Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 5 Atvinnumál Atvinnumál Sigurfari II til Akraness: Mikiil vandi verður að reka svo dýrt skip — segir Haraldur Sturlaugsson, f ramkvæmdastjóri HB & Co á Akranesi „Við ákváðum að bjóða í þetta skip vegna þess að nokkrar líkur voru á því að skipið færi ekki til sins heima,“ sagði Haraldur Sturlaugs- son, framkvæmdastjóri Haraldar Böðvarssonar & Co á Akranesi, í gær eftir að ljóst var að fyrirtækið fengi togarann Sigurfara II. „Það var jafnframt okkar ákvörð- un að ef við yrðum inni í myndinni þá töluðum við eingöngu við samn- ingamenn Fiskveiðasjóðs. Við töluð- um aldrei við þingmenn Vesturlands eða settum þrýsting á nokkurn mann og enginn talaði við okkur heldur. Ég skýrði Hjálmari Gunnarssyni, Grundarfirði, frá þessu er við höfðum hafið samningaviðræður við Fisk- veiðasjóð. Það var vitað að þetta yrði við- kvæmt og þess vegna höfum við full- an skilning á bréfi því sem þingmenn Vesturlands sendu sjávarútvegsráð- herra. Hins vegar teljum við að ef skipið hefði átt að verða áfram gert út frá heimahöfn í Grundarfirði hefði átt að vera búið að bjarga málunum áður en skipið var boðið upp. Á eftir okkur voru Norðlendingar sem hefðu fengið skipið ef við hefðum ekki staðist þær ströngu kröfur sem stjórn Fiskveiðasjóðs setti fram í þessum samningum. Útgerðarfélag Akureyringa, sem er eitt það sterk- asta á landinu, var næst á eftir okkur og ef skipið átti ekki að fara heim aftur vonum við að Grundfirðingum sé sama hvort það fer hingað eða norður til Akureyrar. Við vitum hér hjá þessu fyrirtæki, sem átt hefur 35 skip í gegnum tíðina, að mikill vandi verður að reka svo L másagnakeppni istahátíðar í jfv eykjavík R AÐEINS 2 MÁNUÐIR TILSTEFNU Frestur til að skila inn smásögum í keppnina rennur út 10. APRfL UMTILHÖGUN SAMKEPPNINNAR Yrkisefni | sagnanna skal sótt í íslenskt nútímalíf, en að öðru leyti hafa höfundar frjálsar hendur. Skilafrestur _______I er til 10. apríl 1986. Sögurnar skulu merkt- ar dulnefni en rétt nafn höfundar fylgja í lokuðu umslagi sem er merkt með dulnefninu og sendast í pósthólf Listahá- tíðar, númer 88,121 Reykjavík. Dómnefnd | smásagnasamkeppninnarskipa þau Þórdís Þorvaldsdóttir borgarbókarvörður, Stefán Baldursson leik- hússtjóri og Guðbrandur Gíslason bókmenntafræðingur. liIMiJBl verða tilkynnt við opnun Listahátíðar 1986 þann 31. maí. Stefnt er að þvi að gefa út bestu sögurnar í bók og er áætlað að bókin komi út á afmæli Reykjavíkurborgar, 18. ágúst. Verðlaun eru mjög vegleg og veröa visitölutryggð en þau eru: 1. 2 3. verðlaun ■ verölaun verölaun 250.000, 100,000, 50.000, Aðeins ein saga hlýtur hver verölaun. Ekki eðli- legir við- skipta- hættir — að taka upp viðræður við Grundfirðinga, segir Davíð Ölafsson „Við töldum það ekki eðlilega við- skiptahætti að taka upp viðræður við Grundfirðinga," sagði Davíð Ólafsson seðlabankastjóri, formaður stjórnar Fiskveiðasjóðs, um söluna á togaranum Sigurfara H. Eins og fram kom í DV í gær hafn- aði stjóm Fiskveiðasjóðs þeim til- mælum sjávarútvegsráðherra og allra þingmanna Vesturlands að rætt yrði við Grundfirðinga áður en geng- ið yrði frá sölu togarans