Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Side 12
12
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
KRYDDHORNIÐ
Negull og allrahanda
Nafnið er dregið af franska orðinu
„clou“ sem þýðir nagli. Kryddið er
upprunnið frá Moluccaeyjum, Zansi-
bar og Malaga, og ýmsir siðir tengdust
því, s.s. að hirðmönnum bar skylda til
að hafa negul uppi í sér er þeir voru
kallaðir fyrir kínversku Han keisara-
ættina 206 f. Kr til 220 e. Kr.
Á 18. öld var negulfræjum stolið af
trjám hjá Hollendingum í því skyni
að hnekkja einokun þeirra á krydd-
mörkuðum. Negull fæst bæði malaður
og heill og líkist nagla í laginu. Litur-
inn er rauðbrúnn og bragðið sætt og
sérkennilegt og talsvert sterkt. Negul
ber að nota sparlega.
Notkun
Heill negull er mikið notaður sem
skreyting og honum stráð yfir tilbúna
rétti. Hann er notaður í fyllingu í
fuglakjöt, í ávexti, svínakjöt og nauta-
kjöt - einnig mikið notaður í pottrétti,
marineringar, súpur og sósur.
Malaður negull er notaður í krydd-
kökur, ávaxtakökur, engiferbrauð,
búðinga, smákökur, salöt, chilisósu,
grænmeti, súpur og í kryddlög með
öðru kryddi.
Tillögur að magni
Malaður negull
1/2 tsk. í 8 kg svínakjötssteik
1/4 tsk. stráð yfir ávaxtaköku
1/8 tsk. í 200 g grænt grænmeti, gul-
rætur eða sykraðar kartöflur
1/2 tsk. i uppskrift sem jafngildir 70-80
smákökum
Heill negull
4-12 í 100 g hrísgrjón
1-2 í bolla af ístei, kaffi eða hitað vín
6-8 í kryddlög fyrir 2,5 kg steik
1/2-1 tsk. í 200 g af kiydduðum kirsu-
beijum
Allrahanda krydd
Allrahanda er líka kallað Pimento,
Jamaikapipar og á rætur sínar að
rekja til Vesturheims og er eina vel
þekkta kiyddið sem eingöngu er
framleitt í þessum heimshluta. Kól-
umbus uppgötvaði það árið 1494 en
það varð ekki þekkt í Evrópu fyrr en
á 17. öld.
Allrahanda er unnið úr ávöxtum sí-
græns trés en ávextimir eða berin eru
sólþurrkuð þar til þau verða dökk-
rauð-brún á lit. Kiyddið fæst bæði
heilt og malað og bragðið er svipað
og blanda af kanil og múskati og verð-
ur sterkara í mat eftir því sem hann
geymist lengur.
Notkun
Allrahanda hefúr margvislegt nota-
gildi. Ómalað má nota það í súpur,
stöppur, kryddlög, niðursuðu á græn-
meti og þegar verið er að sjóða
fiskmeti. Malað er það notað í tertur,
kökur, sælgæti, búðinga, kjöt, pott-
rétti, chilisósu, tómatsósu, sykraðar
kartöflur og ídýfur.
Tillögur að magni
Malað
1/4 tsk. í 200 g af sykruðum kartöflum
1/2 tsk. dreift yfir væna sneið af fúgla-
kjöti
2 tsk. í 200 g af vöfflusoppu
1/8 tsk. á hvert 1/5 kg af nautakjöti
Ómalað
3 stk. í 200-300 g af baunasúpu
4-6 stk. fyrir hvert kíló af fiski sem
verið er að matreiða -S.Konn.
MOSATÆTARI FRÁ
BUCK&DECKER
BESTA VOPNIÐ GEGN
MOSA í GARÐINUM
rsteinsson
& lonnson hf.
Eitt versta vandamál sem til er í sam-
bandi við garða á íslandi er hve mosa-
vaxnir þeir vilja verða og það hefur sýnt
sig að hvaða eiturefni sem fólk reynir að
dreifa yfir garðana þá er það ekkert ann-
að en peningaeyðsla en rafmagnsgarð-
hrífan tætir upp og upprætir allan mosa
í eitt skipti fyrir öll úr görðunum, fyrir
utan að vera rafmagnshrífa sem hreinsar
upp gras eftir slátt og lauf að hausti.
