Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Qupperneq 6
6
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingvim. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þijá mán-
xiði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja. mánaða verð-
tryggðs reiknings reynisthún betri. Afhverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. IJá ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9'X. eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun e;
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fímm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 1&-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu Jagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 21 -30.04. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJA SfRLISTA ll ll ÍfHiíií lllf If ti
innlAn úverðtryggd
SPARISJÖÐSBÆKUR Óbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10,0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán.uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 10.5 10.0 10,0 12.0 10.0
12 mán.uppsögn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LANSRÉnURSparað3-5 mán. 13,0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp.6mán.ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10,0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikníngar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsógn 3.5 3.0 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
innlAn gengistryggð
GJALOEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.5 7.0 6.5 7.5 7.0 7.0 6.5
Sterlingspund 11.5 11.5 10.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5 10.5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.0 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 8.0 9,5 7.0 8.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
útlAn úverðtryggð
almennirvIxlar (forvextir) 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAVÍXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kee
ALMENN SKULDABRÉF 2} 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF3) kge 20.0 kge 20,0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR VflRORAnUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7,0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULOABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4,0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengrien21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.U 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁNTILFRAMLEIÐSLU
sjAneðanmAlsi)
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur-
þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%,
bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta-
skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim
bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Viðskipti______________Viðskipti______________Viðskipti
Gnskir aðilar vilja
kaupa Rangá og SeHbss
- verð á kaupskipum hefur lækkað
Grískir aðilar hafa verið hér á landi
að undanfömu til að skoða skipin
Rangá og Selfoss. Viðræður um sölu
á skipunum eru nú í gangi á milli
Grikkjanna og Eimskipafélagsins sem
á skipin. Bæði þessi skip vom áður í
eigu Haískips. Að sögn Eimskips-
manna mun fljótlega fást úr því skorið
hvort af kaupunum verður. Ekki
fékkst gefið upp hvaða verð er boðið
i skipin en samkvæmt upplýsingum
DV em 20 milljónir króna ekki óraun-
hæft verð fyrir skip eins og Rangá.
Lágt verð á kaupskipum
Verð á kaupskipum heíúr lækkað
mikið á undanfömum árum. Að sögn
Þorkels Sigurlaugssonar hjá Eimskip
hefur eftirspumin minnkað og verð
almennt lækkað. Til saman- burðar
má nefna að þegar Rangá var keypt
kostaði hún yfir 100 milljónir króna á
núgildandi verðlagi. Skipið hefur auð-
vitað elst í millitíðinni. Það er orðið
15 ára og komið yfir léttasta skeiðið.
Nýlegt skip, 150-200 gáma stórt, sem
er hagkvæm stærð í millilandasigling-
um, kostar í dag á bilinu 100-150
núlljónir. Slík skip fást ekki hérlendis
og er þau helst að fá í Þýskalandi eða
Danmörku en í báðum þessum löndum
hefúr mikið verið smíðað af skipum í
þeim stærðarflokkum sem henta hér-
lendis.
Fá skip til sölu
Það virðist ekki vera mikið upp úr
þvi að hafa að reka skipasölu um þess-
ar mundir og lítið var um skip á skrá
hjá þeim fasteignasölum sem DV hafði
samband við. Það eru þó engar smá-
upphæðir sem um er að tefla í skipa-
viðskiptum og skipta sölulaunin oft
hundruðum þúsunda. Að sögn Skúla
Ólafssonar hjá Eignahöllinni kostar
nýlegt fiskiskip eins og Bjami Ólafs-
son frá Akranesi ekki undir 150
milljónum króna. Skipið væri því mið-
ur ekki til sölu og góð fiskiskip illfáan-
leg. Eftirspumin væri svona mikil eftir
fiskiskipum vegna þess að ekki fengist
leyfi til að flytja þau inn og alltof dýrt
að láta smíða þau hér á landi. Ekki
sagðist Skúli hafa nein kaupskip á
skrá en sagðist geta útvegað slík skip
erlendis frá með stuttum fyrirvara.
-EH
Hafskip skuldaði viöskiptabanka sínum 808,5 milljónir króna:
Útvegsbankinn tapar 412 milljónum
Samkvæmt athugun bankaeftirlits-
ins stóðu skuldir Hafskips hf. við
Útvegsbankann í 808,5 milljónum
króna í janúar. Mat eftirlitsins var þá
það að bankinn myndi tapa 412 millj-
ónum á þessu eina fyrirtæki, sem nú
er til gjaldþrotaskipta. Ekki er víst að
þetta sé endanleg tala.
Frestur til þess að lýsa kröfum í
þrotabú Hafskips rennur út 15. maí.
Fyrsti skiptafundur verður 20. júní.
Þá er búist við að skýrist ýmis vaf'aat-
riði í málefnum búsins.
í upplýsingum viðskiptaráðuneytis
ins um þetta mál kemur fram að
heildarskuldbindingar Hafekips í Út-
vegsbankanum hafi numið 8,4% af
útlánum, endurlánuðu erlendu lánsfé
og ábyrgðum bankans þann 5. desemb-
er. Það var daginn áður en fyrirtækið
var lýst gjaldþrota.
í lok ársins 1985 var eigið fé Útvegs-
bankans 115 milljónir króna. Hins
vegar liggur ekki fyrir hvert endurmat
þess sé nú. En af samanburði við vænt-
anlegt tap vegna Hafekipsviðskip-
tanna má búast við að ríkissjóður
verði að rétta Útvegsbankanum hnefa
af seðlum. í þeirri mynd eru einnig
breytingar á bankakerfinu og þar með
sameining Útvegsbankans og ein-
hverrar eða einhverra annarra
bankastofnana. HERB
Fasteignaverð lækkaði um 20%
Fasteignaverð lækkaði um 20,6% frá
lokum ársins 1984 til loka ársins 1985
miðað við fast verðlag. Á sama tíma-
bili lækkaði útborgunarhlutfallið lítils
háttar og hlutur verðtryggðra lána
lækkaði. Þetta kemur fram í frétt frá
Fasteignamati ríkisins. Fasteignaverð
í krónutölu mælt hækkaði hins vegar
aðeins um tæplega 10% á milli áranna.
Vísitala byggingarkostnaðar og lán-
skjaravísitala hækkuðu á sama
tímabili um 38 til 39%.
Söluverð íbúða í fjölbýlishúsum í
Reykjavík breyttist lítið á fjórða árs-
fjórðungi 1985. Helst virðast litlar
íbúðir hafa hækkað. íbúðaverð reikn-
að á föstu verðlagi var í árslok hið
lægsta frá því í janúar 1984.
Hver fermetri í eins til tveggja her-
bergja íbúðunum er hlutfallslega
dýrastur. Meðalsöluverð á 55 fermetr-
um í október til desember 1985 var
1540 þúsund og útborgunarhlutfallið
72%. Söluverð á hvem fermetra er því
um 29.000 krónur. Þriggja herbergja
íbúðir, að meðalstærð 75 fermetrar,
kostuðu 1800 þúsund, fjögurra her-
bergja 100 fermetra íbúðir 2240 þúsund
og íbúðir stærri en 120 fermetrar 2540
þúsund. Hæsta útborgunarhlutfallið
var á fjögurra herbergja íbúðum eða
tæp 75% en það lægsta á þriggja her-
bergja íbúðunum, tæplega 70%.
-EH
K
Þróun á fasteignaverði á föstu verð-
lagi. Söluverðið var sett 100 stig 1.
janúar 1984.