Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 24
24 DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986. Iþróttir litia bikarkeppnin: Skagamenn efstir - FH vann Hauka, 7-0 FH-ingar sigruðu Hauka, 7-0, í litlu bikarkeppninni um helgina. Ingi Björn og Pálmi Jónsson skoruðu tvö mörk hvor. Þeir Kristján Gíslason, Ólafur Hafsteins- son og Guðmundur Hilmarsson skoruðu siðan eitt mark hver. Uppi á Akranesi sigruðu heimamenn ÍBK 2 -1 og eru Skagamenn nú efstir í keppninni með 5 stig. Róbert Benfica varð bikarmeistari Benfica varð í gær bikarmeistari Portú- gal í knattspyrnunni, sigraði Belenenses 2-0 í úrslitaleiknum í Lissabon. Nunes skoraði fyrra markið á 35. mín., Rui Aguas það síðara á 69. mín. Áhorfendur voru 45 þúsund. -hsím Hafsteinn stökk l, 98 í hástökki Borgfirðingurinn Hafsteinn Þórisson stökk 1,98 m i hástökki á innanhússmóti ÍR i frjálsum íþróttum í siðustu viku. Jó- hann Ómarsson varð annar með 1,88 m. Jóhann Jóhannsson, ÍR, sigraði i 50 m hlaupi á 5,9 sek. Oddný Árnadóttir. ÍR, í 50 m hlaupi kvenna á 6,7 sek. Guðbjörg Svansdóttir, ÍR, varð önnur á 6,8 sek. og Eva Heimisdóttir, ÍR, þriðja á 6,9 sek. I langstökki stökk Guðbjörg 5,14 m, Eva 5,12 m. Þá hljóp Grcttir Hreinsson, ÍR, 50 metra grindahlaup á 7,4 sek. -hsím Fundur hjá tækninefhd HSÍ Tækninefnd HSÍ heldur fund í íþrótta- miðstöðinni í Laugardal á morgun, þriðju- dag, og hefst hann kl. 20. Stefán Carlsson læknir flytur erindi um íþróttameiðsl, Andrés Kristjánsson sjúkraþjálfari um teipingar og Kristín Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari um teygingar. Tækninefnd- in hvetur alla, sem áhuga hafa á þessu, til að mæta, einkum þó þá sem hafa hug á þjálfun og liðsstjóm. Chelsea kaupir Lundúnaliðið Chelsea sigraði í mikilli keppni margra enskra knattspyrnufélaga og keypti hinn tvituga Gordon Durie frá Edinborgarliðinu Hibemian. Durie þykir hvað efnilegastur yngri leikmanna á Skotlandi nú. Hann hefur skorað 14 mörk fyrir Hibs á leiktímabilinu. -hsím Essen áfram í efsta sæti Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV í Vestur-Þýskalandi: Essen tryggði stöðu sína á toppnum í v-þýska handboltanum með sigri sínum á Schwabing í gær. ÍJrslit leiksins urðu 16: 13 eftir að Schwabing hafði verið yfir í leikhléi, 9:7. Essen jafnaði síðan í byrjun seinni hálfleiks og komst í 15:11. Essen sigraði fyrst og fremst á góðum vamarleik og frábærri markvörslu. Alfreð Gíslason lék með allan tímann þrátt fyrir að hafa verið með 39 stiga hita fyrir leik- inn. Hann stóð sig þokkalega og skoraði tvö mörk. Fraatz var markahæstur hjá Essen með átta mörk. Essen er sem fyrr efst í deildinni með 33 stig. Grosswaldstadt sigraði Gummers- bach, 25:23, og er í öðru sæti með 32 stig. Schwabing er í þriðja sæti með 31 stig. -SMJ Íþróttír íþróttir Iþróttir Iþróttir Tómas sigraði tvöfalt - á íslandsmeistaramótinu í borðtennis um helgina. Sigrún Bjamadottir sigraði þrefalt í kvennaflokki • Tómas Guðjónsson, KR, sigraði tvöfalt á íslandsmeistaramótinu