Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Síða 10
10
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986.
Útlönd
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Afghanistan:
STRIÐIÐ
ENDALAUSA
Styrjöldin í Afghanistan hefur nú
staðið í rúmlega fimm ár og virðist
engin lausn í sjónmáli á ástandinu
þar. Fómarlömb styrjaldarinnar
skipta hundruðum þúsunda og yfir
fjórar milljónir Afghana hafa hra-
kist frá heimalandi sínu og búa nú
í útlegð í ýmsum löndum.
Stríðið hófst þegar flokkur hlið-
hollur Sovétríkjunum komst til
valda eftir stjórnarbyltingu í
landinu og magnaðist þegar Sovét-
menn réðust inn i landið í desember
1979 til að aðstoða stjórnarherinn í
baráttunni við skæmliða. En þrátt
fyrir mun fjölmennara herlið og
betri búnað hefur Sovétmönnum
ekki tekist að brjóta andspyrnuna
á bak aftur.
Barátta gegn sameiginlegum
óvini
Á sama hátt og afghanska þjóðin
samanstendur af mörgum ólíkum
þjóðflokkum. sem trúin sameinar,
er andspyrnuhreyfingin samsett úr
mörgum mismunandi hópum sem
standa fyrir mismundandi hug-
myndafræði. Hinar ólíku fylkingar
hafa kannski ekki sömu markmið
eða sömu framtíðarsýn, en það sem
sameinar þær er baráttan gegn
sameiginlegum óvini og fyrir frjálsu
Afghanistan.
Þjóðemissinnar eru stærsta og
áhrifamesta fylkingin, þá kemur
Lýðræðisfylkingin, sem aðhyllist
lýðræði að vestrænni fyrirmynd, og
vinstri sinnar, sem verið hafa hallir
undir Kínverja, eru þriðji stærsti
hópurinn. Þeir hafa hins vegar átt
í innbyrðis deilum sem hefur veikt
stöðu þeirra.
Öfgasinnarnir innan andspymu-
hreyfingarinnar eru svo bókstafs-
trúarmennirnir sem hafa einnig
töluverð áhrif og njóta einkum
stuðnings Pakistana, en þeir hafa
einmitt reynt að láta líta svo út sem
hér sé á ferðinni íslömsk trúarbylt-
ing.
Afghanistan þung byrði á
Sovétmönnum
Afghanistan er Sovétmönnum
þung byrði. Um það bil eitt hundrað
og fimmtíu þúsund sovéskir her-
menn eru í landinu og ekkert farar-
snið á þeim þó styrjöldin hafi kostað
Sovétmenn meira en ráð var fyrir
gert í upphafi, bæði í mannslífum
og peningum, og valdi þeim þungum
áhyggjum. Til dæmis talaði Gor-
batsjov um Afghanistan sem
„blæðandi sár“ á flokksþingi so-
véska kommúnistaflokksins í síð-
asta mánuði.
Samningaviðræður í gangi
Óbeinar viðræður hafa verið í
gangi frá árínu 1982 milli stjómar-
innar í Kabúl og yfirvalda í Pakist-
an um brottflntning sovésks herliðs
frá Afghanistan, en mjög skiptar
skoðanir eru um hversu einlægar
þær viðræður eru.
Sameinuðu þjóðirnar hafa haft
milligöngu um þessar viðræður og
segist aðstoðarframkvæmdastjóri
SÞ, Diego Cordovez, sem ferðast
hefur bæði til Kabúl og Islamabad
í Pakistan, vera bjartsýnn á að
árangur náist.
Stjórnin í Kabúl segist hafa unnið
nákvæmar tillögur um brottflutn-
ing í samvinnu við Sovétmenn en
þær verði ekki gerðar opinberar
fyrr en yfirvöld í Pakistan hafi fal-
list á formlegar viðræður. Pakistan-
ar hafa hins vegar ekki viljað fallast
á slíkar viðræður því þeir viður-
kenna ekki stjórnina í Kabúl eða
Karmal forseta.
Skæruliðar fá aðstoð gegnum
Pakistan
Undanfarið hafa stjórnvöld í
Moskvu og Kabúl reynt að auka
þrýsting á Pakistanstjórn til að fá
hana til að gera friðarsamning um
Afghanistan. Slíkur samningur
myndi fela í sér annars vegar að
Sovétmenn drægju herlið sitt til
baka og hins vegar að endi væri
bundinn á það sem stjórnin í Kabúl
kallar „utanaðkomandi afskipi" af
málefnum Afghanistan. Með því er
átt við aðstoð við skæruliða sem eru
þjálfaðir í búðum í Pakistan og
mestur hluti vopna þeirra kemur
þaðan. Auk þess fara vopn og vistir
fyrir um það bil fimm hundruð
milljónir dollara frá Bandaríkjun-
um, Kína og nokkrum arabaríkjum
í gegnum Pakistan til skæruliða á
hveiju ári.
Stjórnvöld í Pakistan hafa að vísu
aldrei viljað viðurkenna opinber-
lega að þau styðji skæruliða, en
andspymumenn sjálfir segjast fá
bæði vopn og vistir í gegnum herinn
í Pakistan. I dag ræður andspyrnu-
hreyfingin yfir nægum vopnum til
að halda áfram baráttu í að minnsta
kosti ár í viðbót þó að landamærum
Pakistan og Afghanistan yrði lok-
að.
