Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1986. Stiórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Hef engar skyldurvið BJ segir Kristófer Már: „Berstfyrirþvíað > mái koma kellingunum út „Ég er enginn staðgengill Guð- mundar Einarssonar og hef engar skyldur gagnvart honum né Banda- lagi jafnaðarmanna. Það voru 500 manns sem kusu mig á Vesturlandi og ég er fulltrúi þess fólks,“ segir Kristófer Már Kristinsson, sem taka mun sæti formanns BJ á Alþingi í næste mánuði. Kristófer Már leysti Guðmund raunar einnig af fyrir áramót og sat þá ekki þingflokksfundi BJ. „Ég hef ekkert ákveðið í því efni nú. Síðan í vetur hefur Kristín Kvaran yfirgef- ið þingílokkinn. Ef ég sit þingflokks- fundi höfúm við Stefán Benediktsson meirihluta, við unnum saman í vet- ur. En ég berst auðvitað fyrir því að koma þessum kellingum út og það hefur þegar borið nokkum árangur. Ef það verður gaman á þingflokks- fundum, þá mæti ég.“ Er Kristófer Már þá í Bandalag- inu? „Það væri nú að fara út í dul- speki að tala um félagsmenn í banda- lagi sem hefur enga félagaskrá. En þama var fólk sem vildi umfram allt losna við mig. Ég sé ekki að neitt hafi breyst hjá því annað en að það eru fleiri stafsetningar- og málvillur í því sem það sendir frá sér, eftir að Kristófer Már: „Hef engum skyld- um að gegna við Guðmund Einars- son eða Bandalag jafnaðarmanna". ég hætti sem starfsmaður BJ.“ Hvað er varaþingmaðurinn annars að gera? „Ég vinn hjá fjölmiðlafýrir- tækinu Miðlun, sem er mjög ört vaxandi fýrirtæki eins og Bandalag- ið var á meðan ég vann hjá því,“ segir Kristófer Már Kristinsson. -HERB Tiu manna makar: Jón Helgason og Matthías Bjarnason í ráðherrastólunum á Alþingi í gær. DV-mynd: GVA. Fámennisvald í stjórnarráðinu - átta ráðherrar á þingi Norðurlandaráðs Mikil völd hafa nú safnast á fárra herðar í Stjómarráði íslands. Átta af tíu ráðherrum eru erlendis, sjö á þingi Norðurlandaráðs í Kaup- mannahöfh og sá áttundi á leið þangað frá Strassburg. Jón Helgason gegnir því öllum ráðherraembættum framsóknarmanna og Matthías Bjamason fýrir alla ráðherra sjálf- stæðismanna. Þessa dagana er Jón frá Segl- búðum því forsætisráðherra, dóms- mála- og kirkjumálaráðherra, sjáv- arútvegsráðherra og félagsmálaráð- herra. Isfirðingurinn Matthías teyg- ir sig enn lengra. Hann er fjármála- ráðherra, utanríkisráðherra, við- skiptaráðherra, iðnaðarráðherra, samgönguráðherra, heilbrigðisráð- herra og menntamálaráðherra. Auk ráðherranna átta em sjö aðrir þing- menn á þinginu í Kaupmannahöfn og slangur af aðstoðarfólki. Ekki er reiknað með að þessi dýrð standi lengi hjá þeim Jóni og Matt- híasi. Hinir ráðherramir fara að tínast heim aftur strax á fimmtudag. -HERB Alþýðubandaiagið í Reykjavík: Skipan framboðs- lista ákveðin Tryggvi Þór Aðalsteinsson, formað- ur MFA, Skúli IJioroddsen, fram- kvæmdastjóri Vonar, og Anna Hild- ur Hildibrandsdóttir skrifstofumað- ur. Alls em 30 nöfn á listanum. 'fveir núverandi borgarfulltrúar skipa tvö þau neðstu, þau Guðmundur Þ. Jónsson og Adda Bára Sigfúsdóttir. -APH Samþykkt liefúr verið skipan framboðslLsta Alþýðubandalagsins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi skipar efsta sætið. Annað sætið fyllir núvemdi varaformaður flokksins, Kristín Ólafedóttir. Síðan koma þau Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi, Össur Skarphéðinsson ritstjóri. Framboð Alþýðubandalagsins í Mosfellssveit: Konur leiða slaginn í Mosfellssveit hefur Alþýðu- bandalagið kynnt framboð til hreppsnefndarkosninga í vor. Efst á lista er Aðalheiður Magnúsdóttir og í öðm sæti Sigríður Halldórsdóttir. Karlmaður er í þriðja sæti, Fróði Jökulsson, en kona í því fjórða, Soffia Guðmundsdóttir. í fimmta sæti er svo PéturHauksson. Alþýðubandalagið bauð ekki fram sér í kosningunum 1982 heldur með öðrum á Lista félagshyggjumanna. Sá listi fékk tvo hreppsnefndarmenn af sjö og var Aðalheiður annar vara- maðurþess lista. Alþýðuflokkurinn hefúr nú einn í hreppsnefiid Mosfellshrepps en Sjálfstæðisflokkurinn fjóra hrepps- nefhdarmenn og