í borðtennis um helgina. Þau Tómas Guðjónsson, KR, og Sigrún Bjarnadóttir, UMFB, voru mjög sigursæl á íslandsmeistaramót- inu í borðtennis sem fór fram núna Evropumótin í handknattleik: IVö spænsk lið í úrslitaleikjunum Það verða Evrópumeistarar Metaloplastika Sabac, Júgóslavíu, og pólska liðið Wybrese Gdansk sem leika til úrslita í Evrópubikamum í handknattleik, keppni meistaraliða. Sabac sigraði Steaua, Búkarest, Rúmeníu, 23-17, í síðari leik liðanna í undanúrslitum. Samanlagt 45-41. Gdansk sigraði Atletico Madrid, Spáni, 25-21, i síðari leik liðanna á heimavelli. Samanlagt 46-45. í Evrópukeppni bikarhafa komust meistarar Barcelona auðveldlega í úrslit, sigruðu Epitök Veszprem, Rúmeníu, með tíu marka mun í síð- ari leik liðanna í undanúrslitum, 29-19. Unnu samtals 54-46 eftir að hafa tapað með tveggja marka mun í Rúmeníu. í úrslitum leikur Barcel- ona við Grosswallstad, Vestur- Þýskalandi. Þýska liðið sigraði Mi- nauer Baia Mare, Rúmeníu, 25-16, í síðari leiknum í Þýskalandi en sam- tals 47-44. í IHF-keppninni leika Tecnisa Alicante, Spáni, og Raba Eto Györ, Ungverjalandi, til úrslita. Tecnisa sigraði Lugi, Svíþjóð, 53-40. Sigraði í síðari leiknum í Lundi 29-27. Raba sigraði Proletar Zrenjanin, Júgó- slavíu, í undanúrslitum samanlagt 52-44 eftir að hafa tapað síðari leikn- um í Júgóslavíu 25-22. -hsím um helgina í Laugardalshöll. Tómas sigraði í einliðaleik og tvíliðaleik karla en varð i öðru sæti í tvenndar- keppninni. Sigrún bætti um betur þvi hún sigraði i öllum þeim þrem grein- um sem hún tók þátt í, einliðaleik kvenna, tvíliðaleik kvenna og tvenndarkeppni. Tómas varði titilinn Tómas Guðjónsson sigraði Stefán Konráðsson, Stjömunni, í einliða- leik karla og varði því titil sinn frá því í fyrra. Leikur þeirra var mjög spennandi og þurfti fimm lotur til að fá fram úrslit. Stefán vann fyrstu lotuna, 21-16, en Tómas næstu tvær, 21-14. Síðan sigraði Stefán aftur, 21-16, en Tómas vann æsispennandi úrslitalotu, 22-20. Tómas Sölvason, KR, varð í þriðja sæti. í tvíliðaleik karla unnu þeir Tómas Guðjónsson og Tómas Sölvason, KR, sigur á Stefáni Konráðssyni og Gunnari Valssyni, Stjörnunni, 3-0. Þeir Kristján Jónasson og Kristján V. Haraldsson, Víkingi, urðu síðan í þriðja sæti. Þrefalt hjá Sigrúnu Sigrún Bjarnadóttir, UMFB, sýndi miklar framfarir og hafði yfirburði í kvennakeppninni. Hún sigraði Kristínu Njálsdóttur, UMSB, ií úr- slitum einliðakeppninnar. Þar. varð Elísabet Ólafsdóttir í þriðja sæti. í tvíliðaleik kvenna sigruðu Sigrún og Kristín þær Hafdísi Ásgeirsdóttur og Elisabetu Ólafsdóttur, KR. í þriðja sæti þar urðu þær Anna Sigurbjörns- dóttir og Katrín Harðardóttir úr Stjömunni. í tvenndarkeppni náði Stefán Kon- ráðsson að hefna ófara sinna gegn Tómasi í karlakeppninni. Stefán og Sigrúnu sigmðu þau Tómas og Elísa- betu í úrslitaviðureign. Gunnar Valsson og Anna Sigurbjömsdóttir urðu í þriðja sæti. í fyrsta flokki karla sigraði Kjartan Briem, KR, Bjarni Kristjánsson, Stjörnunni, varð í öðru sæti og