Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Page 10
10 DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Nýtt efnahagsundur hjá V- ÞJóðve rju m Mikill uppgangur í vestur-þýsku efnahagslífi Grafarkyrrðin í sýningarsölum Mercedes Benz í Frankfurt, því að ekki er þar rápið af sölumönnum eða viðskiptavinum, veitir ekki mikla vísbendingu um að Vestur-Þýska- land sigli nú á leið inn í annað efnahagsundur. En afhendingartími íyrir sumar gerðir af -Benz er allt að tvö ár og eru þó báðar verksmiðjur þeirra í Vestur-Þýskalandi reknar á útopnu. Þrátt fyrir fúll afköst hafa þeir ekki undan. Og sölumennimir hjá Daiml- er-Benz þurfa ekki annað fyrir kaupinu sínu að hafa en að taka við pöntunum, póstleggja svörin og koma innáborgunum í bankann. Og það hefúr lengi verið álit þeirra þýðversku að það sem sé gott fyrir Daimler sé um leið gott fyrir Þýska- land. Byrjaðir að tala um nýtt efna- hagsundur Enda er glatt yfir kaupsýslustétt- inni í Þýskalandi um þessar mundir. Stöku maður heyrist jafnvel taka sér, afskaplega varlega að vísu, í munn gamalkunnugt orð eins og „efnahagsundur" sem nær alveg hvarf úr málinu á verðbólguárum síðasta áratugar og í kreppunni í byrjun þessa. „Enginn hafði búist við því að Þýskaland, með gamaldags efna- hagskerfi, að mestu byggt á stáliðn- aði, stóriðju, vélsmíði og bílafram- leiðslu, mundi risa upp aftur til eins konar nýs efnahagsundurs," sagði einn af bankastjómm Frankfurt við fréttamann Reuters á dögunum. „Nú heyrist ekki lengur sú gagnrýni að V-Þýskaland hafi ekki lagt sig nóg eftir örtölvutækninni," bætti hann við. Hafa ekki dregist aftur úr í fram- tíðartækninni Hagfræðingar segja að fyrirtækja- samsteypur eins og Siemens og töluframleiðandinn Nixdorf, sem staðsettar eru í Múnchen, hafi átt stóran þátt i þvi að reka af Þjóðverj- um slyðruorðið á sviði framtíðar- tækninnar. Frá Volkswagen-verksmiðjunum berast þær fréttir að senn kunni menn þar að skýra frá þvi að tekjur ársins 1985 hafi tvöfaldast frá árinu áður. Þar með sýnist á enda erfiður kapítuli í sögu þess fyrirtækis með nokkurra ára taprekstri. Með nokkrum breytingum hafa þeir gætt Golf-bílinn nýju lífi og selst hann nú örar en nokkur bíll hefúr nokk- um tíma gert. Vænta sér góðs af næsta ára- tug Norbert Walter, hagfræðingur við Kiel-háskóla, lét nýlega eftir sér hafa að með verðbólguna nær hjaðn- aða mætti búast við þvi að seðla- banki þeirra í V-Þýskalandi, „Bundesbank“inn, mundi eitthvað losa tök sín á peningaveltunni og góðar horfúr væru á því að næsti áratugur fæli í sér annað efnahags- undur í V-Þýskalandi. Mánaðarlega breyta menn spánni um hagvöxtinn til þess að taka sér í munn hærri tölur og þótti hann þó alldrjúgur orðinn við lok síðasta árs. Veldur þar mestu um auðvitað þróunin á olíumarkaðnum með fallandi olíu- verði. Er nú olíureikningur þýsku þjóðarinnar helmingur af því sem var. Jafnvel hinir varkáru hagfræð- ingar Bundesbank eru farnir að spá 4% hagvexti á þessu ári. Skjótast upp fyrir Bandaríkin og Japan Það er náttúrlega töluverður mun- ur á þvi eða þeim 8, 9 og 10% sem menn voru vitni að á uppgangstím- um eftirstríðsáranna á fimmta og sjötta áratug aldarinnar þegar efiia- hagsundrið gekk yfir, sem þetta 37 ára gamla ríki er frægt fyrir. En það er nóg til að skjótast fram úr Banda- ríkjunum og Japan sem spókað hafa sig í fararbroddi sem fyrirmyndir á efnahagssviðinu. Vegna þessa nýja uppgangs var Bundesbank ekki mikið freistað til þess að verða við áskorunum um að örva efnahagslífið með lækkun lána- vaxta, eins og gert var í Bandaríkj- unum og Japan í hinni vikunni. Á fúndi í Bundesbankaráði í síðustu viku var ákveðið að hafa þá óbreytta 3,5%. Háttsettur bandarískur embættis- maður, sem á dögunum var að gera fréttamönnum grein fyrir undir- búningi sjö ríkja fúndarins, sem fyrirhugaður er í Tokýo í næsta mánuði, notaði