Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 16
16 DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986. Spurningin Hvernig líst þér á verðhækkanir á áfengi? Marteinn Pétursson, hættur störf- um: Mér líst illa á þær eins og allar verðhækkanir. Anna Bergsdóttir, vinnur i Verslun- arbankanum: Auðvitað líst mér illa á þær. Elsa Kristín, starfsmaður ÁTVR: Mér finnst allt í lagi með þær. Ingimundur Steindórsson eftirlits- maður: Mér líst engan veginn á þær, það er ekki réttlátt að vera að hækka þetta, það ætti þá allavega að hækka kaupið samsvarandi, þá þyrfti ekkert að rífast út af þessu. Gréta Þ. umsjónarmaður: Það skipt- ir engu, ef menn vilja lyfta glasi er allt í lagi að borga fyrir það. Ólöf Sigmundsdóttir nemi: Ég hef ekkert athugað þessi mál, því miður. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Sönglandi slagorðið: Vinnum saman! Gaggi skrifar: Mig langar að vekja athygli á við- tali, sem fram fór í kvöldfréttatíma útvarpsins þann 14. apríl sl., við Jafet Ólafsson, forstoðumann fatadeildar Sambandsins. Tilefnið var kúvending fyrirtækisins frá áherslu á íslenska framleiðslu yfir í beinan innflutning á fatnaði frá Austur- Asíu. Forstöðumaðurinn segir þar orðrétt: „Fatnaðurinn frá Asíu, því er ekkert að neita að hann er oft á tíðum ótrú- lega ódýr, og gæði þessa fatnaðar hafa farið mjög batnandi enda láta nú mjög þekkt fyrirtæki og vöruhús í Evrópu framleiða fatnað fyrir sig í Hong Kong og Kóreu. Ég vil undirstrika það, að þetta er tiltölulega lítill hluti af okkar heildarinnflutningi en það vill þannig til að þetta kemur saman við það að við erum að hætta rekstri fataverk- smiðjunnar Heklu og erum í fyrsta skipti að hefja beinan innflutning frá Austur-Asíu en við höfurn flutt inn fatnað þaðan i mörg ár.“ Væri nú ekki heillaráð fyrir Sam- bandið að afla upplýsinga, forkólfúm sínum til handa, um þau kjör og þær aðstæður sem það fólk lifir við sem býr þennan fatnað til ef vera mætti að það opnaði augu þeirra fyrir því nútímaþrælahaldi sem þar liggur að baki? Kannski hefúr forstöðumaðurinn einhverja vitneskju um þessa fram- leiðsluhætti, a.m.k. hljómar það sem eins konar afeökunartilraun þegar hann undirstrikar að innflutningur þessi sé tiltölulega lítill hluti heildar- innflutnings Sambandsins. Forstöðumaðurinn segir ennfremur: „Þegar fataverksmiðjan Hekla hætt- ir starfsemi í lok þessa mánaðar þá verður væntanlega á markaðinum ákveðið gat, ákveðin vöntim, og versl- anir munu leita eftir þeirri vöru sem Hekla hefur framleitt núna um árabil. Og fatadeild Sambandsins hefúr meðal annars gert ráðstafanir til að skaffa þennan fatnað eftir öðrum leiðum og þar á meðal með því að flytja þennan fatnað inn frá Austur-Asíu.“ Þá ályktun má draga af framan- sögðu að hinum aukna innflutningi sé ætlað að koma í staðinn fyrir mark- aðshlutdeild Heklu. Hvers vegna svo er farið, skýrist þegar forstöðumaðurinn er að lokum spurður hvort veijandi sé fyrir Sam- bandið að leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að viðhalda því kerfi sem viðgengst í A-Asíu þar sem bama- þrælkun er og mjög lág laun. Svar forstöðumanns er aumt yfirklór þegar hann segir orðrétt: „Fatadeild Sambandsins er heildsala og verður að selja sína vöru aftur til smásöluverslana og við verðum að geta boðið bestu verð og bestu vöru á hveijum tíma. Nú, ef við bjóðum ekki þessa vöru þá mun einhver annar gera það, þannig að það er spumingin um að veita smásöluverslunum og neyt- endum þá bestu þjónustu sem við teljum rétt á hveijum tíma.“ Með öðrum orðum, þá vöntun sem varð er Hekla hvarf af markaðinum skal brúa með fatnaði unnum af fólki sem býr nauðugt við geysilega slæm kjör og réttindaleysi. Hekla hefur vrið lögð til hvíldar. Á grafarbakkanum standa útfararstjór- amh, forkólfar fatadeildar Sambands- ins ásamt líkmönnunum, austurlensk- um fatakaupmönnum og þrælahöldurum. Líkmennimh em að- flutth og jarðarförin fer fram í kyrr- þey. Nánustu aðstandendur Heklu, starfsfólkið sem þar vann, fær minnst af henni að vita, því það taldi að um ótímabært fráfall hefði verið að ræða, lífgunartilraunum hafi verið hætt of snemma ef þær vom þá nokkum tíma reyndar. Þessi skringilegi hópur á grafar- bakkanum sönglar slagorð það sem við höfum heyrt í sjónvarpsauglýsing- um Sambandsins: „Vinnum saman.“ Þú, lesandi góður, skalt dæma um það sjálfur í hverju samvinna þessara manna er fólgin, það skaltu gera áður en þú kaupir næst ódýra flík frá Aust- ur-Asíu. „Með öðmm orðum, þá vöntun sem varð er Hekla hvarf af markaðinum skal brúa með fatnaði unnum af fólki sem býr nauðugt við geysilega slæm kjör og réttindaleysi.