Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 7
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Rússarnir höfnuðu síldinni: Ekkert plast, takk fyrir Sfldarútvegsnefnd sendi á dögun- um síldarflök í plasttunnum til Rússlands. Rússamir brugðust illa við þessu, vildu fá gömlu trétunnumar, og því varð skipið Keflavík að koma aftur heim með síldina sem var í plast- tunnunum. Skipið fór með tœplega 20 þúsund tunnur af síld í umræddri ferð og þar af voru 9 hundmð plast- tunnur. Þegar skipið kom heim með síldina vom flökin sett í trétunnur og siðan sigldi Goðafoss með síldina aftur til Rússlands. Samkvæmt upplýsingum frá Síld- arútvegsnefnd var gert ráð fyrir, samkvæmt samningi, að afgreiða mætti 15% af allri seldri sfld til Rússlands í plasttunnum, með fyrir- vara um leyfi frá viðkomandi ráðuneyti í Moskvu. Það leyfi lá ekki afdráttarlaust fyrir en talið var óhætt að senda 9 hundmð tunnur núna þar sem Rússar tóku við allri saltsíld frá Kanada i haust og vetur i plasttunnum. En greinilega var þetta ekki áhættulaust og Rússar höfnuðu síld- inni. Hjá Síldarútvegsnefhd vita menn ekki hvers vegna Rússar kaupa síldina í plasttunnum af Kan- adamönnum en ekki af okkur íslend- ingum. Um þessar mundir virðist það vera hagkvæmara að salta síld í plast- tunnur en trétunnur þar sem verðið á þeim hefur lækkað í kjölfar lækk- unar olíuverðs. Þetta mun þó ekki vera aðalástæð- an fyrir að umrædd síld fór í plast. „Við áttum ekki trétunnur og sölt- uðum því í plast,“ sagði einn starfs- maður Norðursíldar hf. á Seyðisfirði, en hluti af sfldinni var frá þeirri söltunarstöð. -KB MALLORKA Unaðsreíturínn í suðri Brottfarardagur 6. maí. 8 sæti laus. Brottfarardagur 25. maí. Uppselt. Brottfarardagur 15. júní. 12 sæti laus. Brottfarardagur 2. júlí. Laus sæti. Brottfarardagur 23. júlí. Laus sæti. Brottfarardagur 13. ágúst Uppselt. Brottfarardagur 3. september Laus sæti. Brottfarardagur 24. september. 18 sæti laus. Brottfarardagur 22. október. Vikuferð, laus sæti. nTtMtK FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og 28580 Kaffipokinn sem heldur ekki vatni Danski KÆFFE FILTER-pokinn er sá sterkasti á markaðinum. Pú þarft hvorki að bretta upp á kantana svo hann rifni ekki, né nota tvo poka, til að uppáhell- ingin heppnist vel KAFFE FÍLTER rifnar ekki, en heldur samt ekki vatni. KAFFE FlLTER-pokunum er pakkað í látlausar umbúðir, sem gera það að verkum að verðið er NOTAÐU STERKASTA OG ÓDÝRASTA KAFFIPOKANN Á MARKAÐINUM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.