tækifærið til að koma á framfæri hvatningu til Vest- ur-Þjóðveija að fylgja öðrum í lækkun vaxta. Nefndi hann að Þjóð- verjar hefðu nær alveg sigrast á verðbólgunni en ættu enn við mikið atvinnuleysi að stríða. Verðbólgan sálræn grýla frá fyrri tíma Hin hrikalega verðbólga þriðja áratugarins og gengishrunið ofboðs- lega eru Þjóðverjum ekki enn liðin úr minni. Það fer hrollur um þá ef verðbólgan skrúfast upp í svo mikið sem hálfan tug og stappar nærri móðursýki ef hún verður meiri en það. Engri ríkisstjóm tjóar annað en taka strax í Bonn á kýlinu. Bun- desbank slakar því aldrei á vöku sinni um heilbrigði marksins og fer þá heldur of varlega en láta sig henda að tefla of djarflega. Erlent fjármagn streymir inn Erlent fjármagn hefur streymt inn í landið upp á síðkastið og hefúr það gert skurk í gengisskráninguna og skapað hættu á að verðbólguneist- inn kviknaði á ný. Hagfræðingar viðurkenna þó að framfærslukostn- aður eigi að öllum líkindum eftir að lækka í þessum mánuði og að 0,1% verðbólgan, sem mældist í síðasta mánuði, gæti fullt eins hafa orðið til í útreikningunum vegna flugnaskíts á reikniblöðunum. Umsjón: Guðmundur Pétursson Á erlendum gjaldeyrismörkuðum hefur þýska markið ætt upp og í við- miðun við dollar em daglega sett ný fimm ára met. Bandaríkjadalur- inn voldugi, sem fyrir rúmu ári kostaði nær þijú og hálft mark, fæst nú fyrir rúm tvö mörk. Græðgi í þýsk hlutabréf í fyrra létu fésýslumenn heima í V-Þýskalandi það koma flatt upp á sig hve áfjáðir útlendir fjárfestingar- aðilar voru í hlutabréf í vestur- þýskum fyrirtækjum. Þau ruku upp um 75% og þar með var Vestur- Þýskalandi kippt út úr skuggum lægðar og samdráttar inn í sviðsljós heimsviðskiptanna. Á meðan verð- bréfasalar vöktu heilar nætur í biðröðum, eða fengu sér gistiher- bergi í námunda við verðbréfahallir miðborga, urðu vestur-þýskir bankar að ráða sér bandarískt og japanskt starfslið til þess að veita hinum út- lendu peningajöfrum betri þjónustu. í einu vetfangi var Vestur-Þýska- land orðið Japan Evrópumanna. Stimpillinn á trú manna á því hve vel verðbréfamarkaðurinn stendur um þessar mundir fékkst fyrir helgi þegar Deutsche Bank (sá stærsti í landinu) setti í sölu á almennum markaði hlutabréf fyrir tvo milljarða marka í Flick-fyrirtækjasamsteyp- unni fyrrverandi. Það er mesta magn hlutabréfa sem nokkru sinni hefúr verið sett í sölu á almennum mark- aði í Þýskalandi í einu. Streymdu að fyrirspumir alls staðar að, inn- lendar sem erlendar, og innan nokkurra klukkustunda voru bréfin seld. Staða stjórnarflokkanna sterk- ari Helmut Kohl kanslari og hægri- flokka ríkisstjóm hans em auðvitað himinlifandi með þassa þróun en em nógu skynsamir til þess að hælast ekki um. Kosningar til sambands- þingsins í Bonn verða eftir níu mánuði og þótt gróskan í efnahags- lífinu hafi mjög styrkt stöðu stjóm- arflokkanna og kosningahorfur þá er enn við atvinnuleysisdrauginn að glíma. Hann þráast við að láta ekki kveða sig niður fyrir 10%. Er það eini alvöruskugginn á sjóndeildar- hringnum. En hvor sem verður svo kanslari í Bonn eftir janúar næsta vetur, Helmut Kohl frá kristilegum dem- ókrötum eða Johannes Rau frá sósíaldemókrötum, þá má búast við að sá hinn sami hafi ánægjuna af því að horfa á atvinnuleysistölur fara lækkandi upp úr þessu. Þeir em til sem hafa sínar efa- semdir um hversu traustur þessi efnahagsbati Þjóðverja sé í raun og sann. Þannig gáfu hagsýslustofnanir til kynna að frekar hefði hallað und- an fæti í verksmiðjurekstri í síðasta mánuði. Mörg fyrirtæki em heldur ekki of bjartsýn um afkomu sína næsta misseri. En pantanir halda stöðugt áfram að streyma inn og sala á Evrópumarkaði virðist ömgg. Atvinnuleysið hefur ekki enn náðst niður fyrir 10% í Þýskalandi og er eini skugginn á annars björtum horfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.