Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986.
Menning Menning
Musica Antiqua.
Endurreisn í
Landakoti
Tónieikar Tónlistarlélags Kristskirkju i Krists-
kiriqu 27. tebnjar.
Flytjendur Musica Antiqua: Camilla Söder-
berg Snorri Öm Snorrason, Ólöf Sesselja
Óskarsdótlir, Marta G. HalldórsdóOir, Hildig-
trmur Halldórsdótlir, Svava Kristin IngóHsdóttir,
Sverrir Guðjórtsson, Kjartan Oskarsson, Helgi
Bragason, Halldór Vilhelmsson, Jón Stefáns-
son.
Við lá að alvarlegur árekstur yrði
milli nýja tínians og gamla eitt laugar-
dagssíðdegi. Þá höfðu menn ráðgert
tónleika Musica Nova og Musica
Antiqua á sama tíma Eins og geíur að
skilja gat slíkt ekki gengið og að ráði
varð að gamli tíminn flutti sig um set
Allt gerðist þetta í bróðemi eins og
nærri má geta. Tónleikar Musica
Antiqua voru einfaldlega fluttir yfir á
fimmtudagskvöld 27. febrúar eins og að
ofan var getið.
EfnLsskrá Masica Antiqua spannaði
á þcssum tónleikum þýska, enska og
spænska endurreisnarmúsík, verald-
lega og trúíirlc'ga, sungna og leikna.
Fjöld höfúnda og verka var sKk að
hálf grein færi í upptalninguna eina,
en væntanlega nægir að nefria að helstu
vinsældamenn umraedds tímabils áttu
verk á dagskránni og má þar nefna,
Giovanni Perluigi da Palestrina, Tomás
Luis de Victoria, Thomas Morley,
Anthony Dowkmd og ótal fleiri.
Úrvals spilarar - samstilltur hópur
Kjami Musica Antiqua, tríóið myn-
dað af blokkflautu, lútu og gömbu,
verður sffellt betri og betri. Hvert fyrir
sig em þau Camilla, Snorri Gm og
Ólöf Sesselja úrvals spilarar á sín hljóð-
færi og þau em samstillur hópur sem
ber fram afar fagaðan og vandaðan leik.
Tónlist
EYJÓLFUR MELSTED
I leik sínum fara þau eins nærri upprun-
anum og almennt er talið að komist
verði að þessi kjami þolir fyllilega
samanburð við Ðesta þá hópa erlendis
sem hylli hafa náð á sviði flutnings
tónlistíir með uppmnakgum hljóðfær-
um. Þar hefúr markinu svo sannarlega
verið náð og næst liggur fyiir að út-
víkka hópinn. En það verður að gerast
á jafhmeðvitaðan og ömggan hátt og
uppbvgging kjamans hefúr farið ft-un.
Það verður aldrei nógsamlega þakkað
að á okkar landi skuli liópur fagfólks
sem vel kann til verka hafa riðið á
vaðið og byggt upp okkar hefð í leik á
uppmnahljóðfæri og varið okkur fyrir
öllu því fúski sem nágrannaþjóðir okkar
hafa þurft að fá yfir sig í nafiii þessarar
stefhlT'
Björtvon
Átta manna sönghópur var með i
flutningnum að jiessu sinni. Það var
velsyngjandi hópur sem samræmdist vel
hljóðfæraleiknum í stfl. Aðaleinsöngv-
arar vom Marta G. Hafldórsdóttir og
Sverrir Guðjónsson. Hann kom hér
fram, i fyrsta sinn að ég held, sem
kontratenór. Ókunnugt er mér hvemig
Sverrir hefúr hlotið þjálfún á þessu
sviði, en dettur aflt eins í hug að hann
sé sjálfmenntaður í fræðunum. Röddin
og blær hennar er sannfærandi og við-
kunnanleg en hann mætti gæta betur
að hreinleika tónsins og eins að styrk
í samsöng, því þessi sérkennilega rödd
sker sig svo auðveldlega úr. Það á
einkar vel við Möitu Halldórsdóttur,
og hennar unglega, allt að því drengja-
lega, raddkarakter að syngja gamla
músík hvort sem um er að ræða antikar-
íur, eða alls kyns söngva frá endurreisn-
artíma, eins og hér. Hreinn tónn, skýr
og góður textaframburður, fjölhæfni og
almennt gott músíkafltet að baki söng
hennar gerir hana að einhverri björt-
ustu söngvaravon ókkar í fnmitíðinni.
Og víst getur maður öfúndað músik-
neytendur endurreisnartímans að hafa
ekki átt neina Durana, Idol og guð má
vita hvaða stuð í steríó yfir sér allan
liðlangan daginn, heldur bara þessa
yndislegu músík til að fara sem allra
þægilegast í sínar taugar.
- EM
19
Hárgreiðslustofa
Eddu Hinriks,
Æsufelli 6, Breiðholti
Sími 72910.
f Opið til kl. 8.00 á fimmtudögum
og laugardögum kl. 10-16.
Sendla
vantar á afgreiðslu strax.
Þverholti 11, sími 27022.
Styrkirtil
listiðnaðarnáms
Íslensk-ameríski listiðnaðarsjóðurinn (Menningar-
sjóður Pamelu Sanders Brement) og Íslensk-ameríska
félagió auglýsa til umsóknar tvo námsstyrki við Hay-
stack listaskólann i Maine til 2-3ja vikna námskeiða
á tímabilinu 8. júní til 17. ágúst 1986.
Námskeiðin eru ætluð starfandi iistiðnaðarfólki í
eftirtöldum greinum: leirlist, textíl ýmiss konar, gler-
blæstri, listjárnsmíði, málmvinnu, tréskurði, -grafískri
hönnun, bútasaumi,tágavinnu og pappírsvinnu.
Umsóknir berist Íslensk-ameríska félaginu, pósthólf
7051,107 Reykjavík, fyrir 20. mars nk.
Íslensk-ameríska félagið
getrmíha-
VTNWINGflR!
27. LEIKVIKA-1. MARS1986
VINNINGSRÖÐ:
1x1-12 1-11 2-2 1 1
1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR,
67400(4/11) +
2. VINNINGUR: 11 RÉTTIR,
kr. 389.675,-
75812(4/11)
kr. 7.767f-
17440 53880' 66620 + 66663 + 73031+ 104402 127433 501851
19562 62255' 66648 + 66668 + 79809 + 104482 131476
24123 65250+ 66653 + 67500 + 97896 + 106180' 166248 Úr 26. viku:
52913' 66616 + 66662 + 67543 + 97917 125152' 167701 80677 +
' = 2/11
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+ ) verða að framvísa stofni eða senda
stofninn og fuilar upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra
Getrauna fyrir lok kærufrests.
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Kærufrestur er til mánudagsins 24. mars 1986, kl. 12.00 á hádegi.