Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 16
16 DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Músíktilraunir Tónabæjar eru nú orðnar árlegur viðburður. I ár verður þessi hljómsveita- keppni haldin í íjórða sinn og hefur þegar verið ákveðið hvenær til- raunakvöldin svokölluðu fara fram. Þau eru þrjú talsins og verða fimmtudagana 10., 17. og 24. apríl. Áætlað er að 5-7 hljómsveitir komi fram á hverju tilraunakvöldi. Flytur hver þeirra fjögur frumsam- in lög. Á þessum tilraunakvöldum munu áheyrendur sjá um að gefa hljómsveitunum stig eftir frammi- stöðu. Tvær stigahæstu hljómsveit- imar hvert kvöld komast svo í úrslitakeppnina sem haldin verður 25. apríl. Og til nokkurs er að vinna. Þær hljómsveitir sem skipa þrjú efstu sætin fá hver í sinn hlut 20 tíma í hljóðveri. Sigurvegararnir komast auk þess á samning hjá borginni sem felur í sér tónleika til handa viðkomandi sveit (líklega í tilefni 200 ára afmælis höfuðstaðarins). Frami Dúkkulísanna mestur Það er óþarft að fjölyrða um gildi Músíktilrauna. Hér gefst ungum hljómsveitum víðs vegar að af landinu kostur á að koma fram opinberlega. Slík tækifæri bjóðast ekki oft. Fyrir utan gildi þess að vera með er líka til mikils að vinna. Þeim hljómsveitum, sem hafa borið sigur úr býtum í Músíktil- raunum, hefur vegnað misvel. Dúkkulísumar frá Egilsstöðum, sem sigruðu 1984, hafa án efa náð ndirbúningur úsíktilrauna hafínn Þungarokkssveitin Gypsy sigraði í Músíktilraunum í fyrra. mestum frama. Þær hafa þegar sent frá sér eina plötu og önnur er væntanleg með vorinu. Minna hefur farið fyrir þungarokkssveit- inni Gypsy sem sigraði í fyrra. Þeir notuðu þó alltént hljóðverstímana sem þeim féll í skaut. Þær upptökur voru meðal annars leiknar í ungl- ingaþætti í útvarpinu þó ekki kæmust þær á plast. Líka útvarpsstjörnur Nokkur gróska er í tónlistarlífi yngri kynslóðarinnar. Þess báru til dæmis vitni tónleikarnir sem haldnir voru í tengslum við listahá- tíð unga fóksins. En ekki er ráð nema í tíma sé tekið og ekki seinna vænna fyrir þær hljómsveitir sem ætla sér að taka þátt í keppninni að fara að huga að undirbúningi. Sem fyrr munu aðstandendur Músíktil- rauna reyna að gera hljómsveitum af landsbyggðinni kleift að vera með, til dæmis með því að taka þátt í ferðakostnaði. Ætlast er til að hljómsveitir tilkynni þátttöku í Tónabæ í síma 35935. Allar nánari upplýsingar eru veittar í því núm- eri. Ekki sakar svo að geta þess að fyrirhugað er að útvarpa úrslita- kvöldinu beint á Rás 2. Það ætti að auka á hróður þeirra sem kom- ast í úrslitakeppnina. Það er ekki á hverjum degi sem hljómsveitum gefst kostur á að spila fyrir alla þjóðina. -ÞJV er liðinn “ — segir rokkarinn Bjartmar Kótelettumorðinginn - Hvað er á efnisskrénni hjá ykkur? „Ég er með ný og gömul lög, af plötunum mínum tveimur. Pétur tekur aftur á móti lög eins og Seinna meir, Priving in the City, og Jenny Darling. Síðan klykkjum við saman út með kóte- lettumorðingjanum og Sumarliða." - Hverjir spila undir hjá ykkur? „Bæði í Sjallanum og Skansinum hafa hljóm- sveitir húsanna spilað með okkur. Það hefur reynstmjög vel.“ - En hvemig stendur annars á því að þið Pétur fómð að syngja saman? „Það er nú þannig að mér finnst ég alltaf hafa þekkt Pétur. Hann hefur verið einn af mínum uppáhaldspoppurum í gegnum tíðina. „Hevrðu, er ekki í lagi að ég hringi í þig á eftir. Eg er að baða dóttur mína eins og stendur." Bjartmar Guðlaugsson er venjulegur maður, allavega dagsdaglega, passar komunga dóttur sína og sinnir hefðbundnum heimilisstörfum. En það sem af er nýju ári hefur hann tileinkað tónlistinni helgamar. Um þessa helgi eru Bjart-, mar og Pétur Kristjánsson staddir á Akureyri, í annað sinn á tveimur vikum. „Þetta hefur gengið aldeilis ljómandi vel,“ útskýrir Bjartmar í símann eftir að hafa komið dótturinni í ró. „Við Pétur komum fyrst saman á nýárskvöld á Hótel Sögu og fengum glimrandi viðtökur. Síðan höfum við komið fram í Ypsilon (Kópavogi), Skansimun (Vestmannaeyjum), og Sjallanum (Akureyri, hvar annars staðar) og alls staðar verið vel tekið.“ Það varð úr að ég fékk hann til að syngja með mér Stúdentshúfuna á síðustu plötu. Síðan komum við aftur saman á nýárskvöldinu á Sögu og ákváðum eftir gott gengi þar að halda samstarfinu áfi'am." Rokkið á uppleið Og samstarfið mun vara lengur en fram yfir þessa helgi. Bjartmar og Pétur fara jafhvel aftur til Eyja og þeir hyggjast spila á fleiri stöðum á næstunni. Við spilum alls staðar þar sem fólk vill heyra rock and roll. Rokkið er á uppleið núna. Það er engin spuming. Tími þverslaufupoppsins er lið- inn.“ Fleira er í bígerð. „Mig dreymir um að gera 12 tommu, fjögurra laga plötu,“ heldur Bjartmar áfrarn. Ég er önnum kafinn núna við að vinna nýtt efni og það er hugsanlegt að slík plata líti dagsins ljós með vorinu. Ýmsar hugmyndir eru uppi í tengslum við útgáfuna en of snemmt er að reifa þær að svo stöddu. Eigum við bara ekki að segja að þetta skýrist allt í fyllingu tímans." Hvað sem síðar verður þá er það víst að Bjart- mar (og auðvitað Pétur) verður í Sjallanum í kvöld. Venjulegur maður á virkum dögum en um helgar er það rokkið sem blívur. -ÞJV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.