Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR1986 13 Byltinqin í lífi Nastössju Kinski Nastassja Kinski er um eitt hundrað og sjötíu sentímetrar á hæð, skinn hennar er svo mjúkt að minnir á dún, sjávargræn augun minna á eilífðina og hún er létt á fæti eins og folald. Lif hennar hefur einkennst af ástríðum og tilfinn- ingahita en þó er hún aðeins tutt- ugu og fjögurra ára gömul. Það er að minnsta kosti álit margra en vera má að þeim hafi eitthvað skjátlast því að hún var aðeins 16 ára er hún fór að vera með Roman Polanski og svo getur verið að einhverjir ætli henni þá eiginleika sem hún sýnir svo oft á hvíta tjald- inu. Hún var unga töfrandi stúlkan í Tess, kynþokkafulli sakleysing- inn í The Cat People og tilfinninga- ríka stúlkan í Paris, Texas. Þegar hún var barn virtist hún oft fullorð- insleg en nú minnir hún oft á barn. Mikil breyting Nú, á tuttugasta og fimmta ald- ursárinu, virðist hafa orðið mikil breyting á Nastössju Kinski. Hún er orðin móðir, hún er gift, orðróm- ur hefur gengið um skilnað sem nú er þó sagt að ekki verði af, hún hefur misst fóstur og gengur nú með barn á nýjan leik. Jafnframt hefur hún nýlega leikið í tveimur kvikmyndum. í Harem lék hún á móti Ben Kingsley og skömmu eftir að töku þeirrar myndar lauk hóf hún leik í Revolution (Bylting sem nú er sýnd í Háskolabíói og kom á markaðinn í þessum mánuði). Þar leikur hún á móti A1 Pacino og Donald Sutherland. Álagið í einka- lífinu og á vinnustað hefur tekið sinn toll því að hún er nú óvenju grönn og þreytuleg; árið sem var að líða var erfitt fyrir hana. „Talaaldrei um einkalíf mitt“ Ýmiss konar orðrómur hefur gengið um Nastössju að undan- förnu og það hefur orðið til þess að auka nokkuð á vandamálin í einkalífi hennar. „Ég tala hins vegar aldrei um einkalíf mitt,“ segir hún með nokkrum sársauka, „og get því ekki skilið hvaðan blöðin fá allar þessar upplýsingar sínar. Og það er einkennilegt að þau gagnrýndu mig ekki fyrir að eignast barn; aðeins fyrir að gifta mig. Þó giftist ég föður barnsins. Þetta særði mig.“ Svo þagnar hún um stund og borðar dálítið af matnum sem hún er með á diskin- um fyrir framan sig. („Ég er að reyna að fitna,“ segir hún í afsök- unartón.) „Annars myndi það mig engu skipta þótt það yrði aldrei minnst á mig í neinu tímariti fram- ar. Mig langar til þess að vinna og til þess að hugsa um barnið mitt. Til annars langar mig ekki.“ Eiginmaðurinn 37 ára Þótt hún hafi aðeins gefið þessa yfirlýsingu fyrir sjálfa sig, en ekki fyrir mann sinn, þá er ljóst að hann er henni nátengdur. Ibrahim Mo- ussa hefur haft veruleg áhrif á líf hennar og starf. Hann er 37 ára og því 13 árum eldri en hún. Hann hefur stundum verið sagður fulltrúi gimsteinasala í Róm en stundum egypskur kvikmyndagerðarmaður og kvikmyndatökumaður. Lítið er um hann vitað í raun og veru og ef til vill er áreiðanlegustu heimild- irnar um hann að finna i ævisögu Romans Polanski. Polanski kom til Los Angeles 1976. „Meðal þeirra sem heimsóttu mig í Beverly Wils- hiregistihúsið,“ segir hann, „var Ibrahim Moussa, umboðsmaðurinn sem ég hafði áður hitt í Róm. Hann var nu fluttur til Los Angeles. Hann sá myndir af Nastössju í Vogue og vildi fá hana til þess að leika í kvikmynd.