Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Síða 20
20
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Önnumst nú einnig
ails konar smáprentun
Prentun á númeruöum
sjálfkalkerandi reikningumi
Fljót og góöþjónusta./
l'liistns lif
671900
FÉLAG STARFSFÓLKS
oöoí IVEITINGAHÚSUM
m/
vP'
auglýsir eftir umsóknum félagsmanna um dvöl í sum-
arhúsum að Húsafelli og Svignaskarði.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 9. maí. Úthlutað verður
14. maí.
Stjórn orlofsheimilasjóðs.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa við Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur.
Við heimahjúkrun:
Hjúkrunarfræðingar til sumarafleysinga á dag-, kvöld-
og næturvaktir. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 22400.
Við Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis, Drápuhlíð 14-16.
Læknafulltrúi í 100% starf. Stúdentspróf eða sambæri-
leg menntun áskilin ásamt góðri vélritunar- og ís-
lenskukunnáttu.
Tveir starfsmenn við símavörslu og móttöku í 60%
starf hvor.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsugæslu-
stöðva í síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16 mánu-
daginn 5. maí.
Þær eru bara minnisvarði um liðinn tima húsarústimar á Ártúni á Kjalamesi og í baksýn sést upp eftir Blikdalnum.
Blikdalur
Mannskaðafoss
Mörgum finnst Esjan fallegt fjall
og er hún oftast kölluð „höfuð-
prýði“ Reykjavíkur eða bæjarfjall.
Esjan er hííðabrött, hömrótt íiið eíra
en skriðurunnin hið neðra. Hún er
gerð úr basalti og móbergslögum á
víxl. Austan við Grafardal gnæfir
Hátindur (909 m), sem lengi var tal-
inn hæsti tindur Esjunnar en
nákvæmari mælingar sýndu að
bungan upp og norður af Kistufelli
er hærri eða 916 m (sumir segja 918
m) og þar er nú hápunktur fjallsins.
Utivist
Gunnar Bender
Margir hafa gengið á Esju og haft
gaman af því í góðu veðri er hægt
að sjá víða af henni, útsýnið getur
verið einstakt. Algengustu göngu-
leiðir á Esju em frá Mógilsá á
Þverfellshom og frá Esjubergi á
Kerhólakamb.
Við munum nú ijalla um Mannsk-
aðafoss sem er í Blikdalsá. Hann er
upp af Ártúni á Kjalamesi. Dalurinn
nefiiist Blikdalur, stundum Bleik-
dalur eða Blikadalur, en Blikdalur
er hann neíndur í jarðabókinni frá
1704 og fleiri fomum heimildum.
Þegar menn aka þjóðveginn má
sjá húsarústir bæjarins Ártúns fyrir
mynni Blikdals. Hann er nú í eyði
og hús að falli komin. Bærinn hefur
greinilega lokið sínu hlutverki en
hann var notaður við myndina Síð-
asti bærinn í dalnum. Það hefði
kannski mátt varðveita þennan
gamla torfbæ því hann kann einn
sína sögu og hún er án efe merkileg.
Það er ennþá hægt að bjarga honum.
Blikdalur þykir vorfagur en mýr-
lendur nokkuð með veisum og
lindum. Hann er 6 km langur og
tekur töluverðan tíma að labba hann
en það er þess virði. Hlíðamar em
víða brattar og innst em hamrabelti
með miklum fossaföllum, sérstaklega
í vorleysingum. Eftir dalnum rennur
Blikdalsá og hefur gengið erfiðlega
að rækta lax í henni en menn vona
að það sé að koma. í henni veiddust
90 laxar síðastliðið sumar.
Lengi var haft í seli á dalnum og
bæir svo sem Brautarholt og Saur-
bær áttu þar, auk selstöðu, fjámpp-
rekstur og hestagöngu. Hafa selin
líklega verið innst inni í dalnum því
þess er getið að selvegur frá Saurbæ
hafi þótt bæði langur og erfiður.
Neðst í Blikdal rennur áin í gljúfrum
og á einum stað svo þröngum að
næstum því má stökkva þar yfir. Þar
heitir Mannskaðafoss og Mannsk-
aðahylur. Segir sagan að þar hafi
eitt sinn smalar tveir staðið sinn
hvorum megin við gljúfrið og kallast
á. Saurbæjarsmalinn, sem var stærri
og þróttmeiri, brá hinum um hug-
leysi þar sem hann þyrði ekki að
stökkva yfir gljúfrið sem þó ekkert
væri. Orðum sínum til áréttingar
stökk hann sjálfur yfir til hins. Er
hann ætlaði sömu leið til baka var-
aði hann sig ekki á að hinn barmur-
inn var nokkm hærri. Féll hann í
gljúfrið og fannst lík hans löngu síð-
ar rekið niðri á vaðinu neðan við
gljúfrin en þar var alfaraleið. Eftir
það var ekki heiglum hent að vera
þar einn á ferð eftir að skyggja tók
ó kvöldin.
Já, það hefur ýmislegt gerst í Blik-
dal og gaman að ganga þar, húsa-
rústir gamla torfbæjarins þjóna
hestum sem afdrep en búendum forð-
um og víða hægt að sjá margt
merkilegt. Mannskaðafossinn er
tignarlegur en fara verður varlega í
kringum hann, þá er öllu óhætt.
G. Bender.
Heímíld: Útivist númer 10, grein Einars
Hauks Kristjánssonar: Esjan.
Mannskaðafossinn.
DV-myndir G. Bender.
Borqarvídeo,'
ó^Kárastíg 1
videotæki alla daga
þegar leigðar eru 3
myndir eða fleiri.