Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Qupperneq 14
14 DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og OSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKUR HF.-Áskriftarverð á mánuði 450kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Dýr og óþörflyf Ríkið ver sennilega til lyíja tvöföldu því fjármagni, sem það leggur í Lánasjóð íslenzkra námsmanna. Lyfja- kostnaður ríkisins er líklega svipaður og samanlagður kostnaður þess af húsnæðislánakerfinu. Lyfin kostuðu fyrir þremur árum 4% af ríkisútgjöldum. Síðustu opinberu upplýsingar um lyQakostnað ríkis- ins eru frá 1983. Þá greiddi Tryggingastofnunin niður lyf fyrir 493 milljónir og sjúkrahúsin greiddu lyf fyrir 145 milljónir. Samtals voru þetta 638 milljónir eða 4% af allri veltu ríkisins á því ári, - hrikalegt hlutfall. Ef lyfjakostnaður verður á þessu ári sama hlutfall af ríkisútgjöldum og hann var fyrir þremur árum, má reikna með, að hálfur annar milljarður króna hverfi í þessa hít. Það er hærri upphæð en svo, að unnt sé að láta sér hana í léttu rúmi liggja. Ríkið virðist vera meira eða minna varnarlaust gegn hóflausri ávísun lækna á lyf af hvers kyns tagi. Sjúkl- ingarnir sjálfir greiða einungis málamyndaupphæð af hverju lyfi, sem þeir fá, en ríkið greiðir meginhlutann. Þetta er óhjákvæmilegt í velferðarþjóðfélagi. Þar með er ekki sagt, að ríkið þurfi að vera varnar- laust. Bent hefur verið á ýmislegt, sem betur mætti fara. Gagnrýnin beinist einkum að fjórum atriðum. í fyrsta lagi er haldið fram, að tímahrak lækna valdi því, að þeir láti hraðvirka útgáfu lyfseðla, einkum um síma, koma í stað erfiðra og langdreginna samtala við sjúklinga og skoðun þeirra. Héraðslæknirinn í Bolung- arvík benti nýlega á þetta í samtali við DV. Hann sagði, að notkun sýklalyfja mætti að skaðlausu minnka niður í þriðjung af því, sem hún er. Svíar væru ekki nema hálfdrættingar á við okkur á þessu sviði. Ef allir læknar ávísuðu eins og hann sjálfur gerði, sagði hann að mætti spara 50-100 milljónir króna á ári. í öðru lagi er haldið fram, að notkun fúkalyfja sé svo óhæfileg hér á landi, að þau reynist í sumum tilvikum gagnslaus, þegar fólk þarf raunverulega á þeim að halda. Samkvæmt þessu á ströng takmörkun notkunar slíkra lyfja að fela í sér raunhæfa heilsuvernd. í þriðja lagi er haldið fram, að lyf séu ekki rétt valin. í mörgum tilvikum sé vísað á dýr lyf, þótt ódýr lyf komi að sama gagni. Þetta kom fram í skýrslu tveggja heilsu- gæzlulækna í Hafnarfirði og Garðabæ. Henni hefur verið dreift á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Stundum þurfa sjúklingar raunverulega hin dýrari lyf. En í öðrum tilvikum koma hin ódýrari að nákvæm- lega sama gagni. Læknarnir tveir lögðu til, að ábending- ar til lækna um lyfjaverð og lyfjaval yrðu gefnar út tvisvar á ári til að ná niður kostnaði hins opinbera. Þeir tóku dæmi af fimm lyfjategundum, sem þeir völdu af handahófi. Verðmunur dýrustu og ódýrustu lyfjanna nam tæpum 40 milljónum króna, þegar miðað var við ársnotkun þjóðfélagsins. Og þetta voru aðeins fimm tegundir af hinum mikla fjölda, sem notaður er. í Qórða lagi er haldið fram, að sumum læknum sé laus höndin við ávísun á lyf, sem notuð eru sem fíkni- efni. Raunar hefur verið sagt, þótt ekki sé sannað, að slík