“ Sent eftir Nastössju Polanski og Moussa ákváðu að standa í sameiningu straum af kostnaðinum við að láta Nastössju og móður hennar koma til Los Angeles og að greiða kostnaðinn af enskunámskeiði sem hún ætti að fara á. Moussa gerði síðan samning við hana um að leika í ódýrri þýskri mynd sem færði honum og Polanski það mikið í aðra hönd að þeir fengu greiddan allan kostnaðinn við Bandaríkja- dvöl hennar. Síðan er ekki til þess vitað að neitt samband hafi verið á milli þeirra Nastössju og Moussa fyrr en 1983 er þau fóru að vera saman. Sonur þeirra, Alyosha, fæddist svo 30. júní 1984. Moussa er sagður Nastössju erfiður Þeir sem fylgst hafa með Nastössju að starfi segja að Mo- ussa reynist henni erfiður því hann hafi truflandi áhrif á hána þegar hún er að leika því hann vilji stjórna henni. Erfitt er að segja hvort rétt er að taka eins mikið mark á þessum ummælum og sumir vilja gera. Það er hins vegar ljóst að Moussa hefur fáa vini eignast í hópi vina, ættingja eða samstarfs- manna Nastössju. Það er aftur á móti ljóst að það kann a"ð vera erfitt að vera kvæntur konu sem er jafnung, fræg og sjálfstæð í hugsun og hún. Þá eru þau úr ólík- um jarðvegi sprottin og Nastassja er lítt gefin fyrir hömlur. „Ég hef lifað lífinu eins og mér hefur þótt best,“ segir hún. „Fólk var vant að segja við mömmu: „Er hún ekki að verða allt of fullorðinsleg fyrir sinn aldur?“ Ég var eins og ungur hest- ur sem fær frelsið." Hjónabandið ný reynsla Fram til þessa hefur Nastassja getað snúið baki við þeim karl- mönnum sem komið hafa við sögu í lífi hennar án þess að þurfa að líta um öxl. Hjónabandiö er henni því ný reynsla. „Ég var vön að velta því fyrir mér hvers vegna ég yrði aldrei vör við neinn sárs- auka,“ segir hún. „Nú er þetta allt breytt. Hjónabandið er svo ólíkt. Það verður svo oft að semja um hlutina og það er erfitt. En er ekki allt, sem einhvers virði er, erfitt?“ spyr hún. „Svo er það auðvitað barnið.“ Sonurinn gengur fyrir „Sonur minn gengur fyrir,“ segir Nastassja og það bregður fyrir glampa í augum hennar. „Hann er mér allt. Og það finnst manninum mínum líka. „Hvað sem kemur fyrir,“ segir hann, „þá má ekki rjúfa fjölskylduböndin. Þau verða alltaf að vera sterk.“ “ Það hefur hins vegar ekki alltaf verið auðvelt fyrir Nastössju að lifa í samræmi við þessa skoðun. Þegar ættingjar hennar og vinir fréttu að hún ætti von á barni þá tók að rigna yfir hana ráðleggingum um að eiga það ekki. „Þegar ég gekk með það sögðu flestir við mig að ég ætti ekki að eiga það þvf að ég yrði ekki hamingjusöm með það. Það voru aðeins einn eða tveir vinir sem sögðu: „Eigðu það.“ En mér stóð á sama um hvað fólk sagði því að ekkert fannst mér réttara en að eiga barnið.“ Og í andliti Nastössju gætir nú andúðarinnar sem ein- kennir hana þegar henni líkar ekki eitthvað enda er hún vön að fara sínu fram. Ætlaði í ársfrí, en... Hún hafði ákveðið að taka sér frí frá störfum fyrsta árið eftir barns- burðinn. Hún fæst hins vegar ekki til þess að segja frá því hvað það var sem fékk hana til þess að skipta um skoðun en það virðist þó aug- ljóst að starfið hefur haft nokkra þreytu í för með sér. „Við erum með barnfóstru, sem er frá Ma- rokkó, og barnið er hjá mér. Ég myndi aldrei skilja son minn við mig en þegar ég er að leika þá sé ég hann bara á morgnana og kvöld- in. Ég sakna hans hins vegar því