Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Page 31
DV. FIMMTUDAGUR 3. APRIL1986.
31
Sandkorn
Sandkorn
Ecm
SPRENGISAND
Óvenjuleg
auglýsing
Það er víða hart barist
um þessar mundir en þó
líklega hvergi eins og í veit-
ingahúsabransanum. Sam-
keppnin milli þeirra hefur
aldrei verið eins hörð og nú
enda slást margir staðir um
fáar sálir og blankar.
Og þá er um að gera að
auglýsa svo eftir sé tekið.
Meðfylgjandi auglýsingu
frá veitingastaðnum
Sprengisandi rákumst við á
í kratablaði sem dreift var
um heimsbyggðina fyrir
páskahátíðina. Auglýsing-
in sú arna lætur ekki mikið
yfir sér en vekur líklega
meiri athygli en heil síða í
lit. Lesandinn fer nefnilega
að velta fyrir sér hvern fj...
þetta þýði eiginlega. Og rétt
svar er auðvitað: „Ég „fíla“
Sprengisand." Svo hefur
heyrst að staðurinn veiti
gestum sínum fílakara-
mellur í ábæti út þennan
mánuð. En það er önnur
saga...
Ema næsti
stöðvarstjóri?
Eins og alþjóð veit hefur
staða stöðvarstjóra Ríkis-
útvarpsins á Akureyri verið
auglýst laus til umsóknar.
Henni hefur gegnt Jónas
Jónasson, sem bráðlega
tekur við starfi dagskrár-
gerðarmanns hjá móður-
stöðinni í Reykjavík. Því
starfi gegndi Jónas áður en
hann hélt norður svo hann
veit áreiðanlega að hveiju
hann gengur.
Ekki er vitað hversu
margir hafa sótt um stöðv-
arstjórastarfið. En meðal
þeirra sem heyrst hafa
nefndir í þvi sambandi eru
Helgi Pétursson, fyrrver-
andi NT-ritstjóri, og Erna
Indriðadóttir fréttamaður.
Erna hefur sem kunnugt er
starfað að undanförnu hjá
Rúvak. Hún sagði raunar
upp á dögunum, en dró svo
uppsögn sína til baka, út-
vai-pshlustendum til mikill-
ar ánægju. Erna þykir
nefnilega góður og líflegur
fréttamaður. Því veðja
margir á hana í þetta starf,
sækihún um.
En við sjáum bara til.
Greiðslu-
örðugleikar
Mörg fyrirtæki munu nú
eiga í greiðsluörðugleikum.
Eitt skýrasta dæmið þar
um er komið frá ísafirði og
segir Bæjarins besta nú frá:
„Til marks um greiðslu-
erfiðleikana má geta þess
að fyrirtæki eitt greiddi inn
á skuld sína með gamalli
Peugeot-bifreið. Sá sem
fékk bílinn greiddi síðan
með honum inn á aðra
skuld. Þriðji aðilinn sem
hreppti bílinn hafði ekkert
við hann að gera svo hann
skipti á honum og ritvél.
Haft er fyrir satt að göm-
ul Peugeot-bifreið sé nú til
sölu í bænum. Hins vegar
er allt á huldu með framtíð
ritvélarinnar."
Friðar-
þrettándi '87
Allóvenjuleg samþykkt
var gerð á fundi sem JC
efndi til á Selfossi nýlega.
Þar var sumsé samþykkt
að skora á alla bæjarbúa að
taka höndum saman og
halda friðarþrettánda 1987.
Þarna er ekki um að ræða
innlegg í baráttuna fyrir
heimsfriði, eins og virst
gæti í fyrstu. Það hefur
nefnilega viljað loða við
Selfoss að þar færu menn
með ólátum á þrettándan-
um. Svo rammt hefur kveð-
ið að þessu að í fyrra urðu
fimm lögreglumenn fyrir
meiðslum og klofnaði
meira að segja hjálmur
einnar löggunnar í ólátun-
um.
Og nú hafa Selfossbúar
sumsé ákveðið að byrgja
brunninn löngu áður en
barnið dettur ofan í hann
næst. Verður fróðlegt að sjá
hvernig tekst til með friðar-
þrettándann hjá þeim.
Videoþættir
um eiturlyf
Borgaryfirvöld hafa
ákveðið að gerðir skulu
videoþættir um ávana- og
fíkniefni, sem notaðir verði
til fræðslu í grunnskólum
landsins. Það mun vera
fjölmiðlaþjónustan Tákn
sf„ með þá Önund Björns-
son og Guðmund Árna
Stefánsson í fararbroddi,
sem sér um gerð þáttanna.
Eftir því sem næst verður
komist er fyrirhugað að
videoþættirnir verði fimm
talsins. Verði þeir sýndir i
grunnskólunum. Hlutverk
A W
Önundur Björnsson.
þeirra verði í grófustu
dráttum að vekja skóla-
börn til umhugsunar um
hættuna sem skapast af
neyslu þessara efna, þannig
að þau geri sér grein fyrir
henni, áður en skaðinn er
skeður. Með spólunum er
svo fyrirhugað að gefa út
itarefni sem kennarar
vinna með börnunum.