þar með hreinan meirihluta. HERB I dag mælir Dagfari________I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari Guðmundur er ekki munkur Formenn stjómmálaflokkanna hafa setið fyrir svörum í sjón- varpinu undanfarnar vikur. Síð- astur í röðinni var Guðmundur Einarsson, formaður Bandalags jafnaðarmanna. Hann var óneit- anlega skemmtilegastur for- mannanna, þótt ekki væri fyrir annað en að sitja fyrir svörum fyrir flokk sem ekki er hægt að skilgreina - og er í rauninni ekki stjómmálaflokkur að sögn Guð- mundar. En það var ekki bara það að flokkur Bandalags jafnaðar- manna væri ekki flokkur. Banda- lagið er hvorki til hægri né vinstri. Flokksmenn kenna sig að vísu við jafnaðarmennsku en eru þó alls ekki jafnaðarmenn. Þeir eru að minnsta kosti allt annars konar jafhaðarmenn en annars staðar þekkjast. Þetta hafa jafnaðarmenn á Norðurl- öndum sömuleiðis fallist á og hafa því vísað Stefáni Benedikts- syni kurteislega frá þegar hann vildi skipa sér í raðir þeirra á Norðurlandaþingi. Þetta skil- greinir formaðurinn með þeim einfalda hætti að bandalagsmenn sækja partí en ekki pólitíska fundi. Þeir velja sér partí eftir því hver vill taka við þeim. Þeir banka upp á i partíunum og láta á það reyna hver vill bjóða þeim inn. Partí eru nefnilega ekki pól- itísk og þess vegna má það einu gilda fyrir Stefán Ben. hvort hann situr með hægri mönnum eða vinstri mönnum. Aðalatriðið er að hann komist einhvers stað- ar í partí. Við erum ekki munkar, segir Guðmundur og er út af fyrir sig ánægjulegt að vita það. Það er sennilega þess vegna sem banda- lagsmönnum þykir gaman í par- tíum og nota til þess útilokunar- aðferðina til að ákveða hvaða partí þeir sækja. Við lifum í þessu þjóðfélagi og verðum að sætta okkur við fjórflokkana, sagði Guðmundur og tók sérstaklega fram að bandalagsmenn treystu sér ekki til að labba sig út úr þjóðfélaginu, yfirgefa það svona alveg á stundinni, en hann taldi útilokað að Bandalagið gæti sætt sig við samstarf við fjórflokkana nema fiórflokkarnir gætu sætt sig við samstarf við Bandalagið! Guðmundur taldi hins vegar þann möguleika vera fyrir hendi að Bandalagið yfirtæki einhvem hinna flokkanna og nefndi Sjálf- stæðisflokkinn helst í þvi sam- bandi! Alþýðuflokkurinn kom einnig tilgreina. Bandalag jafnaðarmanna er ekki flokkur. Bandalagsmenn eru ekki munkar, að minnsta kosti ekki formaðurinn. Banda- lagið tekur ekki þátt í pólitík fiórflokkanna. Ráðherrar Banda- lagsins eiga ekki að vera þing- menn. Bandalagið býst ekki við að bjóða fram í sveitarstjórnar- kosningunum og formaðurinn mun letja fylgismenn Bandalags- ins til framboðs. Allt eru þetta hinar gagnlegustu upplýsingar og þó sérstaklega það að á næs- tunni munu setjast inn á Alþingi fyrir hönd Bandalagsins fólk sem alls ekki er í Bandalaginu. Það mun sennilega einsdæmi í sögu Alþingis að þingflokkar gefi ut- anflokkamönnum tækifæri til að svara fyrir flokk sem þeir eru ekki í. En þá er líka þess að geta aftur að Bandalagið er ekki flokkur og hvorki til hægri né vinstri og leggur meira upp úr partíum en pólitík. Þetta vafðist ekkert fyrir for- manninum sem var orðinn for- maður fyrir tilviljun og taldi það aðalsmerki Bandalagsins að skipulagsleysi væri ekki sálu- hjálparatriði hjá hinum óskil- greinda hópi sem stendur að Bandalaginu. Skipulagið er svo fullkomið að formaðurinn letur bandamenn sína til að fara í framboð en hvetur hins vegar utangarðsmenn til að setjast á Alþingi fyrir Bandalagið! Það er von að Guðmundi Ein- arssyni þyki lítið til fiórflok- kanna koma sem hafa tamið sér það skipulagsleysi að bjóða fram í kosningum og velja flokksmenn til setu á Alþingi. Sennilega stafar þessi dæmafáa vitleysa í fiórflokkunum af þeirri ástæðu að þar hljóta einhveijir munkar að fyrirfinnast. Guðmundur er ekki munkur. Þetta var svo skemmtilegur þáttur að Guðmundur Einarsson hlýtur að vera sjálfkjörinn í þátt- inn hjá Ómari Ragnarssyni í kvöld. Þar að auki getur hann sungið. Sem er nauðsynlegt í partíum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.