“ FyrgrFerðavmiklir aðdáendur María og Rebekka skrifa: Kæra Ellen! Það gleður okkur að Bréfritumm þykir fara fullmikið fyrir aðdáendum jiessa manns á lesenda- síðu DV. ennþá skuli fyrirfinnast fólk með viti í landinu. Auðvitað á ekki að niður- lægja neinn í íjölmiðlum, en hins vegar er það ákaflega freistandi þegar fólk er alltaf að reyna að telja manni trú um að Herbert sé æðislegasti söngvari í heimi. Við höfum ekkert á móti Her- berti Guðmundssyni persónulega, aðdáendur hans em bara einum of áberandi hér á lesendasíðunni. Því að eins og það er óréttlátt að niðurlægja fólk í fjölmiðlum, þá er líka óþarfi að auglýsa tónlistarsmekk sinn þar. Það hefur nefnilega enginn áhuga. Auk þess, kæra Ellen, langar okkur til þess að þú vitir að við sluppum út úr 9. bekk með ágætis einkunnir í ensku. Svavar réttur maður á réttum stað F.Á. skrifar: Ég var að lesa DV þann 17. apríl, þegar þessi Áki skrifaði að Svavar Gests eigi annaðhvort að hætta hjá rás tvö eða flytja sig yfir á Gufúrásina út af því að hann blótaði eitthvað smávegis í þáttum sínum. Ég er algjör- lega ósammála þessu. Þó að hann blóti smávegis, hvað gerh það til? Það er bara fyndið og þættimir hans em líka skemmtilegh og þú þama, Áki, ég held að þú ætth ekki að vera svona væminn. Svavar hefur alveg sinn rétt á að segja það sem honum sýnist í sín- um eigin þættir og ég held að þú ætth að flytja þig sjálfan á þessa Gufúrás (hvað sem það nú er), og svo er það enginn fjandans dónaskapur að segja nokkur blótsyrði sem þú heldur að hæfi ekki hans þætti. Þú ættir þá bara sjálfur að hafa þátt þama í rásinni ef þú heldur að þú geth haft hann eitt> hvað skárri (sem ég efast nú um að þú geth). Hugsaðu svo aðeins áður en þú ferð að skrifa í Dagblaðið-Vísi um það sem þú veist ekkert um. Og ert bara eitthvað að væmnast. Og blessað- ur skrifaðu bara aftur ef þú ert eitt- hvað ósammála þessu. „Svavar hefur alveg sinn rétt á að segja það sem honum sýnist í sínum eigin þætti.“ Fáránlegir kjarasamningar Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrifar: Það kom fram i DV fyrh mánuði að verkalýðshreyfingin hefði farið illa með fólk sem misst hefði húsið sitt en fjárfest í bíl til þess að skatt- amh gerðu ekki alveg út af við það. Þetta var í lesendabréfi. Ekki tók þá betra við þvi eldri bílar hríðféllu í verði svo tapið skipti hvorki meha né minna en 270 þúsundum króna. Þetta var greiði við húsbyggjendur sem ætluðu að rétta við fjárhag sinn og byrja upp á nýtt. Það er verið að ráðast á vissa hópa í þjóðfélaginu, í samningagerð BSRB og Alþýðusam- bandsins. Þeh sem ætluðu að græða á nýjum bílakaupum hafa nú tapað samsvar- andi á gömlu bílunum sem átti að koma í verð. Sjaldan hafa kjara- samningar verið jafnfáránlegh og nú. Komið hefur upp að Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri ASÍ, hafi fundið upp þetta þjóðráð sem blindað hefúr marga, maðurinn sem hefúr þreföld verkamannalaun. Það var ekkert verið að semja fyrir lægstlaunaða fólkið og sannast enn að Alþýðubandalagið er ekki flokk- ur verkamanna. Guðrún Helgadótth, þingmaður Alþýðubandalagsins, segist hafa alltof lág laun, 40 þúsund krónur á mánuði þegar búið er að draga frá flest útgjöld. Það skal engan undra þó hún skammist sín að starfa innan veggja Alþingishússins og það fyrir um- bjóðendur sína, fátæka fólkið. Allt það framlag sem lagt er til tiygg- ingamála ög aldraðs fólks er lítill stuðningur því fólki sem á því þarf að halda þar sem þétt er setinn bekk- urinn fólki sem slægist efth að vinna innan veggja þessara stofnana og lifa þar með á því framlagi sem ætl- að er því fólki sem misst hefur heilsu eða starfskrafta eða lent í ýmiss konar erfiðleikum. Um daginn komu fram tölur um mikla fjárfúlgu, svo milljörðum skipth, sem aldrað fólk á í sjóðum svo efth því eru ekki allir aldraðir félagsþjónustu þurfi. Mér finnst þessi frétt sannast sagt ótrúleg en ef rétt er liggur í augum uppi að ótrúlegur fjöldi fólks misnotar fé- lagsþjónustuna löglega og ólöglega. Félagsþjónustan er því rannsókn- arefni og sannast þar að hún er ekki heiðarlegri en margur annar rekstur og skipulagsleysi er undravert í menntaþjóðfélagi sem íslendingar þykjast vera og státa af. Sjóðakerfið er notað sem vinnu- miðlun og ætla ég að meira fé fari í að greiða starfsfólki kaup en það sem rennur til þeirra sem sjóðimh eru ætlaðir. Einn lífeyrissjóð fyrir alla. Margt er ótalið svo sem bamabætur sem margir þurfa ekki á að halda svo sem Guðrún Helgadótth og aðr- h eins hátekjumenn. „Guðrún Helgadótth, þingmaður Alþýðubandalagsins, segist hafa allt- of lág laun, 40 þúsund krónur á mánuði þegar búið er að draga frá flest útgjöld.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.