Efast um friðarvilja Sovét-
manna
Margir vestrænir diplómatar hafa
látið í ljós efasemdir um einlægni
þessara viðræðna um brottflutning
sovéska hersins frá Afghanistan og
segjast ekki hafa mikla trú á að
Sovétmenn ætli að hætta stuðningi
við kommúnistaflokk Karmal for-
seta. Telja menn tilboð um brott-
flutning vera sett fram til að styrkja
áróðursstöðu Sovétmanna. Erind-
reki í Pakistan sagði tilganginn
greinilega að hafa áhrif á almenn-
ing í Pakistan sem er orðinn lang-
þreyttur á styrjöldinni. Hann sagði
einnig hugsanlegt að Sovétmenn
myndu gera einhvers konar sam-
komulag án þess að ætla sér að
halda það að fullu, vitandi hversu
eyðileggjandi áhrif slíkt samkomu-
lag myndi hafa á andrúmsloftið
innan andspymuhreyfingarinnar
og tengsl hennar við Pakistan.
Afghanskir skæruliðar að lokinni hernaðarþjálfun í Pakistan, reiðubúnir til að snúa heim og beijast við Sovétmenn.
Milljónir Afghana hafa flúið land vegna styrjaldarinnar og hafast við í flóttamannabúðum i ýmsum löndum,
langflestir í Pakistan.
Byltingin ekki sósíalísk?
Embættismenn í utanríkisráðu-
neytinu í Pakistan hafa ekki viljað
taka undir þessi viðhorf. Þeir segj-
ast sannfærðir um að Sovétmönnum
sé alvara með að vilja draga sig út
úr Afghanistan. Þeir benda á að
Afghanistan sé þungur baggi á
Sovétríkjunum, bæði efnahagslega
og pólitískt. Þá hafa menn tekið
eftir því að yfirvöld í Moskvu tala
ekki lengur um stjómarbyltinguna
í Afghanistan sem sósíalíska bylt-
ingu og telja ýmsir að með því sé
verið að gefa í skyn að Bresnéf-
kenningin eigi ekki endilega við um
Kabúl, en samkvæmt þeirri kenn-
ingu skuldbinda Sovétmenn sig til
að koma öðrum kommúnistastjórn-
um til hjálpar þegar þurfa þykir.
Vel sé hugsanlegt að Sovétmenn
geti sætt sig við að stjómin í Kabúl
deili völdum með öðrum en kom-
múnistum, þó slíkt væri óhugsandi
í Austur-Evrópuríkjum.
Karmal forseti hefur hins vegar
allt aðrar hugmyndir um pólitíska
framtíð Afghanistan þegar og ef
stríðinu lýkur. Hann hefur sagt að
flokkur hans muni aldrei gefa eftir
forystu sína og að ekki komi til
mála að veita skæruliðum neina
hlutdeild í völdum. Andspyrnu-
hreyfingin hefur einnig lýst því yfir
að hún muni aldrei sætta sig við
stjómina i Kabúl. Af þeim sökum
hafa vestrænir diplómatar sagt að
jafnvel þó samkomulag tækist milli
Pakistan annars vegar og Sovét-
manna og stjórnarinnar í Kabúl
hins vegar sé hæpið að slíkt myndi
binda enda á stríðið.
Sýndarmennska á báða bóga
Fyrir nokkru var á ferð hér á landi
Afghani að nafni Mustamandi til
þess að leita stuðnings við and-
spymuhreyfinguna í Afghanistan.
Hann sagði á fundi með blaðamönn-
um að andspyrnuhreyfingin teldi
að viðræðurnar endurspegluðu
sýndarmennsku á báða bóga. Sagði
hann Sovétmenn vera að byggja ný
hernaðarmannvirki og ný vopn
væru á leiðinni, þannig að á þeim
væri ekkert fararsnið. Pakistan
rambaði á barmi borgarastyrjaldar
og Sovétmenn hefðu mikinn hug á
að notfæra sér það ástand. Viðræð-
urnar væm því einungis áróðurs-
bragð.
Zia ul Haq, forseti Pakistan, hefði
einnig hagsmuni af því að halda
viðræðum gangandi, því hann væri
umdeildur maður og þyrfti að reyna
að treysta sig í sessi með öllum til-
tækum ráðum og eins og áður sagði
er almenningur í Pakistan orðinn
langþreyttur á ástandinu sem styrj-
öldin hefur skapað. Að öðru leyti
kemur stríðið í Afghanistan sér
ágætlega fyrir Zia, sem notar það
til að skýra allt sem miður fer í
Pakistan. Gildir þá einu hvort út-
skýra þarf af hverju ekki er efnt til
kosninga eða af hverju farsótt geis-
ar í landinu, allt er það ástandinu
í Afghanistan að kenna.
Og á meðan viljann skortir hjá
flestum aðilum eru litlar líkur á að
endi verði bundinn á styrjöldina.
Almenningur í Afghanistan og
Pakistan mun því þurfa að búa við
hörmungarnar um langa hríð enn.
Umsjón: Hannes Heimisson ogValgerðurA. Jóhannsdóttir