Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Síða 11
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986.
11
Húsnæði
fyrir alzheimer-
sjúklinga
Kolbrún Ágústsdóttir hjúkrunarfræðingur er deildarstjóri Hlíðabæjar en trún-
aðarlæknir verður Jón G. Snædal öldrunarfræðingur. DV-myndir KAE.
Opnuð hefur verið ný hjúkrunar-
aðstaða íyrir aldraða að Flókagötu
53. Þar er sérstaklega gert ráð fyrir
aðstoð við fólk með heilabilunarein-
kenni af völdum alzheimersjúkdóms-
ins. Nýja deildin hefur hlotið nafnið
Hlíðabær og er hliðarstofnun við
Múlabæ þar sem rekin hefur verið
dagþjónusta fyrir aldraða og öryrkja
frá byrjun ársins 83 á vegum Reykja-
víkurdeildar RKÍ, SÍBS og Samtaka
aldraðra. Reykjavíkurborg keypti
húsnæðið á Flókagötunni og afhenti
stjórn Múlabæjar til starfrækslu
deildar fyrir heilabilað fólk.
Sérhannað húsnæði
Lovísa Christiansen arkitekt sá um
breytingar á húsnæðinu en sjúklingar
með alzheimersjúkdóminn eða önnur
heilabilunareinkenni þarf ekki aðeins
sérhæfða umönnun heldur líka vern-
daðara umhverfi en aldrað fólk al-
mennt. Félagar i FAAS - Félagi að-
standenda og áhugafólks um alz-
heimersjúkdóminn sáu um söfnun
notaðra húsmuna og gekk sú söfnun
það vel að unnt reyndist að selja
talsvert magn húsmuna sem ekki var
not fyrir og kaupa fyrir andvirðið
hljóðfæri til heimilisins.
Helgarþjónusta í sumar
Fyrst um sinn mun Hlíðabær starfa
fimm daga vikunnar, frá mánudegi til
föstudags. Skjólstæðingar geta fengið
akstur að heiman og heim á vegum
stofnunarinnar. í sumar verður síðan
gerð tilraun með helgarþjónustu á
grundvelli sólarhringsvistunar.
Þannig verður þá boðið upp á þjón-
ustu frá mánudegi til föstudags.
Markmiðið með starfi er ekki aðeins
að veita sjúklingum umönnun og
þjálfun við hæfi heldur einnig að
koma til móts við þarfir ættingja
þeirra að auki því vegna eðlis sjúk-
dómsins þurfa sjúklingarnir gifurlega
umönnun og eftirlit daga og nætur
sem reynir mjög á §ölskyldurnar.
Umsóknir til heimilisins skal senda
til öldrunarlækningadeildar Land-
spítalans, Hátúni 1GB, og stíla þær á
Jón G. Snædal, trúnaðarlækni Hlíða-
bæjar.
-baj
Sjúkrasigling
Togarinn Stakfell kom nýlega til
Akureyrar með Þórshafnarbúa á fer-
tugsaldri, sem hafði veikst heiftar-
lega. Maðurinn var lagður inn á
gjörgæsludeild sjúkrahúss Akur-
eyrar. Ekki hafði reynst unnt að
fljúga sjúkraflug til Þórshafnar og
þyrla LandhelgisgæslnnnnT- komst
ekki vegna ísingarhættu. Vegna snjó-
þyngsla hefði tekið of langan tíma
að flytja manninn landleiðina. Stak-
fellið, sem var á Þórshöfn til að landa,
lagði af stað til Akureyrar með mann-
inn kl. eitt um nótt.
DV-mynd -JGH/Akureyri
TTfHmTT
M.ViMn
Hin nýja þjónustudeild Múlabæjar að Flókagötu 53. Þarna verður sérhæfð aðstaða fyrir fólk með alzheimersjúkdóminn.
másagnakeppni Lá istahátíðar í R eykjavík
AÐEINS VIKA
TILSTEFNU
Frestur til að skila inn smásögum í keppnina rennur út
10.APRÍL
UMTILHÖGUN
SAMKEPPNINNAR
Yrkisefni
I sagnanna skal sótt í íslenskt nútímalíf, en að
öðru leyti hafa höfundarfrjálsar hendur.
Skilafrestur
! er til 10. apríl 1986. Sögurnar skulu merkt-
ar dulnefni en rétt nafn höfundar fylgja I lokuðu umslagi
sem er merkt með dulnefninu og sendast í pósthólf Listahá-
tlðar, númer 88,121 Reykjavík.
Dómnefnd
| smásagnasamkeppninnarskipa þau Þórdís
Þorvaldsdóttir borgarbókarvörður, Stefán Baldursson leik-
hússtjóri og Guðbrandur Gislason bókmenntafrseðingur.
['IlwllBB verða tilkynnt við opnun Listahátíðar 1986 þann
31. maí. Stefnt er að þvl að gefa út bestu sögurnar I bók
og er áaetlað að bókin komi út á afmæli Reykjavíkurborgar, 18. ágúst.
Verðlaun
eru mjög vegleg og veröa visltölutryggð en þau eru:
1.
2.
3.
verölaun
verölaun
verðlaun
250.000,-
100,000,-
50.000,-
Aöeins eín saga hlýtur hver verðlaun.
Listahátiö i
Reykjavik.
Reykjvikurborg
Seðiabanki
islands
^fcassP