Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Side 8
8
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
FERDIR OG DRAUMAR
„Mitt draumaland er Tíbet,“ sagði vinur minn.
Sá næsti nefndi Austurríki.
Gamalt slagyrði kúreka vestur í því viilta var:
„Hef byssu - vil ferðast." í dag segjum við:
„Höfum tíma - viljum ferðast“ eða „Höfum
smápeninga - viljum ferðast.“ Draumaferðirnar
eru víst jafnmargar mönnunum, möguleikarnir
ótakmarkaðir, hnötturinn allur og bráðum geim-
urinn.
Við hér á Helgarblaði DV ætlum að huga gaum-
gæfilega að ferðamálum í blaðinu okkar fram-
vegis. Við ætlum að búa til drauma, ala á þeim.
En við ætlum líka að vera með hagnýtar upplýs-
ingar um hvernig við getum látið draumana
rætast.
Ferðadraumarnir verða líka mjög oft að veru-
leika. Frá því munum við segja og yfirleitt flestu
því sem við kemur ferðamálum.
„Þú getur treyst því að ferðir okkar eru alltaf
annaðhvort ódýrari en gæðin segja til um eða
betri en verðið gefur til kynna.“ Þetta er dæmi-
gerður auglýsingafrasi frá ferðaskrifstofu. Við
verðum ekki á þeim nótunum en við verðum
með á nótunum.
Brasilía er draumastaður eins vinnufélagans
hér. Því er ekki úr vegi að segja eitthvað frá
Brasilíu en við beindum sjónum okkar að páska-
ferðum sem ferðaskrifstofurnar bjóða okkur,
ferðalöngum. Ein ferðaskrifstofan er einmitt
með páskaferð til Brasilíu.
Sjáumst síðar. Þórunn
SÓUN OG SJÓRINN
Að minnsta kosti fjórir aðilar hafa
Kanaríeyjaferðir á páskaferðaáætl-
un. Það eru Flugleiðir og ferðaskrif-
stofurnar Úrval, Útsýn og Sam-
vinnuferðir-Landsýn.
Um er að ræða þriggja vikna ferðir.
Haldið verður af stað 11. mars og
komið til baka 1. apríl. Ferðimar
kosta frá rúmum 35 þúsund krónum
og upp í tæp 60 þúsund krónur. Fyrir
þá sem kjósa sólina og sjóinn er
Kanaríeyjaferð í þrjár vikur ágætis
kostur. Menn geta tekið með sér
sláturkeppi til að gleyma ekki föð-
urlandinu.
Útsýn hefur verið með hópferðir til
Costa del Sol í mörg herrans ár.
Ekki verður brugðið út af vananum
íár.
Þangað verður haldið 26. mars í
tólf daga reisu. Einstaklingur, sem
vill láta fara vel um sig og gista á
Santa Clara hótelinu, þarf að greiða
rúmar 36 þúsund krónur fyrir far og
gistingu. Þá verður hann líka að j
sofa hjá öðrum, því kostnaður miðast
við tvo í sama herbergi. Það er dýr-
ara að sofa einn. Kostnaðurinn
lækkar eftir því sem stjömunum á
hótelunum fækkar, það er venjan.
Svo lækkar kostnaðurinn eftir því
sem ferðafélögunum fjölgar, sem er
„ólógískt“ en veittur er hópafsláttur
og bamaafsláttur.
Útsýn hefur verið að kynna nýjan
stað á Sólarströndinni sem heitir
Benal Beach. Sá staður er miðja vegu
á milli Torremolinos og Fuengirola.
Sólin er víst oftast til staðar á
þessum slóðum, þó hún hverfi nætur-
langt hvem sólarhring. Hitastigið
þama er rúmlega 21 stig á þessum
árstíma.
Sjórinn er alltaf jafngóður og gest-
risnin mikil. Allt þetta með öllu hinu
ætti að gera páskaferðina mikils
virði. Það sakar ekki að kíkja í
gömlu spænsku orðabókina, þó ekki
væri til annars en þreyja þorrann.
