Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 23
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 23 HVAÐ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ MIG ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ IV SEM PRESTUR” ommi í Sprengisandi itsínum, Breiðuhvammi í Hveragerði. inn háum trjám. Fyrst mun hafa verið byggt þarna sumarhús og síðan prjónað við bústaðinn í nokkrum áföngum með misjöfnu árabili. í garðinum niðri við ána er sundlaug. „Ég var búinn að leita lengi að húsi í Hveragerði og reyndar hætt- ur að leita þegar ég datt niður á þetta. Það eru rúm tvö ár síðan ég keypti Breiðuhvamm,“ útskýrir hann um leið og húsið er skoðað. „Það er engu líkt að búa í Hvera- gerði. Þetta er lítið þægilegt sam- félag og mér finnst fólk sýna hvert öðru hér mikla nærgætni." Nýjungagjarn og eirðarlaus „Já, ég er bæði nýjungagjarn og eirðarlaus,“ svarar Tommi. „Ég vil takast á við hluti og set mér tak- mörk. Ég held að fólk verði að standa og falla með því sem það gerir. Á meðan þú ert leitandi þroskast þú en um leið og þú ert orðinn viss um flest í kringum þig og hættur að byggja upp ert þú á niðurleið og grotnar." Helga og Tommi unnu nánast dag og nótt þegar fyrsta Tommastaðn- um við Grensásveg var komið á laggirnar. Nú eru þau komin í sama farið aftur, að vinna myrkranna milli. „Ég hét því að gera þetta aldrei aftur, “segir Helga um fyrsta tíma- bilið þeirra „en tíminn á Grensás- veginum var góður tími. Við sváf- um sjaldnast nema fimm tíma á sólarhring. Núna erum við komin aftur í sama farið." Þá gerðust á tíu mánuðum stórir hlutir. Nú er aftur staðið í stórræð- um á Sprengisandi. „Sprengisand- ur er okkar annað heimili nú en þegar þú ert að vinna að verki fyrir sjálfan þig er þessi mikla vinna skemmtileg," bætir Helga við fyrri orð. „Verkkvíði, jú, það kemur oft fyrir mig. Það koma þær stundir að mér finnst allt ómögulegt og óframkvæmanlegt. En þá fer ég í heitt bað og sofna á eftir. Næsta dag get ég byrjað aftur,“segir Tommi. Átta ár í Versió Þegar Tommi hafði selt alla sex Tommastaðina fór hann til Amer- íku. „Ég fór í andlega og líkamlega uppbyggingu. Ég var orðinn eins og Coca Cola flaska í laginu. Svo skoðaði ég hótelrekstur og pældi í hlutum,“ segirhann. „ Veistu, það tók mig átta ár að klára fjóra bekki í Versló. Ég segi þetta gjarnan til að stappa stálinu í þá sem gengur illa í skóla. Þegar út í lífið er komið er ekki spurning- in efst um einkunnir og gáfur held- ur viljann til að standa sig. Ég er annars lærður kokkur, lærði á Hótel Loftleiðum. Lærifeður mínir höfðu litla trú á mér. Einn þeirra sagði að ég gæti ekki soðið vatn án þess að brenna það við. Annar sagði að ég hefði fimmtán þumal- fingur og þrjár vinstri hendur. En ég lauk háskólaprófi á Flórída í hótel- og veitingahúsarekstri. Þar var ég í tæp þrjú ár.“ Afmælisferðin Rúm fimm ár eru liðin síðan Tommi fór'í meðferð á Sogni. Hann átti fimm ára afmæli í fyrrasumar sem óvirkur alkóhólisti. Til að halda upp á daginn gekk hann frá Sogni til Reykjavíkur. „Ég komst í bæinn alveg að nið- urlotum kominn, það varð að bera mig út úr bílnum inn í líkamsrækt- arstöð og í heitt bað,“segir hann um þessa afmælisferð sina. Verslunarskólagenginn kokkur, veitingamaður í dag og langar í lögfræði en vill enda ævina sem prestur. Vill gera margt annað. Og með framkvæmdaáætlun upp á vasann nokkuð fram á næstu öld. Þetta erTommi. „Ég er alinn upp á lögmanns- heimili, hjá afa mínum, Lárusi Fjeldsted. Við áttum heima í Tjarn- argötunni, húsinu sem nú er barna- heimilið Tjarnarborg. Kannski kemur áhuginn á lögfræðinni frá afa. Mér líkar útsjónarsemin og pælingarnar í lögfræðinni Ég fékk undanþágu og byrjaði í lögfræði í háskólanum hér. Ég held að það hafi verið 1980. Já, ég var þar að minnsta kosti í eina viku.“ Hann horfir sposkur fram fyrir sig. „Ég asnaðist til stjörnufræðings úti í Ameríku og hann sagði mér að bíða með það í fjögur ár að fara í lögfræðina. Núna væri tíminn fyrir mig til að sprikla, sagði hann. Ég fer í lögfræðina síðar. Og guð- fræðina.“ Pólitík Árið 2021 verður Tornrni 72 ára. Okkur vantar að vita hvað fleira sé á 35 ára áætluninni. „Veistu, þegar ég var á Flórída átti ég ekki til hnifs og skeiðar og varð að vinna með náminu. Um tíma vann ég sem þjónn í rótgrón- um klúbbi en gestirnir þar voru flestir vellauðugir Bandaríkja- menn. Einu sinni var þar fullorðin norsk kona gestur, hún var þarna með syni sínum. Þessi kona virkaði mjög vel á mig. Hún varð mikill aðdáandi minn og vildi vita margt um ísland. Þegar hún kvaddi mig með innilegu handabandi sagði hún: „Þú átt eftir að verða forsæt- isráðherra á Islandi. Ég varð hálf vandræðalegur en ég trúði henni þá. Og ég trúi henni enn. Þarna ertu komin með svarið. Ég ætla í pólitík." DV-myndir: Kristján Ari Einarsson < .VERÐA.........LOGFRÆÐINGUR”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.