það er svo skemmtilegt að vera með honum. Og þegar ég kem heim á (Pacino), til þess að berjast fyrir land sitt. Atburðarásin er flókin og leiðir skiljast en svo hittast þau aftur. Nastassja Kinsky og A1 Pacino eru óvenjulegt par á hvíta tjaldinu og Warner-kvikmynda- verið væntir mikils af myndinni. í ólíku hlutverki á móti Kingsley Það er einnig búist við miklu af myndinni Harem þar sem Nastas- sja leikur á móti Ben Kingsley. Það hlutverk hennar er gerólíkt því sgm lýst var hér að framan því í þessari mynd leikur hún verðbréfasala í New York sem er rænt og flutt í kvennabúr olíufursta. Margar og ólíkar tilfinningar koma við sögu í myndinni og þar kemur ljóst fram munur ólíkra menninga. kvöldin þá er mér sagt að hann hafi verið að gera þetta eða hitt og þá verð ég sár af því að ég vildi hafa getað fylgst með því.“ Nastas- sja er nú komin sjö mánuði á leið og hefur tekið fasta ákvörðun um að leika ekki í kvikmynd fyrr en ár er liðið frá fæðingunni. Listin nærirhana Sumir segja að því fylgi eins mikið álag fyrir Nastössju að vera ekki við störf eins og að vera að störfum því að listin næri hana. Allt frá því að hún var 13 ára hefur hún gert sér grein fyrir því hvers virði listin er henni og það er skoð- un hennar að án listar væri líf hennar ekki fullkomið. Hún "talar nú þannig gjarnan um það hve örvandi henni fannst að starfa við hlið Als Pacino í Revolution. „Mér finnst hann alveg ótrúlegur og hann er gefinn fyrir samræður. Hann er ekki einn af þessum leik- urum sem kemur bara til vinnu og fer. Hann vill gjarnan ræða við- fangsefnið svo að atriðin verði góð. Hann fer sér hægt og íhugar hvert atriði margsinnis. Svo leikur hann það hvað eftir annað svo að loks verður allt eins og það á að vera. Við lögðum okkar eigin túlkun í hlutverkin og loks varð þetta allt mjög létt.“ Um hvaðfjallar nýja myndin? Revolution (Bylting) fjallar um frelsisstríðið í Bandaríkjunum. Nastassja leikur Daisy, uppreisn- argjarna dóttur efnaðs kaupsýslu- manns í New York sem tekur af- stöðu með Bretum. Daisy vill taka þátt í að móta nýtt þjóðlíf og hvetur unga menn, þar á meðal Tom Dobb „Ég hef svo margt fyrir stafni," segir Nastassja. „Ég veit ekki hvers vegna. Það hefur eitthvað með fólk að gera. Það lætur mig finna að það þarfnist mín og það gerir mig ánægða með sjálfa mig. Það lætur mig finna að það vilji að ég veiti því ánægju og það er einmitt það sem mig langar til að gera. Svo fer ég stundum að velta því fyrir mér hvernig á því stendur að ég skuli vera að leika með jafngóðum leik- urum og Ben eða A1 Pacino. Hvers vegna var ég valin til þess?“ Nast- assja er ekki að sýna af sér falska hlédrægni þegar hún segir þetta. Hér örlar hins vegar á þeim efa- semdum sem hún hefur um sjálfa sig. Hún er harðasti gagnrýnandi sjálfrar sín og sjálf segir hún: „Ég ástunda mikið sjálfsskoðun og það ágerist með aldrinum." „Nastassja er afar óörugg með sjálfa sig,“ segir Dudley Moore, sem lék í Unfaithfully Yours með henni, en myndin gekk ekki vel. Nastassja tók því vel hugmynd Pacino um að hún færi til kennara. „Mig langar mjög mikið til þess því það dregur úr álaginu. Þá getur maður einnig séð sjálfan sig betur. Ég veit að ég bý yfir hæfileikanum til þess að verða mikil leikkona en ég verð að finna hvatningu og öðlast kraft til þess að njóta mín og geri ég það ekki, sem kemur oft fyrir, þá líður mér illa. Þá legg ég líka of hart að mér. Það þreytir mig svo of mikið og þá verð ég að hvíla mig.