Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitn-
eskju um frétt - hringdu þá í
sima 687858.
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst.óháð dagblaö
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986.
Framsókn
íReykjavík:
Sigrún
skipar
efsta
sætiö
Sigrún Magnúsdóttir kaupmaðui'
skipar efsta sætið á framboðslista
Framsóknarflokksins fyrir borgar-
stjómarkosningamar í vo.r og Al-
freð Þorsteinsson, forstjóri Sölu-
nefndar varnarliðseigna, verður í
öðru sæti.
Þessi skipan er samkvæmt tillög-
tun uppstillingarnefndar ílokksins.
Nefndin hefiu- þegar ákveðið fimm
efstu sætjn. Á næstu dögum verður
síðan gengið endanlega frá listan-
um og hann borinn undir atkvæði
fúlltrúaráðs flokksins.
í þriðja sæti er Þrúður Helga-
dóttir, litunarsérfræðingur á Ála-
fossi. Hallur Magnússon háskóla-
nemi skipar fjórða sætið og Mar-
geir Daníelsson. frænkvæmdu-
stjóri lífeyrissjóðs SÍS. f'yllir
fimmta sætið.
-APH
RAÐIST
ÁMANN
MEÐ HNÍFI
Maður kom til lögreglunnar í
Reykjavík í nótt og kærði árás á
sig með hntfi. Ráðist var A mann-
inn fyrir utan veitingahúsið
Hrafninn við Skipholt og hann
rændur.
Maðurinn, sem var lítisháttar
skaddaður, sagðist hafa verið með
um níu þúsund krónur á sér. At-
burður þessi gerðist á þriðja íi-
manum í nótt. Málið er nú í rann-
sókn hjá Rannsóknarlögreglu rik-
isins. -SOS
T
RAUSTIR
MENN
25050
sEnDiBíinsTöÐin
LOKI
Þá er að bauna á Svíana!
Flugleiðaþota hætti í moigun við lendingu á síðustu stundu:
Herþotur fyrir
á flugbrautinni
Flugleiðaþota með 257 manns um
borð neyddist á siðustu stundu til
að hætta við lendingu á Keflavíkur-
flugvelli um klukkan hálfsjö í morg-
un. Ástæðan er sú að tvær F-15
herþotur Vamarliðsins voru fyrir á
flugbrautinni.
„Við vomni komnir að flugbraut-
arendanum þegar við gáfum fullt
afl og tókum klifurbeygju." sagði
Ámundi H. Ólafsson, flugstjóri DC-8
þotunnar, sem var að koma frá New
York.
„Það hefur eitthvað tafið fyrir
herflugvélunum. Þær vom lengur
að athafna sig á flugbrautinni en
búist var við.
Þetta var ekki alvarlegt og gert
ráð fyrir þessu. Við sáum alltaf við-
komandi á flugbrautinni. Við vorum
aðvaraðir af flugtuminum. Það var
mjög góð samvinna við flugturninn.
Við vorum ekki búnir að fá heimild
til lendingar. Við tókum svo einn
stuttan hring.
Það getur alltaf komið fyrir að
flugvélar séu seinar að taka sig á
loft. Það kom svipað fyrir mig í New
York á síðasta ári. Þá var farþega-
flugvél á brautinni," sagði Ámundi
H. Ólafsson.
Guðmundur Óli Ólafsson, yfirflug-
umferðarstjóri í Keflavík, sagði það
algengt um allan heim að flugvélar
yrðu að hætta við lendingu vegna
þess að flugbraut væri ekki auð.
-KMU
Það er ygglibrún á Helga Skúlasyni og ekki að ófyrirsynju, því
hann býr sig undir að leika einn mesta fant sem William Shake-
speare hefur skapt, kroppinbakinn Ríkharð þriðja. Frumsýning á
Ríkharði þriðja fer fram í Þjóðleikhúsinu núna á laugardaginn, 8.
mars, og taka yfir fjörutíu manns þátt í sýningunni, en breskir
sérfræðingar stjóma henni. -ai
Rekin vegna sýningarstarfa
fýrir Pan-póstverslun:
„Ætla að halda
áfram aðsýna“
- segir Bryntíis Malmö
„Mér hefur verið sagt að vinnuveit-
endum sé ekki stætt á að skipta sér
af hvað starfsmenn geri í sínum fri-
stundum. Auk þess lít ég svo á að við
séum ekki að auglýsa klámvörur held-
ur föt,“ sagði Bryndís Malmö í samtali
við DV í morgun. Henni hefur verið
sagt upp störfúm á skrifstofu Verzlun-
arskóla íslands af skólastjóra skólans,
Þorvarði Elíassyni, vegna sýningar-
starfa hennar í Pan-hópnum svokall-
aða, sem sýnt hefur undirfatnað og
fleira í veitingastaðnum Uppi og Niðri.
„Mér finnst gaman að starfa sem
sýningarstúlka hjá Pan og ég ætla að
halda því áfram. En það er leiðinlegt
að þurfa að hætta hjá Verzlunarskól-
anum með þessum hætti. Mér hefur
boðist fullt starf hjá Pan. Það getur
verið að ég taki því. Ég ætlaði að vísu
að hætta allri vinnu í Islandi í sumar.
Eg er á leiðinni út ásamt unnusta
mínum,“ ságði Bryndis Malmö.
-KB
Skipverji féll
fýrirborð
Vélstjóri á Laxfoss er saknað. Óttast svaraði hann ekki. Hann fanst ekki
er að maðurinn hafi fallið fyrir borð um borð.
í nótt fyrir sunnan land. Fimm vindstig og haugasjór var á
Þegar kalla átti manninn á vakt, þeim slóðum sem Laxfoss var. -SOS
Veðrið
á morgun:
Lægðin á leið
til Noregs
Norðvestanátt verður um austan-
vert landið en sunnan eða suðvest-
anátt um landið vestanvert. ÉI verða
við norðurströndina og sennilega
suðvestanlands líka.
Það sem veldur þessum ósköpum
er að gesturinn okkar frá Ný-
fundnalandi verður á ferð milli Is-
lands og Noregs á morgun. En á
Grænlandshafi er lægð að sækja í
sig veðrið þannig að hallast fer til
sunnanáttar um vestanvert landið.
Ferðaáætlun Grænlandslægðarinn-
ar er óljós ennþá, hún gæti hugsan-
lega verið á leið eitthvað upp Græn-
landssundið.
Vægt frost mun verða um land
allt, hitastigið aðeins undir frost-
marki - á bilinu eitt til fimm stig.
-baj