Berg- ur Konráðsson í þriðja. í fyrsta flokki kvenna sigraði Anna Sigurbjörnsdóttir, Stjömunni, Katr- ín Harðardóttir, Stjörnunni, varð í öðru sæti og María Hrafnsdóttir, Víkingi, í þriðja. í öðmm flokki karla sigraði Óskar Ólafsson, Víkingi, Halldór Björns- son, Stjörnunni, varð annar en Stefán Garðarsson, KR, þriðji. -SMJ 22. titill Juventus Torino-liðið Juventus vann sinn 22. meistaratitil í ítölsku knattspyrn- unni í gær, þegar liðið sigraði Lecce 3-2 á útivelli í lokaumferðinni. Á sama tima tapaði Roma fyrir Como og Juventus sigraði því með fjögurra stiga mun. Roma komst fyrir þremur vikum í efsta sætið en tapaði tveimur síðustu leikjum sínum. Það var ekki skorað mark í leikn- um í Lecce fyrr en á 70. mín. Þá braut Juventus ísinn, kantmaðurinn Mas- simo Mauro skoraði með spymu írá vítateigslínunni. 'Fögnuður Juvent- us-leikmannanna stóð ekki lengi því fimm mín. síðar jafnaði Carmelo Miceli fyrir Leccje. Juventus svaraði með tveimur mörkum. Fyrst skoraði vamarmaðurinn Cabrini eftir auka- spymu Mauro, síðan miðheijinn Serena eftir snjallan samleik við Danann Laudrup. Alberto di Chiara skoraði síðara mark Lecce rétt í lok- in. Þeir Cabrini og Serena áttu frábæran leik fyrir Juventus og þess- ir ítölsku landsliðsmenn eru komnir í toppþjálfun á réttum tíma fyrir HM í Mexíkó. Þjálfari Juventus síðustu tíu árin, Giovanni Trapattoni, stjórnaði þarna sínum síðasta leik með Juventus. Hann verður nú þjálf- ari í Milano. Á þessum tíu árum sem Trapattoni var við stjórnvölinn varð Juventus sex sinnum ítalskur meist- ari og Evrópumeistari í fyrravor. Svíinn Dan Corneliusson skoraði fyrir Como á fyrstu mínútunni gegn Roma og fleiri urðu ekki mörkin í leiknum, þrátt fyrir góð færi. Meira að segja Roberto Pruzzo tókst ekki að skora fyrir Roma. Hann var markahæstur í 1. deildinni með 19 mörk. Vestur-þýski landsliðsmaður- inn Karl-Heinz Rummenigge hjá Inter Milano kom næstur með 13 mörk. Pisa, sem tapaði í gær fyrir Fior- entína, 1-2, í Pisa, féll niður í 2. deild ásamt Lecce og Bari. í gær gerði Bari jafntefli, 2-2, á útivelli við Udi- nese. Ekki er enn ljóst hvaða lið úr 2. deild taka sæti þeirra næsta keppnistímabil. Keppni í 2. deild lýk- ur ekki fyrr en eftir sjö vikur. Fyrirliði argentínska landsliðsins, Daniel Passarella, skoraði bæði mörk Fiorentina í Pisa, annar Arg- entínumaður, Giovanni Francini, skoraði bæði mörk Torino í 2-1 sigri á Verona í gær. Þessir sigrar liðanna þýddu UEFA-sæti næsta keppnis- timabil ásamt Roma og Napoli. Milano-liðin misstu af þeim. AC Milano gerði jafntefli, 1-1, við Atal- anta og Inter náði heldur ekki nema jafntefli, 0-0, við Sampdoria í Genúa. Það gæti þó breyst. Roma, Fiorent- ina og Torino eru enn í bikarkeppn- inni. Þá má geta þess að Napoli sigraði Avellino 0-1 á útivelli í gær. Juventus hlaut 45 stig í 1. deild- inni, Roma 41, Napoli 39, Fiorentina og Torino 33, Inter 32, AC Milano 31, Atalanta og Como 29 stig. -hsím ■nMHflBB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.