Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Qupperneq 17
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Gömul
kona
rænd
Gömul kona skrifar:
Það voru drengir sem réðust á
gamla konu þann tuttugusta og
þriðja mars síðastliðinn, pálma-
sunnudag, og stálu af henni vesk-
inu. í því voru húslyklar og nokk-
uð mikið af peningum. Þetta voru
ungir drengir. Ef foreldrar eða
fólk finnur að drengimir þeirra
hafa meiri peninga en þeir mega
eru þeir foreldrar vinsamlegast
beðnir að láta lögregluna vita.
Samanburður við Bubba er engum
íslenskum poppara í hag.
Óhagstæður
samanburð-
urvið
þannbesta
Rokkunnandi skrifar:
Þrír krakkar skrifa bréf í DV 24.3.
Þar segja þeir að Bubbi sé venjulegur
raulari en Hebbi sé betri!!
Séu þessir krakkar raunvemlegir
aðdáendur Hebba skal þeim bent á
að samanburður við Bubba er engum
íslenskum poppara í hag, hvorki
Hebba né öðrum. Þó er Hebbi bæði
þokkalegur söngvari og músíkant.
Gagnrýnendur gefa plötum hans 2-3
stjörnur (af 5) og skv. nýlegri könnun
eins dagblaðanna telur almenningur
Hebba vera 5. besta söngvara lands-
ins og 8. besta textasmiðinn. Plötur
hans seljast í rúmlega 1000 eintökum.
Hebbi og aðdáendur hans geta því
vel við unað. En samanburður við
Bubba er auðvitað eins og að bera
saman Datsun og Benz. Gagnrýnend-
ur gefa plötum Bubba ætíð 4-5 stjörn-
ur (af 5) og almenningur hefur kosið
Bubba besta söngvara landsins,
númer 1, í mörg ár. Plötur hans seljast
í 5 -6000 eintökum. Þegar við bætist
að Bubbi er þrælgóður gítarleikari
og skapandi músíkant þá geta allir
sem hafa einhvern snefil af viti á
músík tekið undir orð Gunnars Þórð-
arsonar í nýjustu Vikunni. Hann
segir eitthvað á þá leið að Bubbi
standi upp úr.
Dónaskapur
árástvö
Á.F. skrifar:
Mig langar að bera fram þá spurn-
ingu hvort stjórnendur þátta í útvarp-
inu þurfi ekki að kunna lágmarks-
mannasiði.
Ég er mikill aðdáandi rásar 2 og
sérstaklega finnst mér Inger Anna
alveg frábær með þáttinn Út um
hvippinn og hvappinn.
En einn er sá maður sem að mínum
dómi er ekki hægt að hlusta á. Það
er Svavar Gests með Laugardag til
lukku, enda hef ég undanfarið sleppt
því að hlusta á þennan þátt vegna
dónaskapar stjórnanda. En heppnin
var ekki með mér laugardaginn 22.
mars sl. því þá heyrði ég símagetraun
Svavars og ég get ekki orða bundist.
Þegar rétta svarið kom sagði Svavar:
„Loksins hringir einhver sem ekki er
löggiltur fáviti! Hvernig væri að þú
slepptir því að koma í útvarpið ef þú
getur ekki tekið dónaskap frá öðrum
eins og aðrir eiga að taka dónaskap
frá þér eins og ekkert sé eðlilegra?
Því spvr ég þig, Svavar, hvað er lóg-
giltur fáviti?
1»
Hvernig væri að þú slepptir því að
koma í útvarpið ef þú getur ekki tekið
dónaskap frá öðrum ?
EGSKILÞETTAEKKI,
ÉGSEMVARSVO
FEIMIN
Viðtal við Bryndísi Schram
GAMALT
EINBÝLIS HÚSINÝJU
HLUTVERKI
Innlit í húsnæði Reykvískrar endur-^
tryggingar ij
DANSAROSUM
á næsta blaðsölustað
Hvers vegna dönsum við?