fíkniefnanotkun sé algengari og umfangsmeiri en notkun smyglaðra efna á borð við hass og maríhúana. Þessi fjórþætta gagnrýni sýnir, að líklega má spara hundruð milljóna króna árlega og meira að segja bæta heilsu þjóðarinnar með meiri sjálfsaga lækna við útgáfu lyfseðla og með meira eftirliti af hálfu ríkisins. Þetta hlýtur að teljast meðal brýnni verkefna þjóðfélagsins. Jónas Kristjánsson Nokkrir hátekjumenn hafa undan- farið dundað sér við að finna og skilgreina fátækt á íslandi. Fyrst héldu þeir ráðstefnu þar sem þeir bjuggu til fátæktarmörk sem svo héppilega vildi til að fjórðungur þjóðarinnar komst undir, síðan var umræðan breidd út í þjóðfélagið. Sú útbreiðsla hefur gengið ljóm- andi vel. Blað þjóðfrelsis, sósíal- isma og verkalýðsbaráttu hefur verið í hreinni hugljómun síðan, enda ekki furða, því þar á bæ voru menn aðframkomnir úr málefnafá- tækt. Fátækraþingmaður þjóðar- innar hóf utandagskrárumræðu í alþingi, kirkjunnar menn hafa prédikað að vansælir séu fátækir . - ««* _ g«i „Hvernig væri að þeir færu nú ekki bara í Oxfordstreet næst þegar þeir fara til Lundúna, heldur suður fyrir Thames-á og bæru sum hverfanna þar saman við Breiðholtið!“ Fundin fátækt og ríkisfjölmiðlar hafa vart mátt vatni halda af skelfingu og hneykslan yfir þessari voðalegu fátækt sem allt í einu hefur upp- götvastáíslandi. Víst er til fátækt Nú skal viðurkennt að hér hefur eilítið galgopalega verið af stað farið í greinarkorninu. Til þess liggur vissulega ekki sú ástæða að fátækt sé gamanmál eða til þess að hafa í flimtingum. Langt í frá. Hins vegar hefur sviðsetning þess- arar umræðu verið með þeim hætti að hana er varla lengur hægt að taka alvarlega svo augljós pólitísk- ur keimur er orðinn af henni. Það er slæmt því vissulega er hér fitjað upp á máli sem þörf er að ræða hleypidómalaust og án þess að umræðan eigi að verða öðrum til hagnaðar en þeim sem úrbóta þurfa við. Er til fátækt á íslandi? Já, því miður, hún er til og hefur alltaf verið til. Það versta er að líklega verður hún alltaf til. Ekki bara hjá okkur heldur með öllum þjóðum. Það verður hins vegar eilíft mats- atriði hvar draga á fátæktarmörk- in. Að teija fjórðung íslensku þjóð- arinnar til fátæklinga er hins vegar svo yfirþyrmandi vitlaust að til þess að slíkt gangi í fólk þurfa þrír fjórðu að vera hálfvitar. Kannski er skýringin sú að þeir sem meta vita lítið hvað fátækt er. Ef til vill teljast það fátæktarmörk að eiga ekki myndbandstæki og taka ekki á leigu tíu myndbands- spólur á viku. Vafalaust brennur einmitt þetta fráleita atriði á mörg- um börnum sem eru frá þeim heim- ilum er eiga ekki þetta tískutæki en eru í félagsskap með börnum sem sitja fram yfir miðnætti hverja nótt og horfa á ofbeldismyndir. Fráleitt, finnst ykkur vafalaust, en skoðið málið aðeins nánar. Þrátt fyrir erfið kjör margra í þessu þjóðfélagi höfum við býsna fullkomið tryggingakerfi. Auðvitað mætti það vera betra. Gallinn við öll kerfi er bara sá að þau eru ekki betri en fólkið sem í þeim hrærist. Kjallari á fimmtudegi MAGNÚS BJARNFREÐSSON En það er stórkostlegt að heyra menft, sem eiga að bera ábyrgð á þessu kerfi að hluta, halda því blákalt fram að hér sé að finna svipaða fátækt og í stórborgum Bretlands og Bandaríkjanna. Hvernig væri að þeir færu nú ekki bara í