Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986. 35 Erlendirfréttaritarar Erlendir fréttaritarar Erlendir fréttaritarar Erlendir fréttaritarar ■ V 2000 myndbandstækin urðu undir í samkeppninni við VHS og Betamax. Framleiðsla á V 2000 myndbandstækjum frá Philips er nú endanlega lokið Viðgerðar- og varahlutaþjonustu haldiðáfram Frá Sigrúnu Harðardóttur, fréttarit- ara DV i Amsterdam: Philips í Hollandi gaf þann 12. febrúar síðastliðinn út fréttatilkynn- ingu um að framleiðslu á V 2000 myndbandstækjum verði ekki haldið áfram. Framvegis munu þeir leggja áherslu á framleiðslu tækja með japönsku VHS kerfi. Notendur V 2000 myndbands- tækja geta verið rólegir. Framleiðsla V 2000 myndbanda heldur áfram og gefur Philips loforð um að tækni- þjónustu og viðgerðarþjónustu verði einnig haldið áfram. Munu þeir full- nægja varahlutaeftirspum. „Þar. sem við höfum átt í langvar- andi vandræðum með sölu V 2000 myndbandstækja verðum við að hætta framleiðslu," útskýra tals- menn Philips í stuttu máli. Endalok framleiðslu V 2000 mynd- bandstækja kemur ekki á óvart. Þegar árið 1983 varð Philips að viðurkenna að V 2000 væm mark- aðsleg mistök. Þeir reyndu að auka sölumöguleika V 2000 myndband- stækja með því að lækka verðið um hundmð gyllina. í september síðast- liðið ár gerði aðstoðarforstjóri raf- tækniframleiðsludeildarinnar, W. den Tuimder, kunnugt að vandræði framleiðslunnar væru úr sögunni vegna lágs verðs og trúði hann því að V 2000 ætti viðreisnar von, meðal annars vegna góðs markaðsmögu- leika dýmstu tegundarinnar. Árið 1986 stendur Philips illa að vígi í samkeppni við japönsk fyrir- tæki við framleiðslu á myndbands- tækjum, þrátt fyrir að Philips sé brautryðjandi í framleiðslu mynd- bandstækja. Þegar árið 1971 kom Philips með fyrsta myndbandstækið á markaðinn, en sala var takmörkuð. Áhugi almennings varð ekki vem- legur fyrr en um miðjan 8. áratuginn er Japanir komu með ódýrari út- gáfur á markaðinn. JV C kynnti VHS myndbandskerfið og Sony svaraði með Betamax. Philips varð að koma með eitthvað betra. Svarið kom seint. Það leið fram til ársins 1979 áður en Philipskom með fyrstu eintök V 2000 myndband- stækisins á markaðinn. Með V 2000 ætlaði Philips sér að yfirtaka heims- markaðinn. í öllum heimshlutum vom V 2000 myndbandstæki á mark- aðnum og þeir ætluðu sér að ná minnst 50% af Evrópumarkaðinum. Það fór á aðra Ieið. Nýja myndband- sverksmiðja þeirra í Vín lenti í vandræðum sem orsakaði seinkun. Fjöldaframleiðslan náði ekki fullum afköstum fyrr en 1981, og í millitíð- inni var heimsmarkaðurinn skiptur milli VHS og Betamax. í Bandaríkj- unum seldu Philips nauðbeygðir VHS myndbandstæki framleitt af japönsku dótturfyrirtæki og í Ástral- iu fór á sömu leið. Aðeins í Evrópu seldust V 2000 myndbandstæki, en Philips varð að sætta sig við að koma ekki yfir 20% af framleiðslu sinni á markað. Það var því ekki annað að gera fyrir Philips en að taka upp fram- leiðslu VHS myndbandstækja. í gegnum VHS vonuðust þeir til að styrkja stöðu sína á markaðinum. Síðastliðið ár hafði Philips 15% af markaðinum í Evrópu. Sá hlutur á innan þriggja ára eftir að vaxa í 25%. Heimsmarkaðurinn fyrir myndbandstæki 1986 gerir ráð fyrir 30 milljónum eintaka. Þar af á Philips 2,6 milljónir á sírnmi reikn- ingi. Helming þessara tækja fram- leiðir fyrirtækið sjálft en hinn helm- ingurinn er framleiddur í Japan. VHS hefur sigrað. „Eiginlega er það óraunhæft," sagði den Tuimder fyrir ‘á ári. „V 2000 mvndband- stækið er tæknilega besta tækið, því næst Betamax og VHS er það sísta. Iælegasta tækið hefur því unnið markaðinn." Philips var með besta myndbandstækið á markaðinimi, nú ætla þeir að ireyna aftur með VHS myndbandstæki. Danskir bændur rækta '] valmúa í stórum stíl Eiturtyfjaneytendur stela fleiri tonnum til morfínframleiöslu 1 HaukurLárusHauksson,fréttaritari vabnúaræktunina og þjófhaðina Ræktunin dreifð um landið ? DVíKaupmannahöfn: 1983 hefur fíkniefiialögreglan safoað Árið 1984 var valmúaþjófoaður ? Segja má að danskur landbúnaður upplýsingum um umfang þjófoað- kærður í 28 lögsagnammdæmum. hafi lappað upp á ástand anna. Draga yfirvöld engar áíyktan- Árið á undan var aðeins kært í 14 danskra eiturlyfjaþræla á allsér- ir af upplýsingum þessum en aftur á lögsagnarumdæmum svo þama er ^ ■ stakan hótt. í stað þess að kaupa móti hafa margir þingmenn tekið umhelmingsaukninguaðræða. smyglað heróín dýrum dómum þærtilsín. komast þeir yfir efni sitt með því að Eru það aðallega þingmenn jafn- Þjófnuðunum fjölgaði einnig um stela valmúajurtum af ökrum bænd- aðarmanna og miðdemókrata. Krefj- helming á sama tíma og gekk það anna, en belgir þeirra innihalda ast þeir að lagt verði bann við verstyfir Austur-Jótland. ópíum. vahnúarækt danskra bænda. Þing- Bændumir rækta valmúa vegna menn vinstriflokksins, sem á traust Hinar fallegu en válegu jurtir eru birkisins, en það eru komin sem eru fylgi meðal bænda, benda í því ræktaðar af 5- 600 bændum sem eru á rúnnstykkjum og franskbrauði. sambandi á útflutningstekjur land- dreifðir lun allt landið. Er ræktun Þó stolið sé innan við einu prósenti búnaðarins. Nema þær milli 20 og valmúans hægstæðust á sendnum af uppskerunni árlega, verða bænd- 30 milljónum danskra króna þegar jörðum þar sem önnur ræktun er umir ekki fyrir fiárhagslegum velárar. ekki eins óbótasöm. skakkafóllum. Niels Anker Kofoed, landbúnaðar- Aftur ó móti græða þjófamir. Af ráðherra og vinstrimaður. hefor Lögregluyfin’öld hafa engai- end- þeim valmúajurtum, er stolið var sjálfur ræktað valmúa á jörð sinni á anlegar tölui- um valmúaþjófnað 1984, fengust 10 tonn afvalmúabelgj- Borgundarhólmi. Vísar hann allri síðasta árs fyrirliggjandi en reikna unt. Dugar það til framleiðslu á 10 " ' ' ’ '” *' t.* -•-« t-._- .» e-u.... i..c -i :» .c_ kílóum af ópíum eóa 2,3 kílóum af hreinu morfíni. Áhrif morfíns em svipuð áhrifom heróíns og er það jafndýrt í sölu. Því reiknast mönnum að stolið hafi verið valmúum að verðmæti 23 milljónir danskra króna. Danirgagnrýndir Þetta magn morfíns samsvarar nokkum veginn því magni heróíns sem lögreglan gerði upptækt sama ár. Því má segja að bændumir hafi „bætt“ skaða eiturlyfjaþrælanna. Lögreglan telur víst að valmúa- þjófoaðir séu ekki alltaf kærðir og þvi sé grundvöllur ofangreindra talna ekki endilega réttur. Geti magn morfín.s, sem fengið er með þessum hætti, verið enn meira. Auk þess em þun'kaðir valmúar, sem kaupa má í blómaverslunum. soðnir og fæst þannig eins konar ópiumsoð. Þykir nokkuð mótsagnakennt að Danir skuli rækta valmúa í stómm stíl meðan þeir reyna ásamt öðrum þjóðum að stöðva ræktun hans annars staðar, eins og í Suðaustur- Asíu. Hefur valmúaræktun Dana verið gagnrýnd i nágrannalöndunum. eins og Sviþjóð og Vestur-Þýskalandi. Hefur sænska lögreglan gert ópíum. sem talið var komið af ökrum dan- skra valmúabænda, upptækt. Það er því ekki einungis Kristjanía sem er Svíum þymir í augum í þessum efnum. Kröfur um bann viö valmúa- „Varúð! Akurimi er úðaður með sterku eitri.“ Skilti sem þessi hindra ekki ræktun valmúaþjófana sem framleiddu morfín að verðmæti 23 milljónir danskra Eftir uppljóstranir varðandi krónal984. Stöðugt frost í Danmörku Truflanir á skipaferðum vegna ísmyndunar Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari DV í Kaupmannahöfn: Undanfarið hefur háþrýstisvæði yfir norðanverðri Evrópu orsakað stöðug frost hér í Danmörku. Hefur meðalhiti febrúarmánaðar verið nokkuð undir meðallagi en á daginn hefiu frostið verið allt að '8 gráður og á nætumar hefur verið allt að 15 stiga frost, Sjávarhiti er undir fi’ostmarki og hefor nú myndast töluverður ís við mestallt landið. Á Eyrai-sundi og í Beltunum er einungis fært traust- byggðum skipum með mikið vélarafl. Minni strandferðaskip hafa setið fóst í ísnum úndanfarna daga og hefur því verið nóg að gera fyrir þá 4 ísbrjóta sem eru að störfum. Á Eyrarsundi hefor sænskur ísbrjótur hjálpað til þannig að skipaferðir til og frá Kaup- mannahöfo hafa ekki truflast af völd- um íssins. Er búist við að ísinn muni létta pyngju ísþjónustu ríkisins nokkuð þrátt fyrir lækkað olíuverð, en 4 ís- brjótar nota 60-70 tonn af olíu á sólar- Veturinn í fyrra þótti með verra móti hvað verðar útgjöld við rekstur ísbrjótanna, en þau námu þá um 150 milljónum íslenskra króna á núver- andi gengi. Sums staðar er ísinn ekki aðeins þykkur heldur hefur hann hrúgast upp í íshrauka vegna straums og vinda. Hafa hraukar þessir orðið allt að 5 ' metra háir. Frosthörkurnar hafa valdið minni skipum og bátum margháttuðum erfið-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.