Vissulega er þarna á ferð-
inni þarft framtak og raun-
ar furða að því skyldi ekki
hafa verið hleypt af stokk-
unúm fyrr. En betra er
seint en aldrei, eins og þar
stendur.
Guðmundur Árni Stefánsson.
Umsjón:
JóhannaS.
Sigþórsdóttir
Ofbeldisdýrkun
Víkingasveitin (The Delta Force)
Leikstjóri: Menahem Golan.
Handrit: Menahem Golan og James Brun-
er.
Tónlist: Alan Silvestri.
Aðalleikarar: Chuck Norris. Lee Marvin,
Martin Balsham, Hanna Schygulla og
Joey Bishop.
Það ætti engum að koma á óvart
þegar þeir Cannon-bræður, Mena-
hem Golan og Yoram Globus, eiga
hlut að því að málstaður gyðinga
er hafmn upp yfir alla gagnrýni.
Þeir hafa á undanförnum árum
verið duglegir við að koma boðskap
gyðinga á framfæri á kostnað araba.
Samt held ég nú að flestum hugs-
andi mönnum ætti að vera ljóst að
vel er skotið yfir markið í Víkinga-
sveitinni.
Myndin, sem er dýrðaróður til
hinna svokölluðu víkingasveita,
sem frægar eru orðnar, er að hluta
til byggð á sönnum atburðum. Og
ekki er hægt að neita að á meðan
stuðst er við staðreyndir er margt
vel gert.
í júli í fyrra átti sér stað eitthvert
frægasta flugrán sögunnar þegar
fiugvél frá TWA var rænt og gíslum
haldið svo dögum skipti. Var hluta
þeirra smyglað í land svo erfiðara
væri um vik fyrirbjörgunarmenn. Á
þessu fiugráni byggir myndin. Og í
fyrri hluta hennar er, að því er
virðist, farið nokkuð nálægt sann-
leikanum. Það er svo í seinni hlut-
anum, þegar Chuck Norris og félag-
ar fá að njóta sín, að sögunni er
breytt Víkingasveitinni í hag og
ofbeldisdýrkunin verður algjör.
Lee Marvin leikur yfirforingja
Víkingasveitarinnar. En hann og
aðrir veynast alveg getulausir nema
Chuck Norris komi þeim til aðstoð-
ar og hefur Lee Marvin meira að
segja forsetaskipun upp á vasann
svo öruggt sé nú að kappinn mæti
í hasarinn.
Nú, og þegar upp er staðið hefúr
Víkingasveitin að sjálfsögðu frelsað
alla gislana og i valnum liggja
nokkur hundruð arabar og tveir
Bandaríkjamenn. Með hverjum ætli
samúð áhorfandans sé þegar upp er
staðið, blóðþyrstum bandariskum
víkingasveitarhermönnum eða
þj óðernissi n nuðum flugræningj um
sem að vísu eru einnig dýrkendur
ofbeldis?
Sjálft flugránið i byrjun myndar-
innar er vel gert og býr yfir góðri
spennu. Myndin fer fyrst að verða
vandræðaleg þegar farið er að níð-
ast á þeim fáu gyðingasálum sem
eru um borð. Þá er allt reynt til að
ðn£r samúð áhorfandans með
væmnum uppákomum. Eftir þetta
hrakar myndinni og í lokin varð
maður þoirri stundu fegnastur þeg-
ar ljósin voru kveikt.
Það hefði þótt saga til næsta
bæjar fyrir nokkrum árum ef það
hefði írést þá að Lee Marvin, Hanna
Schygulla, Robert Vaughn, George
Kennedy og fleiri álíka þekktir leik-
arar lékju aukahlutverk í nýrri
Chuck Norris mynd. En slíkur hefur
vegur þessa B-leikara verið undan-
farið að manni kæmi ekki á óvart
þótt hann birtist með 'Clint East-
wood í næstu mynd sinni. En ef
einhver skyldi halda að leikhæfi-
leikar hans hefðu tekið stakka-
skiptum þá er það misskilningur.
Skástur er hann þegar hann þarf
ekki að opna munninn. Og það litla
sem hann segir á best heima í
teiknimyndablöðum.
Eins og fram hefur komið höfðar
Víkingasveitin ekki til þeirra sem
vilja góðar kvikmyndir en fyrir þá
sem unna ofbeldisfullum stríðs-
myndum er hún veisla fyrir augað.
Hilmar Karlsson.
MONO-SKIÐIFRA
LOOK
Tt Ahyggjur
af aukakílóum?
• V
Kvikmyndir Kvikmyndir
AUSTURBÆJARBÍÓ - VÍKINGASVEITIN ★
★★★★Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
Ný námskeið:
í areobic
heíjast 3. apríl.
☆ Sér salur. ☆
Músikleikfimi: n j
námskeið heíjast
7. apríl.
☆Sér salurrfc
tií.
Tækjasalur — eimguta
Sérstaklega góðir ljósabekkir
Heilsubar — katlistofa
Leiðbeinendur
OPNUNARTÍMI:
mánud. — fimmtud.
kl. 07-22
föstudaga
kl. 07-20
laugardag. —sunnud.
kl. 10-18.
RŒKTIN
Ánanaustum 15, Reykjavík,
sími 12815
sf.