“ Hefur starfað í ellefu ár Þótt Nastassja sé aðeins 24 ára á hún þó að baki ellefu ára starfs- feril. Þýski leikstjórinn Wim Wenders uppgötvaði hana þegar hún var að dansa í rokkklúbbi í Munchen. Þótt faðir hennar, Klaus Kinsky, sé leikari þá hafði hún hugsað sér í bernsku að verða rit- höfundur eða ljóðskáld eins og móðir hennar, Brigitte. Foreldr- arnir skildu hins vegar þegar hún var ung og nú hittir hún föður sinn aðeins af og til. Samband hennar og móður hennar er þó mjög náið. Hún var í kvöldverðarboði með móður sinni er hún kynntist Ro- man Polanski. Þá var hún aðeins 15 ára. „Hann var að taka myndir fyrir Vogue og hað mig um að sitja fyrir,“ segir Nastassja. Svo varð hann elskhugi hennar og fræðari. Hann gerði sér grein fyrir því að hún bjó yfir leikhæfileikum og fékk hlutverkið í Tess handa henni. Hún var því farin að lifa lífi fullorðinna er hún var táningur en nú vill hún hægja svolítið á. Lauk ekki námi „Ég er ennþá með minnimáttar- kennd af því að ég lauk ekki námi,“ segir hún. „Ég hef að visu lært margt í lífsins skóla og sumt af því er meira virði en það sem hægt er að læra i skóla en samt finn ég til menntunarskortsins. Úr því langar mig til að bæta.“ Þá langar hana einnig til þess að skrifa handrit og leikstýra. Hún er þegar búin að skrifa eitt handrit og vildi gjarnan leikstýra mynd- inni. Væri hún ekki svona feimin myndi hún biðja Jessicu Lange að leika aðalhlutverkið. Hún dáir Lange mjög mikið, bæði fyrir leik- hæfileika hennar og hæfileikann til þess að ala upp börn samhliða kvikmyndaleiknum. Nastassja verður döpur þegar hún hugsar til þess að henni kunni ekki að takast barnauppeldið eins vel. Hætti við að leika í London Af því að Nastassja gengur nú með annað barn hefur hún hætt við að taka að sér hlutverk á sviði í London í Seagull (Mávurinn). Þá hefur einnig verið á kreiki orðróm- ur um að hún hafi átt að leika Ingrid Bergman í kvikmynd sem gera á um ævi hennar. Én getur hjónaband Nastössju, sem stendur ekki allt of traustum fótum, staðið af sér ágjöfina? Þolir hún til lengdar að gagnrýna sig og jafnvel kvelja á þann hátt sem hún gerir? Þegar hún stendur yfir vöggu Aly- oshas, dökkhærða drengsins síns, segir hún: „Stundum finn ég til ægilegrar sektartilfinningar af því að mér finnst ég ætti að vera hjá honum allan sólarhringinn en get það ekki. Ég hef svo margt að gera utan barnaherbergisins.“ Er hún sinn eiginn örlagavaldur? Er það Nastassja sjálf sem mestu ræður um sína eigin hamingju? Hún er vön því að hlýða tilfinning- um sínum og þær eru sterkar. Geri hún það ekki finnst henni hún vera stefnulaus í lífmu. „Ég verð að leggja mig fram eins og ég get við það sem ég tek mér fyrir hendur,“ segir hún og það kemur við hjartað ■ í manni að heyra hana segja það. „Þó get ég það ekki alltaf.“ Svo lítur hún upp og segir: „Ég tók við hlutverkinu í Revolution (Bylting) af því að mér fannst að það gæti hjálpað mér. Það svaraði til tilfinn- inga minna. Ég vil gera byltingu gegn því sem er rangt og óréttlátt og gegn því sem erbara hálfvelgja.“ Þýð: ÁSG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.