Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Page 1
Hvenær
tekur
Tommi
völdin?
Maður nær þangað sem
maður vill komast ef
maður bara óskar þess
nógu heitt. Einhvern veg-
inn svona orðaði skáldið
T. S. Eliot það þegar menn
spurðu hann hvort hann
hefði stefnt að því að fá
nóbelsverðlaunin í bók-
menntum. Það gilti það
sama um Eliot og ýmsa
aðra sem skarað hafa
framúr, að hann var ákaf-
lega vinnusamur, féil
aldrei verk úr hendi, kunni
að skipuleggja sinn tíma.
Tommi i Tommaborgu-
rum (sem hann er reyndar
búinn að selja fyrir
nokkru) hefur nóg við sinn
tíma að gera og ætlar enn
að sækja á brattann, fara
í pólitík og áreiðanlega
eitthvað fleira. Kona sem
hann hitti í Bandaríkjun-
um spáði því fyrir honum
að hann myndi einhvern
tíma verða forsætisráð-
herra íslands. Við íslend-
ingar erum hættir að láta
pólitíkina koma okkur á
óvart - og því mun vænt-
anlega engum bregða
þegar Tommi tekur völd-
in.
Út um víða veröld
Helgarblaðið mun fjalla
um ferðamál í auknum
mæli fram á vorið. Nú er
komin sú tíð að fólk er
farið að gægjast í dagata-
lið og velta fyrir sér
möguleikum á skíðaferð,
sumarleyfisferð - ævin-
týraferð. Þórunn Gests-
dóttir blaðamaður ætlar
að leiða lesendur í ýmsan
sannleika um ferðamögu-
leika sem bjóðast - sem
og kostnað og kjör.
Helgarblaðið kemur
reyndar víða við að þessu
sinni - eins og ævinlega.
Við birtum skemmtilega
grein eftir Jón Orm Halld-
órsson sem var í Marokkó
um daginn. Þar hítti hann
íslenskan ferðalang sem
vlrtist helst vera sestur að
í þessu landi spámanns-
ins Múhameðs; þar er
hassið auðfengið sem og
margt annað sem yflrleitt
er ekki selt á frjálsum
markaði.
-GG