ARMULI 1 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-685533
nm
Osmekklegt sæl-
gæti í umferð
Ýmislegt miður smekklegt
„sælgæti" er hér á boðstól-
um. Hér að ofan eru myndir
af strái, sem fyllt er með
hvítu dufti, sennilegast
þrúgusykri, og pínulítilli
plastdollu, einnig fylltri með
sykri, þó með súru bragði,
og „líkkista“ sem full er af
„mannabeinum“.
Einnig er á boðstólum alls
konar öðruvísi „sælgæti“
eins og t.d. eftirlíkingar af
sígarettum og öðru því um
líku.
Það er athyglisvert að það
skuli vera leyfilegt að kaupa
fyrir erlendan gjaldeyri alls
kyns ómerkilegt drasl og
selja eftirlitslaust hér á
landi. Hver veit nema síðar
meir geti krakki, sem kann-
ast við þrúgusykurinn í
græna stráinu, látið glepjast
á öðrum og hættulegri efii-
um sem líta alveg eins út?
Auðvitað megum við ekki
vera of „hysterísk", en er
þama verið að ala upp
væntanlega eiturlyfjaneyt-
endur?
Þá má ekki gleyma því að
hér er matvælaframleiðend-
um gert að merkja vörur
sínar með nákvæmum inni-
haldslýsingum. Á meðan er
hægt að selja algerlega
ómerkt drasl eins og á
myndunum.
Það er engu líkara en sið-
ferðisþrek okkar sé á þrot>
urn.... -A.Bj.
Hvað er hér á seyði? Er verið að sjúga upp kókain eða hvað ? Nei, alls ekki.
Þetta er „sælgæti“ sem selt er í sjoppum í höfuðborginni - grænt plaststrá,
fyllt af hvitu dufti sem við nánari eftirgrennslan reyndist vera þrúgusykur.
Engin merking, hvorki um innihald né framleiðanda. DV-mynd GVA
Þetta „sælgæti“ er kannski hættulaust, en ekki finnst okkur það vera smekk-
legt. „Líkkista“ full af „mannabeinum“. Þetta er merkt með nafni erlends
framleiðanda en með svo smáu letri að varla er sýnilegt með berum augum.
Ekki innihaldslýsing. Þetta er ekki einu sinni sniðugt þótt þetta sé ekki það
alversta sem á boðstólum er. DV-mynd KAE
BETRI
UMFERÐARMENNING
EHt þúsund ogeinn...
eitt þúsund ogtveir...
hemli. Prófaðu þessa aðferð næst þinna. Betra öryggi - bætt umferðar-
þegar þú sest undir stýri og tryggðu menning.
þannig öryggi þitt og meðbræðra EG.
Margar aftanákeyrslur verða vegna þess að alltof stutt bil er á milli bíla.
Veist þú að mikill hluti árekstra er
aftanákeyrsla vegna þess að of stutt
bil er á milli bíla? Þegar þú ekur nið-
ur Laugaveginn hefur þú oft ekki
nema 3-4 metra á milli bílsins þíns
og þess er fyrir framan ekur.
I umsjá
Bindindisfélags
ökumanna
Það er reyndar allt of lítið bil en
gengur þó oftast á Laugaveginum
þar sem umferð er svo hæg. Það er
verra þegar þessu stutta bili er síðan
haldið á götum eins og Miklubraut,
Kringlumýrarbraut eða Breiðholts-
braut þar sem hámarkshraðinn er 60
km/klst. og oftast ekið á 80 km/klst.
Þá þarf ekki mikið út af að bera til
að illa fari. Til er ágæt leið til að
finna út hve bilið að næsta bíl á að
vera mikið. Ef þú miðar við að bíllinn
fyrir framan þig sé að fara framhjá
ákveðnum hlut, svo sem umferðar-
merki, ljósastaur eða því um líku,
þá byijarðu að telja: 1001 - 1002
1003.
Ef þú ert kominn að hlutnum áður
en þú hefur náð að telja þá ertu of
nálægt næsta bíl, en ef þú getur talið
upp að 1003 áður en bíllinn þinn er
kominn að hlutnum er fjarlægðin í
lagi. Þessi aðferð hefur þann kost
að því hraðar sem ekið er eykst bilið
sjálfkrafa og þú hefur það öryggi að
geta stöðváð bílinn þinn í tæka tíð
þó bíllinn fyrir framan þig snar-