Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986. 11 Fulltrúi ís- landsí 8. sætið. Fulltrúi íslands í keppninni ungfrú Evrópa, Auður Pálmadóttir, lenti í 8. sæti er úrslitakeppnin fór fram á Möltu sl. föstudag, 28. febrúar. Auður fór utan á vegum Lúxus og var valin fulltrúi íslands án nokkurrar forkeppni. Fegurðarsemkeppnin ung- frú Evrópa er einungis tveggja ára gömul og í þetta sinnið tóku 24 stúlkur þátt í henni víðast hvar að úr Evrópu. Það var fulltrúi Svíþjóðar sem hreppti titilinn en fulltrúi Frakklands varð í öðru sæti. Auður Pálmadóttir er væntanleg heim til Islands í dag en hún hefúr verið erlendis í tengslum við keppnina síðan 20. febrúar sl. -S.Konn. Selfoss: Áttaþorra- blót í Inghóli Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Átta þorrablót voru haldin í veit- ingastaðnum Inghóli á þorranum í ár. Þetta kom fram í spjalli fréttaritara við Bjameyju Jónsdóttur, skrifstof- ustúlku hjá veitingastaðnum. Kaffi- hlaðborð eru á hverjum sunnudegi frá kl. 14.30-18.00. Eru þau afar vinsæl. Þann 26. janúar sl. var rétt ár liðið frá því að Inghóll var vígður. Hefur staðurinn veitt mörgum atvinnu i þessu láglaunabyggðarlagi. Um 30 manns er á launaskrá. Margt af því fólki vinnur hálfan daginn. Dansleikir eru haldnir i Inghóli um helgar. Er alltaf að aukast sá fjöldi Reykvíkinga sem sækir þangað. Þá er talsvert um að fólk úr Reykjavik fái veitingastaðinn til að sjá um mat- arveislur fyrirsig. Að sögn Gunnars Friðþjófssonar bryta kostar 22.500 krónur að halda matarveislu fyrir 30 manns. Ef hann er heimsendur kostar hann fyrir sama fjölda 19.800 krónur. 180-200 manns geta borðað í einu í Inghóli. Styrktarfelag aldraðra á Selfossi Tíu nýir félagsmenn Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Aðalfundur Styrktarfélags aldraðra á Selfossi var haldinn nýlega. Var fjölmenni á fundinum og gengu tíu manns í félagið. Hafa aldrei fyrr geng- ið eins margir í það á aðalfúndi en Styrktarfélag aldraðra er fimm ára síðan sl. haust. Það var myndarlegt fólk og vinnulú- ið, en lífsglatt, sem gekk til liðs við félagið í þetta sinn. En þetta fólk heimtaði ekki allt af öðrum eins og nú er gert í ríkum mæli og af mikilli frekju að þvi er mér finnst. Nú eru 186 manns í Styrktarfélagi aldraðra. Á síðasta ári voru famar tvær ferðir innanlands á vegum félags- ins, átta daga ferð á Snæfellsnes og tiu daga ferð um Skagafjörð. Kostaði allt þetta hvern mann 5 þúsund krón- ur. Voru allir ánægðir og þakklátir fyrir þá miklu fyrirhyggju og velvild sem stjómin sýndi í áðurgreindum ferðalögum. Einnig voru famar tvær utanlandsferðir. Ókútaf Bifreið á leið úr Mosfellssveit lenti í gærmorgun út af Vesturlandsvegin- um við borgarmörkin þar sem öndveg- issúlurnar em. Kona ók bifreiðinni og var hún ein í henni. Hún slapp ómeidd. Vegkanturinn er hár þarna og þykir mildi að ekki fór verr. Bifreiðin skemmdist nokkuð en er ekki talin ónýt Viðtalið Viðtalið Viðtalið Viðtalið „Konan mín segir mig gleyma líðandi stundr‘ „Það var mikið af krökkum og magnað líf í Túnunum," sagði Guð- mundur Hauksson sem tekur innan skamms við starfi sparisjóðsstjóra hjá Sparisjóði Haíharíjarðar, Hann er Reykvíkingur og alinn upp í Túnunum. Honum líkaði svo vel að þar bjó hann til 20 ára aldurs eða þar til ástin dró hann til Haínar- fjarðar. „Við höfðum Ármannsvöll- inn alveg fyrir okkur, strákarnir í