Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 22
22
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Nl. ER OÉR
Hingað til hefur ekki verið á allra færi að fjárfesta á þann hátt sem
hagkvæmastur hefur verið á hverjum tíma.
Til að koma til móts við almenning hefur KAUPÞING HF. hafið sölu
svonefndra EININGABRÉFA sem ALLIR ráða við. Við kaup á
EININGABRÉFUM nýtur þú HÁMARKS ÁVÖXTUNAR, tekur
LÁGMARKS ÁHÆTTU og ert með ÓBUNDIÐ FÉ.
Einfaldara getur það ekki verið.
— HVERNIG ER ÞETTA HÆGT?
Þú verður ásamt fjölmörgum öðrum einstaklingum þátttakandi í stórum
sjóði sem kaupir verðbréf með hæstu mögulegri ávöxtun — verðbréf sem
að öðrum kosti væru einuncjis innan seilingar mjög fjársterkra aðila.
MARGT SMATT GERIR EITT STÓRT.
í þessum sjóði vegur þitt fé jafn þungt og þeirra sem meira hafa
handa á milli. Að baki ÉININGABRÉFUNUM standa örugg veð
eða aðrar jafngildar tryggingar.
Hringdu í síma 686988 og fáðu nánari upplýsingar.
NAFNVEXTIR HELSTU SPARNAÐARFORMA:
Sparnaöarform Nafnvextir Raunvextir
• Almennir sparisjóösreikninpar 8,0—9,0%
• Sérreikningar banka 12,0—13,0%
• 6 mán. verötryggöir reikningar 15,4—15,9%* 3,0—3,5%
• 18 mán. verótryggöir reikningar —X CD 00 I ro o V * 7,0—7,5%
• Sparisklrteini rlkissjóös 19,8—22,1%* 7,0—9,0%
• Bankatryggö skuldabréf 23,2—24,3%* 10,0—11,0%
■ EININGABRÉF 31,0%* nú 17%
Miöaö vió 12% árlega veröbólgu.
e^ðVíSaN
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar @68 69 88
iþróttir Iþróttir
Nicklaus í græna jakkann
• Bandaríski golfleikarinn Jack Nicklaus vann, sem frægt er orðið, U.S.
Masters keppnina i Bandaríkunum nú nýverið og kom sigur hans mjög á
óvart. Blöð í Bandaríkjunum höfðu sagt að Nicklaus, sem er 46 ára gamall,
væri orðinn of gamall til að vinna stórmót sem U.S. Masters. Sigurvegarinn
hverju sinni fær tugi milljóna króna í sinn hlut auk hins mikla heiðurs sem
sigrinum fylgir. Og svo er það græni jakkinn frægi sem sigurvegari er klæddur
í eftir keppnina. Á þessari mynd er verið að klæða Nicklaus í græna jak-
kann. Þetta var sjötti sigur hans á U.S. Masters og því í sjötta skipti sem
hann fór frá Augusta golfvellinum í jakkanum eftirsótta.
Beckenbauer
í vandræðum
Þjálfari vestur-þýska landsliðsins í
knattspyrnu, Franz Beckenbauer, á
enn í vandræðum með að finna end-
anlegan hóp fyrir HM. í nýlegu
viðtali sagði hann að þó hann hefði
verið að reyna fyrir sér í rúmlega
eitt ár vissi hann ekki enn hvemig
hann ætti að stilla liðinu upp. Hann
yrði líklega að stunda tilraunastarf-
semi með liðið fram á siðustu stundu.
Beckenbauer sagði að aðalvanda-
málið væri skortur á hæfum leik-
stjómanda á miðjunni. Þar hefur
Felix Magath hjá Hamborg verið lík-
legastur en leikur hans að undan-
förnu hefur valdið vonbrigðum. Hinn
nítján ára gamli Olaf Thon hjá
Schalke, sem er talinn líklegasti arf-
takinn á miðjunni, þykir ekki nógu
reyndur ennþá. Bernd Schiister hjá
Barcelona er auðvitað maðurinn sem
Þjóðverjar þurfa á miðjuna en hið
sérkennilega skapferli hans verður
sjálfsagt til þess að hann verður ekki
með.
Hins vegar segist Beckenbauer
ekki geta verið annað en bjartsýnn
svo framarlega sem leikmenn eins
og Toni Schumacher, Karl Heinz
Föster, Andreas Brehme, Hans-
• Franz Beckenbauer.
Peter Briegel, Lothar Matthaeus,
Karl-Heinz Rummenigge, Pierre
Littbarski og Rudi Völler eru heilir.
-SMJ
Armenningar
sigurvegarar
- í svigi á 20. Mullersmótinu
20. Miillersmótið i svigi og göngu
fór fram nýverið við skiðaskála
Fram., Keppt var í sveitakeppni í
svigi. í hverri sveit voru sex keppend-
ur en árangur fjögurra bestu taldi.
Fjórar sveitir mættu til leiks og sigr-
aði sveit Ármanns og fékk hún
samanlagðan tima 240,8 sekúndur.
Sveitina skipuðu Tryggvi Þorsteins-
son, Einar Ulfsson, Arni Sæmunds-
son og Hafliði Bárðarson. Sveit IR
varð í öðru sæti á 249,5 sek. og í þriðja
sæti varð sveit Víkings á 264,7 sek.
Restina lak sveit Fram á 269,6 sek.
í sveitakeppni í göngu (tveggja
manna sveitum) sigruðu bræðurnir
Eirikur og Guðni Stefánssynir, SR,
oggengu þeir 10 km á 36,45 mínútum.
1 5 km göngu öldunga sigraði Matt-
hías Sveinsson, SR, á 18,30 mín.
Annar varð Páll Guðbjartsson, Fram,
á 18,46 mín. og þriðji Tryggvi Þór
Halldórsson, SR, á 19,47 mín. Fjórði
varð Pálmi Guðmundsson, SR, á 23,01
mín. en hann var mótsstjóri bæði í
göngunni og svigkeppninni.
í 5 km göngu kvenna sigraði Lilja
Þorleifsdóttir, SR, á 24,23 mín. og
önnur varð Svanhildur Árnadóttir,
SR, á 26,26 mín. 1 5 km göngu drengja
sigraði Einar Guðmundsson, SR, og
gekk hann á 27,11 mín. _gj{
Bmgge-liðin í úrslit
Það verða Brugge-liðin sem leika
til úrslita í belgísku bikarkeppninni.
í gær voru síðari leikirnir í undanúr-
slitum háðir. Þá lék Club Brugge við
Francs Borains og sigraði 5-0. Vann
samanlagt 7-0 í báðum leikjunum og
þar með lauk hinni óvenjulegu sigur-
göngu þriðju deildar liðsins i bikar-
keppninni. Cercle Brugge sigraði
Mechelen 3-0 og vann samanlagt 3-2.
Úrslitaleikurinn verður um næstu
helgi en á miðvikudag leikur Club
fyrri leikinn við Anderlecht um belg-
íska meistaratitilinn. Liðin voru efst
og jöfn í 1. deildinni.
-hsím