Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1986, Síða 40
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1 986.
Hvort hækkar lánskjaravísitalan um 10% eða 16% á árinu?
Mvarleg deila um
ávöxtun sparifjár
EinarBenedlktsson
sendiherra rtlar
utanríkisráöherra
bréf
Vararvið
frekari
barna-
, flutningi
Einar Benediktsson, sendiherra
íslands í Lundúnum, hefur sent
Matthíasi Á. Mathiesen utanrík-
isráðherra bréf þar sem hann
varar við innflutningi og ættleið-
ingu bama frá löndum þriðja
heimsins.
Matthías Á. Mathiesen viður-
kenndi í samtali við DV að hafa
fengið þetta bréf en vildi ekki
ræða efni þess og sagðist ekki vita
til að i vændum væru breytingar
- J á reglum vun innflutning bama.
Ingvi S. Ingvarsson ráðuneytis-
stjóri sagði að -bréfið hefði inni
að halda „óbendingar til innan-
hússathugunar í ráðuneytinu'1 en
vildi ekki ræða nónar hverjar þær
væru. Hann sagði einnig að búast
mætti við að innfiutningur bama
færi minnkandi vegna hertra
reglna í löndunum sem börnin
hafa aðallega verið sótt til.
Þegar DV ræddi við Einar
Benediktsson neitaði hann ekki
að hafa sent bréf þessa efnis en
vildi ekki ræða innihald þess frek-
ar. „Ég hef ekkert við aðra að
tala um mín bréf til utanríkisrað-
herra en hann sjálfan,“ sagði
Einar.
Jafnframt setunni í Lundúnum
gegnir Einar störfum sendiherra
lslands í Hollandi þar sem flest
börn, sem íslenskir foreldrar hafa
ættleitt, hafa farið um.
-GK
Geriö uerösamanburö
og pantiö
úr
Simi: 52866
LOKI
Það má alltaf
setja tolla á börnin.
W____________
Vemleg óeining ríkir í mati sér-
fræðinga á þróun verðlags og þar með
lánskjaravísitölunnar á þessu ári.
Spárnar hljóða upp á allt frá 10-11%
hækkun þessarar vísitölu, að mati
Þjóðhagsstofnunar, og allt að 15-16%
hækkun, að mati Kaupþings og ein-
staka banka. Það getur gert gæfu-
muninn fyrir peningalegan sparnað
hver hækkun lánskjaravísitöluhnar
verður í rauninni.
Sparnaður á peningum í bönkum
og sparisjóðum hefur farið tiltölulega
ört vaxandi á annað ár. Eins og DV
skýrði frá í gær hefur skyndilega
dregið úr aukningunni eða hún stöðv-
ast. Bankamenn benda á að mikið
kaupæði standi nú yfir síðan bílaút-
salan hófst og heimilistæki og fleira
lækkaði í verði. Jafnframt verður
þess vart að sífellt hringl með vexti
rýrir traust fólks á peningasparnaði.
Nú bætist það ofan á að sérfræðing-
ar deila um eina meginforsendu þessa
spamaðar, lánskjaravísitöluna, og
greinir jafhhastarlega á um hana og
raun ber vitni. Þróun þessarar vísi-
tölu skiptir öllu þegar meta á raun-
vexti og ávöxtun á óverðtryggðu
sparifé. Seðlabankinn reiknar með
10,9% hækkun lánskjaiavísitölu
milli óramóta og við þær horfur var
miðað þegar vextir vom lækkaðir 1.
apríl.
Ef hins vegar rætast spár Kaup-
þings, sem áætlar hækkun lánskjara-
vísitölu á árinu 15%, og spár þeirra
banka sem áætla 15-16% hækkun
verður engin ávöxtun á flestum
óverðtryggðum reikningum, þvert á
móti rýrnar það fé sem á þeim liggur.
Þannig eru sparifjáreigendur staddir
í verulegri óvissu um afdrif sparnaðar
í þessu formi. Raunvextir og ávöxtun
á verðtryggðum, almennum innláns-
reikningum eru á hinn bóginn mjög
lágir, 1-3,5%, og fást aðeins með bind-
ingu í 3-6 mánuði. HERB
Húsnæðiskaupendur:
Föstu vext-
irnir lækkaðir
í 15,5%?
Félagsmálaráðherra hefur
ákveðið að kanna hvort mögulegt
sé að lækka vexti á samnings-
bundnum vöxtum á eldri skulda-
bréfum í fasteignaviðskiptum.
Undanfarin ár hefur verið al-
gengast að semja um 20% fasta
vexti á eftirstöðvalánum í sam-
bandi við húsnæðiskaup. Eftir
vaxtalækkun Seðlabankans á
óverðtryggðum skuldabréfum
niður í 15,5% er óvíst hvort þessir
samningsbundnu vextir lækki í
samræmi við þessa lækkun.
Sumir húsnæðiskaupendttr hafa
þó verið forsjálir og samið um að
vextir þessara bréfa verði aldrei
hærri en lögboðnir vextir Seðla-
bankans.
-APH
Þyrlasótti
slasaðan
grænlenskan
sjómann
Þyrla frá Vamarliðinu kom í
morgun með slasaðan grænlen-
skan sjómann til Reykjavíkur. I
nótt kom beiðni til Varnarliðsins
frá Grænlandi, um að Varnarliðið
sendi þyrlu til að sækja slasaðan
sjómann. sem var ó grænlenskum
rækjubáti djúpt út af VestfjÖrðum.
Varnarliðið hafði samband við
SVFÍ og síðan hélt þyrla frá
Keflavíukurflugvelli á stað í
samfylgd Herkúlesþotu, sem sá
þyrlunni fyrir bensíni.
Ferðin gekk mjög vel og náðist
sjómaðurinn fljótt upp úr sækju-
bótnum. Komið var með manninn
til Reykjavíkur laust eftir kl. 9 í
morgun. Hann liggur nú á Borg-
arspítalanum.
-sos
0
v'
VAXTATAFLA
FRA
1/4 86
ALM. SPARISJÓÐSBÆKUR 8 %
3 MAN. SPARIR. M. UPPSÖGN
6 M'AN. SPARIR. M,
12 M'AN. SPARIR. M.
LÍFEYRISBÓK
SERBÓK 10 ♦ 3x2
3 M'AN.VERÐTRYGGÐIRR.
6 M 'A N. VEROTRYGGÐIR R.
STJORNUREIKNINGUR
3JA STJÖRNUREIKNINGUR
LAUNAREIKNINGUR
I VELTUREIKNINGUR
10 o/o
12JS °/o
14 °/o
15 ®/o
1 °/o
2,5 %
8 °/o
9 °/o
6 %
3 %
Nýjasta vaxtataflan hengd upp í Alþýðubankanum. í þeim banka varð hlutfallslega mest aukning innlána í fyrra.
Þar, eins og i öðrum bönkum og sparisjóðum, verða menn nú varir við óhrif kaupæðis og breytinga á sparnaðar-
þróuninni. DV-mynd: GVA.
Veðrið á morgun:
Hlýindi
og rigning
Veður á morgun verður talsvert
frábrugðið því sem það hefur verið
undanfama daga og vikur. Helsta
breytingin er sú að nú mun hlýna
verulega og hitastigið mun verða á
bilinu 5-7 stiga hiti á öllu landinu.
Bjartviðrið, sem verið hefur um
landið, verður ekki lengur í bili því
alskýjað verður um allt land utan
Norðausturlands. Auk þess má
búast við rigningu á öllu landinu
utan Norðausturlands þar sem
veður verður hálfskýjað og þurrt.
-S.Konn.