til Haraldar Böðvarssonar & Co á Akranesi. „Sú stefna sem stjórn sjóðsins hef- ur fylgt er í þremur meginatriðum þessi: í fyrsta lagi að fá sem hæst verð. I öðru lagi að fylgt sé eðlilegum viðskiptaháttum. í þriðja lagi að eingöngu sé tekið raunhæfum tilboðum,“ sagði Davíð Ólafsson. -KMU Davíð Ólafsson, formaður stjórnar Fiskveiðasjóðs. dýrt skip sem Sigurfarinn er. Fyrir- tækið á fjögur skip fyrir og staða þess er góð og það er frábæru starfs- fólki, bæði á sjó og í landi, að þakka að hægt var að bjóða í skipið," sagði Haraldur Sturlaugsson. -KMU Lvnsás hf.__________________________________________ OPNUM í DAG Bílabankinn Lyngás hf. býður öllum landsmönnum upp á sérþjónustu varðandi bílasölu með „opinni skráningu“ sem kemur öllum þægilega á óvart. - „Opin skráning“ er þannig uppbyggð að bíleigandi, hvar sem hann er staddur á landinu, getur lyft upp símtólinu og hringt til okkar og skráð til sölu bílinn sinn. Hann gefur okkur nákvæma lýsingu á bílnum sínum ásamt verðhugmyndum og greiðsluóskum ásamt nafni sínu og símanúmeri gegn föstu gjaldi sem er í dag kr. 2.000, sama hvort bíllinn kostar fimm þúsund eða fimm milljónir, og þar með er bíllinn kominn inn í „opna skrá“ sem er opin öllum landsmönnum. „Opna skrá- in“ felur það í sér að hver sem er getur hringt til okkar þegar hann er að leita fyrir sér og við gefum honum upp þær lýsingar sem við höfum í „opnu skránni“ og hann er að leita eftir, ásamt nafni og símanúmeri eiganda bifreiðarinnar. Innifalið í skráningargjaldinu er frágangur á afsali og tilkynningu -þegar viðkomandi aðilar hafa samið. Greiðsla á skráningargjaldi er bifreiðaeigandi skráir inn bílinn sinn í „opna skráningu“ getur farið fram með 6 mismunandi aðferðum: Hann greiðir með símaávísun - póstávísun - Euro- card-Vísakorti - gíróseðli eða bara kemur á staðinn og staðgreiðir. Munið að „opna skráin“ hjá Lyngáshf. er opin öllum landsmönnum - aðeins að hringja og við gefum allar upplýsingar. Jafnhliða „opinni skráningu“ rekur bílasalan Lyngás hf. bílasölu í hinu hefðbundna formi bílasölu þar sem menn skrá inn bílinn sinn upp á gamla mátann - án skráningargjalds - en greiða 2% í sölulaun þegar við höfum selt bílinn - og lágmarkssölulaun eru kr. 4.000. Bílasalan Lyngás hf. rekur einnig skráningarþjónustu fyrir bifreiðaeigendur. Við færum bílinn til skoðunar fyrir þig - eða sjáum um nafnaskiptí fyrir þíg - eða umskráum fyrir þig. Við öflum allra gagna er til þarf, við sækjum bíiinn til þín heim eða á vinnustað og skilum honum á sama stað að verki loknu. Einnig þessi þjónusta er með föstu gjaldi, kr. 1.500. Bílasalan Lyngás hf. mun verða með sérstakan sýningarbásfyrirsölu á „antik bílum“. Jafnframt rekur Lyngás hf. bílaleigu. Allir félagar í Félagi íslenskra bifreiðaeigenda - FÍB - fá 10% afslátt af allri okkar þjónustu. Sértu ekki félagi í FÍB getum við aðstoðað þig til að svo megi verða og jafnframt því getum við upplýst þig um alla kostina við það að vera félagi í FÍB. Lyngási 8 • 210 Garðabæ Símar: 651005 - 651006 - 651669 BÍLASALA - BÍLABANKI BÍLALEIGA - BÍLAMIÐLUN - BÍLASKRÁNING Lyngás hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.