Túnunum, og ijöruna fyrir neðan Klúbbinn. Nú er búðið að byggja á þessum svæðum okkar. Ég gifti mig til Hafnarfjarðar. Konan mín heitir Sigrún Kristins- dóttir og er innfæddur Hafnfirðing- ur. Við eigum 3 börn og þau em líka Hafnfirðingar. Hins vegar er umdeilt hvort ég er það,“ sagði Guðmundur. Lýjandi að vera fjármálastjóri Arnarflugs Guðmundur er 36 ára og hefur að undanförnu gegnt því erfiða starfi að vera fjármálastjóri Arnarflugs. „Ég hef yfirleitt haft mjög mikið að gera en þessi ár hjá Amarflugi hafa slegið öll met. Þetta er mjög lýjandi starf og ég hef ekki haft möguleika á að sinna mínum áhugamálum." Guðmundur sagðist ekki vera uggandi um framtíð Amarflugs. „Amarflug er á góðri leið með að yfirstíga þau vandamál sem fylgja því að hefia áætlunarflug. Miðað við þær ráðstafanir, sem nú eru á prjón- unum, er ég bjartsýnn á framtíð fé- lagsins." ...x-.5. iiiiiainjM'utmR.'ii.iwlti'.v'' Guðmundur Hauksson hyggst hætta því erfiða starfi að vera fiármála- stjóri Arnarflugs. Hann vill heim í Hafnai'fiörð og mun taka við starfi sparisjóðsstjóra hjá Sparisjóði Hafnarfiarðar um næstu mánaðamót. DV-mynd PK Eins og svo margir fiármálaspek- ingar á íslandi gekk Guðmundur í Verslunarskólann og lauk þaðan stúdentsprófi 1970. Þá lá leiðin í viðskiptafræðina í Háskóla íslands og útskrifaðist hann þaðan 1976. Guðmundur vann heilmikið með náminu, var aðalbókari hjá Seltjam- ameshreppi og síðan sveitarstjóri Vatnsleysustandarhrepps til l.sept. 1976. Hann var skrifstofústjóri Málningarverksmiðjunnar Hörpu hf. í Reykjavík frá 76 til 81, er hann hóf störf hjá Amarflugi. Get núna farið að sinna mínum áhugamálum „ Sparisjóðsstjórastarfið verður auðvitað mjög frábrugðið þeim störf- um sem ég hef hingað til unnið. En sú reynsla sem ég hef hlotið við fiár- málastjórnun á eftir að nýtast mér vel. Ég hlakka til að hefia þetta starf, vera nærri heimili mínu og geta kannski farið að sinna ein- hverju af áhugamálum mínum." Áhugi Guðmundar beinist fyrst og fremst að tvennu, íþróttum og flugi. Það hljómar svolítið einkennilega að hjá Arnarflugi gat hann aldrei sinnt fluginu. Hann hefúr einkaflug- mannspróf, átti hlut í flugvél í gamla daga og hefur það sterklega í liuga að fiárfesta í flugvél á næstunni. Má ekki gleyma iiðandi stund „Aðstæður til einkaflugs á íslandi em með því besta sem gerist í heim- inum. Það er lítil flugumferð, tært loft, gott útsýni, sérstaklega á góð- viðrisdögum, og víða hægt að lenda.“ Aðspurður sagðist Guðmundur ekki hafa neina sérstaka framtíðar- drauma.„Ég ætla að reyna að njóta líðandi stundar meira en ég hef gert. Þótt maður sé upptekinn og að stefna að einhverjum markmiðum þá má maður ekki gleyma að njóta þess að vera til á hverjum tíma. Konunni minni finnst ég ekki hafa lifað nægilega eftirþessari lífssvn." -KB Hótel Húsavík býður upp á margs konar þjónustu GEGNUMIS Góö aðstaða til útiveru Ættarmót Helgarferðir fyrir saumaklúbba Veiði í gegnum ís F ermingarveislur Árshátíðir Veislur fyrir hvers konar tækifæri Ráðstefnur, fundir Dansleikjahald Endasprettur eftir Peter Ustinov Leikfélag Húsavflmr Þríréttaður kvöldverdur ogleiksýningkr. 1.100,- + gisting í eina nótt í tveggja manna herb. kr. 1.650,- + Flug REK-HZK-REK gisting, kvöldverður, leikhús kr. 4.500,- (Gildir til 20.3.) HÓTEL HÚSAVÍK Sími 96-41220 Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.