„Þá færi ég
til Brasilíu”
„Ef ég hefði peninga og tíma þá
færi ég til Brasilíu,“ var svarið þegar
einn samstarfsmaður var spurður
hvert hann vildi helst fara í næsta
leyfi.
Ferð iskrifstofan Úrval býður pá-
skafeiö nú til Brasilíu. í þeirri ferð
rætast draumar einhverra. En upp á
hvað er boðið í fjórtán daga páska-
ferð til Suður-Ameríku. Lítum á það.
Á sunnúdagsmorgni þann 23. mars
verður brottför frá Keflavík og flogið
til London. Aðeins er slappað af þar
og spígsporað fram eftir degi en síðan
flogið beint til Rio de Janeiro. Á
Copacapanaströndinni merlar mán-
inn en þar er fimm stjömu hótelið
Rio Öthon Palace sem gist verður á
i nokkra daga.
í Rio er mannlífið stórbrotið. Á
torginu 15. nóvember (sem er sögu-
hjarta borgarinnar) er sérstaklega
líflegt á föstudögum og laugardög-
um. Þá er markaður listamanna og
sölumanna af öllu tagi. íslendingam-
ir ættu að ná einni föstudagsstemmn-
ingu á torginu sögufræga. Þjóðgarð-
urinn Tijuca National Park í Rio er
eitt af sérkennum borgarinnar. En
það helsta í borginni er Kristsstytt-
an, Lausnarinn á Corcovadofjallinu.
Þangað liggja leiðir allra ferða-
manna sem gista Rio.
Næturlífið í Rio býður upp á það,
sem röltarar næturinnar kjósa,
þama er flest á boðstólum.
Svartá og frumskógur
29.mars á laugardegi verður flogið
til Manaus sem er í miðjum Amazon
skóginum. Rio Negro eða Svartá
rennur rétt við borgina Manaus en
á árbökkunum er annað fimm
stjömu hótel sem mun hýsa íslenska
Brasilíufara.
Frumskógarferð er á dagskrá fyrir
þá hugrökku og ef veðurguðimir
leyfa, en þeir geta verið dyntóttir þar
eins og hér. 31. mars verður svo flogið
til Brasilíu, höfuðborgar Brasilíu.
Hún varð til á teikniborði ofurhuga
fyrir 30 árum og reist af nokkrum
ofurhugum. Árangurinn er ein nýt-
ískulegasta höfuðborg heims sem í
búa 1,5 milljón íbúa. Daginn eftir,
eða 1. apríl, verður flogið til gömlu
höfuðborgarinnar Salvador, sem
byggð var i stjómartíð Portúgala um
1800. Tveimur dögum síðar eða flogið
til Foz do Iguacu. Rétt hjá Iguacu
fossunum mætast Argentína og
Paraguy við landamæri Brasilíu.
Þarna gefst möguleiki á að borða
morgunverð í Brasilíu, hádegisverð
í Argentínu og kvöldverð í Paraguy.
Þriggja landa sýn og margréttað á
einum degi. Á síða..ta degi í Brasilíu
er vatnvirkjun skoðuð. Hún mun
vera ein sú stærsta í þessum heimi
og er sameiginlegt byggingarátak
Brasilíu- og Paraguaymanna.
Frá Rio afturer flogið
til London og síðan heim.
Með í þessari ferð verður íslenskur
fararstjóri. Þá er komið að því að
kanna hvað hlutirnir kosta. Þessi
páskaferð til Brasilíu kostar 82,300
krónur. Það er áætlað verð fyrir
einstakling í tvíbýli. Innifalið í verð-
inu eru flugferðirnar, gisting og
morgunverður. Já og akstur milli
hótela og fluvalla í Brasilíu og svo
þjónusta fararstjórans. En fyrir hjón
eða tvo einstáklinga reiknast okkur
til að kostnaður við ferðina með
gjaldeyri og öðrum ferðakostnaði
verði vart undir 260 þúsund krónum.
En Brasilía er Brasílía.
ÞG
Lausnarinn á háum stalli yfir Rio de Janeiro. Á þennan stall leggja allir ferðalangar leið sína sem til borgarinnar koma.