Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986.
3
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Bflainnflytjendur á þönum, bflasalar í vanda:
Varaforseti
ASÍ tapaði
80 þúsundum
- keypti nýjan bfl rétt fyrir samninga
Bjöm Þórhallsson, varaforseti ASI,
keypti nýjan bil handa frú sinni fyrir
skömmu. Bíllinn hét Citroen Axel og
kostaði 330 þúsund krónur. Um þetta
leyti sat Bjöm við samningaborðið
ásamt félögum sínum úr Alþýðusam-
handinu og fyrr en varði var búið að
semja um að bílar skyldu lækka um
allt að 30 af hundraði. Nýi bíllinn
hans Bjöms kostaði nú aðeins 250
þúsund krónur. Varaforseti ASI hafði
tapað nálega 80 þúsund krónum á
sampingum sem hann átti sjálfur þátt
í að gera.
Tveirdagar
„Þessi hugmynd um lækkun bíl-
verðsins kom upp á borðið hjá okkur
samningamönnunum tveimur dögum
eftir að ég keypti bílinn þannig að það
var lítið við þessu að gera. Auk þess
sat ég uppi með gamlan bíl sem ég
hafði ekki einu sinni haft vit á að selja
þannig að ég tapaði í raun meim,“
sagði Björn Þórhallsson.
- Brá þér ekki þama við samninga-
borðið þegar þér varð ljóst hvert
stefndi?
„Nei, mér brá ekkert. Við hjónin
erum ekki illa stödd og ég er ekki
vanur að hugsa þannig. Ég nota augun
til að horfa fram á við, ekki aftur.“
í sjálfboðavinnu
Nýir bílar rokseljast þessa dagana.
Bílainnflytjendur em á þönum, eða
eins og einn þeirra orðaði það: „Það
má ekkert út af bera í þessu þjóðfélagi,
þá fer allt af stað. Bílamir rjúka út
hjá okkur, það er allt að verða búið.“
Þeir sem fást við sölu notaðra bíla
em hins vegar ekki eins önnum kafn-
ir. Reyndar hafa þeir lítið sem ekkert
að gera. „Ég er í sjálfboðavinnu hérna
á bílasölunni og hef þó íyrir fjölskyldu
að sjásagði einn bílasalinn. „Það
hreyfist ekkert hjá okkur nema al-
ódýrustu bílamir. Þeir efhaminnstu
taka ekki þátt í kapphlaupinu."
Hasttulegurís
á Lagarfljéti
Á Egilsstöðum hefur skapast hætta
af ásókn barna í að leika sér á ísnum
á Lagarfljóti. Vill lögreglan þar vara
foreldra við að leyfa börnum að fara
út á ísinn.
Þótt ís á Leginum og Lagarfljóti sé
víðast þykkur þá hagar svo til norðan
við brúna yfir fljótið að straumurinn
étur stöðugt neðan af ísnum. Þynnist
hann því smátt og smátt, sérstaklega
meðan frost er lítið.
Þessi staður er vinsælt leiksvæði
barna meðan fljótið er ísi lagt. Sækja
þau þangað á hjólum og skautum og
varast ekki hættuna sem undir býr.
Verður lögreglan stöðugt að vera á
varðbergi og vísa ungviðinu frá þess-
um stað.
-GK
íllWW
alla vikuna
Þverholti 11
Sími
27022
Nýr bíll fyrir gamlan
Margar bílasölur hafa lækkað alla
bíla á skrá um 15-20 prósent. Það er
einfaldlega strikað yfir gömlu verð-
miðana og nýjar tölur skráðar eins og
á útsölu i álnavömverslun. Maður
einn, sem hafði ætlað sér að selja bif-
reið sína á 500 þúsund krónur, lækkaði
eign sína strax niður í 360 þúsund eftir
að samningamir lágu ljósir fyrir. Þessi
sami maður seldi bíl sinn á endanum
á 310 þúsund krónur. Annar var svo
heppinn að selja Subaru, árgerð 84,
skömmu fyrir samninga. Hann gat
keypt sér nýjan Subaru fyrir verð þess
gamla með því að bíða í nokkra daga.
„Þetta er kjaraskerðing fyrir okk-
ur,“ sagði bílasali. „Við eigum eftir
að lepja dauðann úr skel þar til mark-
aðurinn jafnar sig.“
-EIR
Björn Þórhallsson við nýja bílinn sem hann keypti handa frú sinni aðeins tveimur dögum áður en hugmyndin
um bílaverðslækkunina kom upp á borð hjá samningamönnum ASÍ og VSÍ. DV-mynd PK.
Mf99,
rrve
Fólksbílar og Sport
Nú fáanlegir með 5 gíra kassa
Afar hagstæð greiðslukjör
VERÐSKRA:
Lada 1200 uppseldur i Lada 1500 skutb., 5 gíra, 221.650
Lada Safír 191.950 Lada Lux frá 210.800
Lada 1500, skutb., 4 gíra, 203.971 | Lada Sport, 5 gíra, frá 325.406
Ryðvörn innifalin í verði.
Allir okkar bílar eru árgerð 1986, ryðvarðir og tilbúnir til afhendingar strax.
Mikið úrval af notuðum bílum til sýnis og sölu
< BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236