Oxfordstreet næst þegar þeir fara til Lundúna, heldur suður fyrir Thames-á og bæru sum hverfanna þar saman við Breiðholtið! Hver er ástæðan? En hver er ástæða þess að fátækt fyrirfinnst á íslandi? Auðvitað er meginástæðan misskipting auðs- ins. Það eru margir sem prédika að honum eigi að skipta jafnar. En því miður eru færri sem vilja láta neitt af sínu. Það kvað hafa slegið ógurlegri þögn á eina vitsmunaráð- stefnuna um fátækt hér um daginn þegar forseti ASl talaði þar og minntist á tilraunir til þess að jafna laun í kjarasamningunum. Hann á að hafa Iitið yfir hálaunaða gáfu- mannahópinn, sem sat andaktugur af hneykslan yfir fátæktinni, og spurt: „Hvar voruð þið þá?“ Það hefur nefnilega aldrei gerst í kjara- samningum hér að neinn hafi viljað gefa neitt eftir af sínu til þess að aðrir nytu. Kannski erum við einmitt komin þama að kjarna málsins. Það er til fátækt á íslandi vegna þess að við hin höfum aldrei viljað láta neitt af hendi rakna til þess að útrýma henni. Þetta á við okkur hérumbil öll upp til hópa. Okkur finnst ótækt að fátækt sé til og við viljum að aðrir láti eitthvað af sínu til þess að útrýma henni - bara ekki við sjálf, okkur veitir sko ekki af okkar til þess að borga af lánunum vegna hússins, bílsins, vídeósins, frysti- kistunnar eða hvað það nú er. Og svo þurfum við náttúrlega að geta borgað fyrir spólur því annars er fjárfestingin óarðbær, samkvæmt útreikningi heimilistölvunnar. Feimnismálin Það eru ýmis feimnismál sem ekki hefur verið bryddað upp á í umræðunni um fátæktina. Þau eru ekki nógu fín til þess að tala um þau. Þó örlaði aðeins á einu þeirra þegar talað var um fátæktarnót- urnar í Reykjavík. En menn létu sér nægja að hneykslast, enginn spurði: „Hvers vegna?“ Vegna þess að menn ótt.uðust að fá svar? Ekki dettur mér í hug að bótmæla fátæktarnótum þeim sem þar bar á góma. En þorir virkilega enginn nema ég að segja það að þær séu til komnar svo fjárstyrkurinn fari ekki til áfengiskaupa? Mér hefur ekki verið sagt það. Ég bara veit það. Ekki þar fyrir að allir, sem fengu úttektarnóturnar, hafi verið óreglufólk, vissulega gjalda þar margir saklausir annarra. En er það ekki makalaust að ábyrgir aðilar í félags- og trúarmál- um skuli geta rætt þessi mál án þess að minnast á neyslu vímu- gjafa, löglegra sem ólöglegra? Hvað halda menn að mörg heimili á Islandi séu fátæk og verði það alltaf, hve mikið sem menn fá í laun, af þessum sökum? Það væri fróðlegt að gáfumenn gæfu út ein- hverja tölfræði um það. Talað er um sjálfsvíg vegna fá- tæktar. Vissulega hafa menn gefist upp vegna fjárhagsvandræða, án þess að óregla hafi komið til. En hvað skyldi stór hópur sjálfsvíga eiga beina rót að rekja til neyslu vímuefna? Ég la§ fyrir nokkru átakanlegt viðtal við unga stúlku sem hafði reynt að snúa við af braut vímuefnaneyslu. Stór hluti vina- hóps hennar hafði horfið yfir móð- una miklu vegna hennar. Margir þeirra frömdu sjálfsvíg. En kannski vita hvorki félags- málafrömuðir, fjölmiðlahaukar né guðsmenn um neitt slíkt. Magnús Bjarnfreðsson. a „Ekki dettur mér í hug að bótmæla * fátæktarnótum þeim sem þar bar á góma, en þorir virkilega enginn nema ég að segja það að þær séu til komnar svo fjárstyrkurinn fari ekki til áfengiskaupa?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.