum hætti hjá
okkur,“ sagði Sigurður Jóhannes-
son, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins og forseti bæjarstjómar
á Akureyri.
„Ég reikna með því að innan
skamms verði skoðanakönnun
meðal flokksbundinna Alþýðu-
flokksmanna um fylgi einstakra
manna og í framhaldi af því verði
ákveðið hvort prófkjör verður hjá
okkur eða ekki,“ sagði Freyr
Ófeigsson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins.
1
„Ekkert ákveðið ennþá," sagði
Sigriður Stefánsdóttir, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins. „Það er
nefnd að skoða málið. Hún á að
skila tillögum innan skamms. Síð-
ast var forval hjá okkur í tveim
umferðum og sú gæti oröið raunin
aftur.“